Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Síða 17
Vikublað 9.–11. maí 2017 KYNNING Snyrtivörur 17
FotIa.Is
Fyrir um tveimur og hálfu ári opnaði sigríður Elfa Elídóttir netverslunina Fotia.is sem
selur snyrtivörur. sigríður var þá
í námi í rekstrarverkfræði. Þessi
aukavinna með námi vatt hins
vegar hratt upp á sig því versl-
unin sló í gegn og við fyrirtækið
starfa nú níu manns auk sigríðar
og unnusta hennar. Fotia.is býður
upp á fjölbreyttar snyrtivörur þar
sem saman fara gæði og hagstætt
verð. Flestar vörurnar koma frá
Bandaríkjunum en einnig eru ein-
hverjar framleiddar í Bretlandi.
„Við leggjum áherslu á vandaðar
snyrtivörur á hagstæðu verði og að
verð sé svipað og erlendis. Þetta
eru töluvert miklar gæðavörur og
margar vörurnar eru umhverfis-
vænar og vegan-vörur, í bland við
annað. Við kappkostum að halda
álagningu í hófi því ég vil hafa
álagningu lága,“ segir sigríður.
Vörumerkin eru um 15, úrvalið
spannar alhliða snyrtivörur en í
augnablikinu eru tvö bandarísk húð-
vörumerki vinsælust: Mario Badescu
og First aid Beauty. Þó að konur
séu í meirihluta meðal viðskiptavina
Fotia.is segir sigríður að karlar kaupi
töluvert af húðvörunum.
auk netverslunarinnar rekur
fyrirtækið hefðbundna verslun
í skeifunni 19, Reykjavík. Hún er
opin virka daga frá kl. 12 til 18 og
laugardaga frá 12 til 17. Mikið er
að gera í versluninni í skeifunni og
segir sigríður að viðskiptavinir taki
þeim möguleika fagnandi að geta
mætt á staðinn, prófað vörurnar
og fengið ráðgjöf.
sem fyrr segir eru sigríður og
unnusti hennar með samtals níu
manns í vinnu, þar af eru þrír í fullu
starfi en aðrir í hlutastarfi. „starfs-
fólkið stendur vaktina í versluninni
í skeifunni auk þess að afgreiða
allar pantanir í vefversluninni,“
segir sigríður.
Fotia.is er sístækkandi fyrirtæki
og ljóst er að þessi verslun höfðar
mjög til fólks sem hefur áhuga á
snyrtivörum og húðvörum. Gott er
að kynna sér úrvalið á vefsvæðinu
Fotia.is en Fotia.is er einnig á Face-
book og öðrum samfélagsmiðlum.
Netverslunin sem sló í gegn