Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Blaðsíða 15
Vikublað 9.–11. maí 2017 fréttir 15 ar, höfum við mikið til skellt ábyrgð á ríkið og þegið pening frá því í stað- inn. Í stað þess að vera byrði á rík- inu reynum við að aðskilja okkur frá því. Við reynum að vera blessun fyrir fólkið í kringum okkur.“ Loftstofan er eina baptistakirkj- an hér á landi þar sem predikun fer fram á íslensku. Kenningar baptista eru frábrugðnar þeim lúthersku að ýmsu leyti. Mesti munurinn felst í því að baptistar láta ekki skíra börn. „Við skírum fólk þegar það tekur trú, ef það ákveður allt í einu að ger- ast kristið,“ segir Gunnar, en lögð er áhersla á að ákvörðunin sé tekin á eigin forsendum og sé meðvituð. Varð kristinn við að hlusta á hlaðvarp Gunnar ólst upp í kristnu umhverfi en trúin greip hann fyrst heljartök- um þegar hann var 21 árs. „Ég var að vinna í Kosti á þessum tíma. Einn vinnudaginn hlustaði ég fyrir tilvilj- un á hlaðvarp um kristna trú sem fékk mig til að líta trúna allt öðrum augum,“ segir Gunnar. „Næstu tvö árin fórum við Svava að gæla við til- hugsunina um að stofna eigin kirkju. Í fyrstu virtist það vera ein heimsku- legasta hugdetta sem við höfðum fengið, en fljótt sáum við ekki fyrir okkur að gera neitt annað.“ Fyrst stóðu þau aðeins fyr- ir heimahópum og unnu að upp- byggingu kirkjunnar samhliða hefð- bundinni dagvinnu. „Ég hætti í Kosti og byrjaði að vinna við markaðs- setningu. Ég hélt að það yrði ekkert mál að sinna hvoru tveggja. En síðan varð vinnudagurinn tólf tímar, því ég vann fjóra tíma á dag í kirkjunni og átta í hinni vinnunni. Það gengur svo sem á tímabili, en ekki til lengdar.“ Samstarf við bandaríska kirkju Þegar Gunnar og Svava voru ör- magna að reyna að koma á fót eigin kirkju samhliða hefðbundinni dag- vinnu varð þeim hugsað til hlað- varpsins. Það hafði verið Gunnari hugleikið frá því hann hlustaði á það fyrst. Í því talaði maður frá Banda- ríkjunum um litla kirkju í Virginíu- ríki sem hafði sent fólk til Íslands í leit að samstarfsaðilum. Gunnar og Svava grófu upp hlaðvarpið tveim- ur árum síðar og ákváðu að setja sig í samband við fyrirlesarann. Hann svaraði um hæl og gaf þeim sam- band við annað fólk á vegum kirkj- unnar sem var einmitt statt hérlend- is á þeim tíma. „Þetta var ótrúleg tilviljun. Okkur langaði að stofna litla kirkju og þarna voru komnir aðilar sem voru einmitt að leita að fólki til þess,“ segir Svava. „Þau sögðu að við værum fólkið sem þau hefðu beðið eftir í átta ár!“ Baptistakirkjan úti í Virginíu heit- ir Pillar Church of Dumfries. Hún hefur skapað stórt tengslanet í kring- um sig og rekur nú um 25 kirkjur í Bandaríkjunum. Hún styður fólk til að stofna kirkjur um allan heim, meðal annars á Íslandi og í Jap- an. „Þessi menning er skemmtilega öðruvísi. Flestallar kirkjurnar eru litlar og gefa ágóðann af starfi sínu til annarra kirkna. Þessi starfsemi hef- ur lagt fordæmi að kirkjunni okkar,“ segir Gunnar. „Mér finnst kirkjur og kristin menning því miður oft snúast um einhvern einn einstakling sem á stórt hús og fullt af fínum bílum. Það getur verið svo mikill peningur falinn í kirkjurekstri. Kirkjurnar geta orðið að gríðarstóru fyrirtæki sem gætir aðeins eigin hagsmuna, en það er ekki raunin hjá Pillar Church of Dumfries,“ bætir hann við. Kirkjan í Virginíu er á höttunum eftir áhugasömu fólki um allan heim til að slást í lið með sér. Forstöðu- menn hennar voru því reiðubúnir að styðja Gunnar og Svövu fjárhagslega svo þau gætu komið á fót almenni- legri kirkju. „Við bjuggumst alls ekki við því að geta unnið svona fljótt við þetta í fullu starfi. En samstarfið gekk vonum framar. Kirkjan úti sendir öðru hverju fólk til Íslands og við för- um líka oft út og fáum að tala í kirkj- unum þar,“ segir Svava. Stuðningur á erfiðum tímum Gunnar og Svava birtu myndband