Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Qupperneq 15
Vikublað 9.–11. maí 2017 fréttir 15
ar, höfum við mikið til skellt ábyrgð
á ríkið og þegið pening frá því í stað-
inn. Í stað þess að vera byrði á rík-
inu reynum við að aðskilja okkur frá
því. Við reynum að vera blessun fyrir
fólkið í kringum okkur.“
Loftstofan er eina baptistakirkj-
an hér á landi þar sem predikun fer
fram á íslensku. Kenningar baptista
eru frábrugðnar þeim lúthersku að
ýmsu leyti. Mesti munurinn felst í
því að baptistar láta ekki skíra börn.
„Við skírum fólk þegar það tekur
trú, ef það ákveður allt í einu að ger-
ast kristið,“ segir Gunnar, en lögð er
áhersla á að ákvörðunin sé tekin á
eigin forsendum og sé meðvituð.
Varð kristinn við að hlusta á
hlaðvarp
Gunnar ólst upp í kristnu umhverfi
en trúin greip hann fyrst heljartök-
um þegar hann var 21 árs. „Ég var
að vinna í Kosti á þessum tíma. Einn
vinnudaginn hlustaði ég fyrir tilvilj-
un á hlaðvarp um kristna trú sem
fékk mig til að líta trúna allt öðrum
augum,“ segir Gunnar. „Næstu tvö
árin fórum við Svava að gæla við til-
hugsunina um að stofna eigin kirkju.
Í fyrstu virtist það vera ein heimsku-
legasta hugdetta sem við höfðum
fengið, en fljótt sáum við ekki fyrir
okkur að gera neitt annað.“
Fyrst stóðu þau aðeins fyr-
ir heimahópum og unnu að upp-
byggingu kirkjunnar samhliða hefð-
bundinni dagvinnu. „Ég hætti í Kosti
og byrjaði að vinna við markaðs-
setningu. Ég hélt að það yrði ekkert
mál að sinna hvoru tveggja. En síðan
varð vinnudagurinn tólf tímar, því ég
vann fjóra tíma á dag í kirkjunni og
átta í hinni vinnunni. Það gengur svo
sem á tímabili, en ekki til lengdar.“
Samstarf við bandaríska kirkju
Þegar Gunnar og Svava voru ör-
magna að reyna að koma á fót eigin
kirkju samhliða hefðbundinni dag-
vinnu varð þeim hugsað til hlað-
varpsins. Það hafði verið Gunnari
hugleikið frá því hann hlustaði á það
fyrst. Í því talaði maður frá Banda-
ríkjunum um litla kirkju í Virginíu-
ríki sem hafði sent fólk til Íslands í
leit að samstarfsaðilum. Gunnar og
Svava grófu upp hlaðvarpið tveim-
ur árum síðar og ákváðu að setja sig
í samband við fyrirlesarann. Hann
svaraði um hæl og gaf þeim sam-
band við annað fólk á vegum kirkj-
unnar sem var einmitt statt hérlend-
is á þeim tíma. „Þetta var ótrúleg
tilviljun. Okkur langaði að stofna litla
kirkju og þarna voru komnir aðilar
sem voru einmitt að leita að fólki til
þess,“ segir Svava. „Þau sögðu að við
værum fólkið sem þau hefðu beðið
eftir í átta ár!“
Baptistakirkjan úti í Virginíu heit-
ir Pillar Church of Dumfries. Hún
hefur skapað stórt tengslanet í kring-
um sig og rekur nú um 25 kirkjur
í Bandaríkjunum. Hún styður fólk
til að stofna kirkjur um allan heim,
meðal annars á Íslandi og í Jap-
an. „Þessi menning er skemmtilega
öðruvísi. Flestallar kirkjurnar eru
litlar og gefa ágóðann af starfi sínu til
annarra kirkna. Þessi starfsemi hef-
ur lagt fordæmi að kirkjunni okkar,“
segir Gunnar. „Mér finnst kirkjur og
kristin menning því miður oft snúast
um einhvern einn einstakling sem
á stórt hús og fullt af fínum bílum.
Það getur verið svo mikill peningur
falinn í kirkjurekstri. Kirkjurnar geta
orðið að gríðarstóru fyrirtæki sem
gætir aðeins eigin hagsmuna, en það
er ekki raunin hjá Pillar Church of
Dumfries,“ bætir hann við.
Kirkjan í Virginíu er á höttunum
eftir áhugasömu fólki um allan heim
til að slást í lið með sér. Forstöðu-
menn hennar voru því reiðubúnir að
styðja Gunnar og Svövu fjárhagslega
svo þau gætu komið á fót almenni-
legri kirkju. „Við bjuggumst alls ekki
við því að geta unnið svona fljótt við
þetta í fullu starfi. En samstarfið gekk
vonum framar. Kirkjan úti sendir
öðru hverju fólk til Íslands og við för-
um líka oft út og fáum að tala í kirkj-
unum þar,“ segir Svava.
