Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Blaðsíða 17
Vikublað 9.–11. maí 2017 KYNNING Snyrtivörur 17 FotIa.Is Fyrir um tveimur og hálfu ári opnaði sigríður Elfa Elídóttir netverslunina Fotia.is sem selur snyrtivörur. sigríður var þá í námi í rekstrarverkfræði. Þessi aukavinna með námi vatt hins vegar hratt upp á sig því versl- unin sló í gegn og við fyrirtækið starfa nú níu manns auk sigríðar og unnusta hennar. Fotia.is býður upp á fjölbreyttar snyrtivörur þar sem saman fara gæði og hagstætt verð. Flestar vörurnar koma frá Bandaríkjunum en einnig eru ein- hverjar framleiddar í Bretlandi. „Við leggjum áherslu á vandaðar snyrtivörur á hagstæðu verði og að verð sé svipað og erlendis. Þetta eru töluvert miklar gæðavörur og margar vörurnar eru umhverfis- vænar og vegan-vörur, í bland við annað. Við kappkostum að halda álagningu í hófi því ég vil hafa álagningu lága,“ segir sigríður. Vörumerkin eru um 15, úrvalið spannar alhliða snyrtivörur en í augnablikinu eru tvö bandarísk húð- vörumerki vinsælust: Mario Badescu og First aid Beauty. Þó að konur séu í meirihluta meðal viðskiptavina Fotia.is segir sigríður að karlar kaupi töluvert af húðvörunum. auk netverslunarinnar rekur fyrirtækið hefðbundna verslun í skeifunni 19, Reykjavík. Hún er opin virka daga frá kl. 12 til 18 og laugardaga frá 12 til 17. Mikið er að gera í versluninni í skeifunni og segir sigríður að viðskiptavinir taki þeim möguleika fagnandi að geta mætt á staðinn, prófað vörurnar og fengið ráðgjöf. sem fyrr segir eru sigríður og unnusti hennar með samtals níu manns í vinnu, þar af eru þrír í fullu starfi en aðrir í hlutastarfi. „starfs- fólkið stendur vaktina í versluninni í skeifunni auk þess að afgreiða allar pantanir í vefversluninni,“ segir sigríður. Fotia.is er sístækkandi fyrirtæki og ljóst er að þessi verslun höfðar mjög til fólks sem hefur áhuga á snyrtivörum og húðvörum. Gott er að kynna sér úrvalið á vefsvæðinu Fotia.is en Fotia.is er einnig á Face- book og öðrum samfélagsmiðlum. Netverslunin sem sló í gegn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.