á YouTube-rás sinni skömmu eft- ir að Salómon kom í heiminn, þar sem þau útskýrðu aðstæður sínar og gerðu erfiðleikunum skil sem dunið höfðu á. Myndbandið hlaut geysim- ikla athygli, eða um 26.000 áhorf. Það hefur verið stutt við bakið á okkur á svo margvíslegan hátt. Þegar Salómon fæddist bauðst ein kona í kirkjunni til að taka Sigurrós að sér í nokkra daga. Þetta var í kringum páskana og mikið af frídögum í leik- skólanum svo þetta létti mjög á okk- ur. Fólkið í kirkjunni er líka búið að koma með mat til okkar á kvöldin, vegna þess að við erum uppi á spít- ala til skiptis allan daginn og þá gefst enginn tími til að elda,“ segir Gunnar. „Síðan höfum við notið afar mik- ils andlegs stuðnings. Það er ótrúlegt að fylgjast með því hversu margir hugsa hlýtt til okkar. Í kirkjum úti um allan heim er beðið fyrir Salómon og Mikael,“ segir Svava. Styrktarsjóður Salómons Búið er að opna styrktarreikning fyrir ungu hjónin og börn þeirra, til að sjá til þess að þau þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur ofan á allt annað. „Það var systir mín sem fékk hugmyndina fyrst þegar Mik- ael greindist með hvítblæðið, síð- an notuðum við sama reikning fyrir Salómon,“ segir Gunnar og bætir við að sér hafi fundist lygilegt að fylgjast með viðbrögðum fólks. „Við erum ótrúlega þakklát fyrir allan stuðn- inginn.“ Byrjuð að undirbúa framtíð barnanna Gunnar Ingi og Svava María höfðu aðeins þekkst í þrjá mánuði þegar þau giftu sig. Hann var 21 árs gam- all og hún tvítug. Nú eru liðin sjö ár og ungu hjónin eru orðin þrem- ur börnum ríkari. „Ég var alltaf þessi skrýtni krakki sem vildi verða pabbi,“ segir Gunnar og hlær. „Mig er búið að langa að eignast börn al- veg frá því ég var 16 ára.“ Þau segjast afskaplega fegin að hafa drifið í því að eignast börn svona snemma. Nú séu þau ung og hafi orkuna sem þarf til að takast á við veikindi strákanna. Hvernig sjáið þið lífið fyrir ykkur eftir tíu ár? „Það hefur legið mjög á mér að undirbúa framtíð barnanna. Maður byrjar að hugsa allt öðruvísi þegar maður á börn sem glíma við svona sjúkdóma. Hvernig mun þeim vegna í samfélaginu? Heilinn minn virkar þannig að ég bý mig alltaf undir það versta sem mögulega gæti gerst. Þegar einhverfugrein- ingin kom byrjaði ég til dæmis að hugsa hvernig Mikael yrði sem full- orðinn maður. Mun hann geta talað, hve góður verður hann í félagsleg- um samskiptum? Og ef hann verð- ur öryrki hugsa ég hvað við getum gert til að bæta lífskjör hans. Síðan hugsa ég um Salómon. Hvað niður- stöður rannsóknanna munu leiða í ljós og hvernig framtíð hans verður,“ segir Gunnar Ingi. Hann bætir síðan við: „Við erum ung núna og eigum einhver ár eftir til að undirbúa framtíð barnanna. Ég vil ekki sjá börnin mín rétt ná endum saman á örorkustyrkjum. Við erum byrjuð að útbúa plan til að takast á við skuldir og annað eins. Ég vil ekki vera þessi dæmigerði Ís- lendingur og segja: „Þetta reddast!““ „Hvernig sem lífið kann að verða eftir tíu ár mun það allavega verða upptekið líf,“ segir Svava og slær á létta strengi. „Ég vonast til að geta séð öll börnin mín blómstra og komast á legg í lífinu.“ „Síðan væri nú ekki slæmt að vera búin að stofna aðra kirkju eft- ir tíu ár, kannski á Akureyri,“ segir Svava að lokum. Gunnar tekur und- ir það. Hægt er að styðja við bakið á Salómon Leví og Mikael Mána með því að greiða inn á styrktarsjóðinn. Reikningsnúmer: 0115-15-630309. Kennitala: 230189-2939. n www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110 Gómsætir veislubakkar, sem lífga upp á öll tilefni. Er kannski heilsuátak framundan? Ávextir í áskrift kosta um 550 kr. á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins er engin. Ávaxtaðu betur Út og og niðurupp suður H ö n n u n : I n g va r Ví ki n g ss o n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.