Stuðningur á erfiðum tímum
Gunnar og Svava birtu myndband
á YouTube-rás sinni skömmu eft-
ir að Salómon kom í heiminn, þar
sem þau útskýrðu aðstæður sínar og
gerðu erfiðleikunum skil sem dunið
höfðu á. Myndbandið hlaut geysim-
ikla athygli, eða um 26.000 áhorf.
Það hefur verið stutt við bakið á
okkur á svo margvíslegan hátt. Þegar
Salómon fæddist bauðst ein kona í
kirkjunni til að taka Sigurrós að sér
í nokkra daga. Þetta var í kringum
páskana og mikið af frídögum í leik-
skólanum svo þetta létti mjög á okk-
ur. Fólkið í kirkjunni er líka búið að
koma með mat til okkar á kvöldin,
vegna þess að við erum uppi á spít-
ala til skiptis allan daginn og þá gefst
enginn tími til að elda,“ segir Gunnar.
„Síðan höfum við notið afar mik-
ils andlegs stuðnings. Það er ótrúlegt
að fylgjast með því hversu margir
hugsa hlýtt til okkar. Í kirkjum úti um
allan heim er beðið fyrir Salómon og
Mikael,“ segir Svava.
Styrktarsjóður Salómons
Búið er að opna styrktarreikning
fyrir ungu hjónin og börn þeirra,
til að sjá til þess að þau þurfi ekki
að hafa fjárhagsáhyggjur ofan á
allt annað. „Það var systir mín sem
fékk hugmyndina fyrst þegar Mik-
ael greindist með hvítblæðið, síð-
an notuðum við sama reikning fyrir
Salómon,“ segir Gunnar og bætir við
að sér hafi fundist lygilegt að fylgjast
með viðbrögðum fólks. „Við erum
ótrúlega þakklát fyrir allan stuðn-
inginn.“
Byrjuð að undirbúa framtíð
barnanna
Gunnar Ingi og Svava María höfðu
aðeins þekkst í þrjá mánuði þegar
þau giftu sig. Hann var 21 árs gam-
all og hún tvítug. Nú eru liðin sjö
ár og ungu hjónin eru orðin þrem-
ur börnum ríkari. „Ég var alltaf
þessi skrýtni krakki sem vildi verða
pabbi,“ segir Gunnar og hlær. „Mig
er búið að langa að eignast börn al-
veg frá því ég var 16 ára.“
Þau segjast afskaplega fegin
að hafa drifið í því að eignast börn
svona snemma. Nú séu þau ung og
hafi orkuna sem þarf til að takast á
við veikindi strákanna.
Hvernig sjáið þið lífið fyrir ykkur
eftir tíu ár?
„Það hefur legið mjög á mér að
undirbúa framtíð barnanna. Maður
byrjar að hugsa allt öðruvísi þegar
maður á börn sem glíma við svona
sjúkdóma. Hvernig mun þeim
vegna í samfélaginu? Heilinn minn
virkar þannig að ég bý mig alltaf
undir það versta sem mögulega
gæti gerst. Þegar einhverfugrein-
ingin kom byrjaði ég til dæmis að
hugsa hvernig Mikael yrði sem full-
orðinn maður. Mun hann geta talað,
hve góður verður hann í félagsleg-
um samskiptum? Og ef hann verð-
ur öryrki hugsa ég hvað við getum
gert til að bæta lífskjör hans. Síðan
hugsa ég um Salómon. Hvað niður-
stöður rannsóknanna munu leiða í
ljós og hvernig framtíð hans verður,“
segir Gunnar Ingi.
Hann bætir síðan við: „Við erum
ung núna og eigum einhver ár eftir
til að undirbúa framtíð barnanna.
Ég vil ekki sjá börnin mín rétt ná
endum saman á örorkustyrkjum.
Við erum byrjuð að útbúa plan til að
takast á við skuldir og annað eins.
Ég vil ekki vera þessi dæmigerði Ís-
lendingur og segja: „Þetta reddast!““
„Hvernig sem lífið kann að verða
eftir tíu ár mun það allavega verða
upptekið líf,“ segir Svava og slær á
létta strengi. „Ég vonast til að geta
séð öll börnin mín blómstra og
komast á legg í lífinu.“
„Síðan væri nú ekki slæmt að
vera búin að stofna aðra kirkju eft-
ir tíu ár, kannski á Akureyri,“ segir
Svava að lokum. Gunnar tekur und-
ir það.
Hægt er að styðja við bakið á
Salómon Leví og Mikael Mána með
því að greiða inn á styrktarsjóðinn.
Reikningsnúmer: 0115-15-630309.
Kennitala: 230189-2939. n
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar,
sem lífga upp á öll tilefni.
Er kannski heilsuátak
framundan?
Ávextir í áskrift kosta um
550 kr. á mann á viku
og fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
Ávaxtaðu betur
Út og
og niðurupp
suður
H
ö
n
n
u
n
: I
n
g
va
r
Ví
ki
n
g
ss
o
n