Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Page 19
Vikublað 9.–11. maí 2017 KYNNING Úr og skartgripir 19 Glæsileg íslensk hönnun frá Gilbert úrsmið JS Watch co. ReYKJavIK JS Watch co. Reykjavik úrin eru íslensk frá grunni. Þau eru hönnuð á teikniborði JS hér heima á Íslandi. allir íhlutir úrsins eru síðan sérframleiddir eftir þeirra hönnun í mörgum, sérhæfðum verksmiðjum í Þýskalandi og Sviss og settir saman hér á landi undir ströngu gæðaeftirliti Gilberts Ó. Guðjónssonar úrsmiðameistara sem nýtir áralanga þekkingu og reynslu sína af úrsmíði til að tryggja að hvert og eitt úr standist ströngustu kröfur. Frá upphafi framleiðslunnar hefur verið leitast við að sameina, glæsilega hönnun, gæði, fyrsta flokks úrverk og falleg armbönd. vönduð úr eru munaðarvara og fylgihlutir sem bæði karlmenn og konur njóta þess að velja, bera og eiga. en úr er ekki bara skartgripur. Það er nytjahlutur sem hjálpar okk- ur að gegna skyldum okkar, halda loforð og skapa góðar minningar. Sérstaða úranna á íslensk- um markaði ásamt persónulegri þjónustu og árangursríku mark- aðs- og kynningarstarfi hefur leitt til þess að úrin hafa orðið eftirsótt meðal heimsfrægra einstaklinga sem koma til landsins. Meðal þekktra einstaklinga má til gamans nefna Ben Stiller, tom cruise, Quentin tarantino, Jude Law, viggo Mortensen, Mads Mikkelsen, tobey Maguire, Dennis Quaid, elvis costello, Ian anderson, Yoko ono, Sean Lennon, Dalai Lama, Katie couric, vinnie Jones og con- stantine Grikklandskonung. Fágæti úranna ásamt því að vera framleidd í hæsta gæða- flokki er það sem gerir þau eftirsóknarverð, en á skífu allra úranna stendur Reykjavík. Það ásamt, vönduðu verki, framleiðslu og sígildu útliti gerir úrin fágæt og einstök. Gilbert úrsmiður hefur lagt sitt af mörkum við að hvetja til bættrar verslunar og þjónustu við ferðamenn efst á Laugaveginum og hefur ásamt fleirum tekið ríkan þátt þátt í að byggja upp verslun í vitahverfinu. Persónuleg þjónusta og góð vöruþekking er aðalsmerki verslunarinnar og þjónustustig verslunarinnar er til fyrirmyndar. viðskiptavinir eiga kost á að hitta framleiðendur, fá að sjá úrsmiði að störfum og koma með ábendingar varðandi samsetningu og útlit þeirra úra sem þeir hyggjast kaupa. Ferða- menn geta óskað eftir einkaheim- sókn komist þeir ekki í verslunina á hefðbundnum opnunartíma og eru þeir þá jafnan sóttir á hótel sitt og ekið til baka að lokinni heimsókn. heildstæð áferð og framúrstefnu- leg ásýnd markaðs- og kynn- ingarmála JS Watch co. Reykjavík hefur vakið athygli bæði innan- lands og utan. Úrvalið hefur aldrei verið meira en nánari upplýsingar um úrin og hönnunina má finna á vefsíðunni www.gilbert.is. n Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62, sími: 551-4100.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.