Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Síða 2
2 Vikublað 16.–18. maí 2017fréttir B úast má við að enn eitt metið verði sett í komu farþega með skemmtiferðaskipum á næsta ári. Reiknað er með að um 128 þúsund farþegar komi til landsins með skemmtiferða­ skipum í ár en samkvæmt bókunum fyrir næsta sumar, 2018, má búast við að minnsta kosti 140 þúsund farþeg­ um þá. Markaðsstjóri Faxaflóahafna segir að þar á bæ finni fólk ekki fyrir samdrætti eða afbókunum þrátt fyrir sterkt gengi krónunnar. Hún viður­ kennir þó að hún heyri raddir þar sem lýst er áhyggjum af háu verðlagi hér á landi og hvaða áhrif það geti haft til langs tíma. Met slegin Von er á metfjölda skemmtiferða­ skipa til landsins í sumar og sam­ kvæmt upplýsingum frá Faxaflóa­ höfnum er búist við 153 skipum í hafnir þar. Reiknað er með 151 komu til Akureyrar og Grímseyjar saman og að sögn Péturs Ólafssonar, hafnarstjóra Hafnasamlags Norður­ lands, er nánast eingöngu um að ræða sömu skipin. Heildarfjöldi far­ þega sem koma til landsins í ár með skemmtiferðaskipum er um 128 þús­ und manns, fjölgun um 29 prósent frá fyrra ári en þá voru farþegarnir um 99 þúsund. Þá hefur skipakom­ um fjölgað en í fyrra komu 113 far­ þegaskip til landsins. Um sex pró­ sent þeirra erlendu ferðamanna sem koma til landsins eru farþegar á skemmtiferðaskipum. Stærri skip á leiðinni Nú þegar hefur 121 skip boðað komu sína til landsins árið 2018. Farþega­ fjöldinn verður í kringum 140 þús­ und manns, sem merkir að skipin sem koma á næsta ári eru almennt stærri en þau sem koma til lands­ ins í ár. „Við höfum verið að reyna að markaðssetja Ísland sem viðkomu­ stað fyrir smærri skip, því þau komast í fleiri hafnir,“ segir Erna Kristjáns­ dóttir, markaðsstjóri hjá Faxaflóa­ höfnum. „Þetta er ekki endanlega tala og eins og sjá má þá verða gest­ ir fleiri en í ár, þrátt fyrir færri skipa­ komur. Ég gæti alveg trúað að fleiri skip muni bóka komu sína, þótt ég geti ekki fullyrt það.“ Alls eru 16 hafnir hringinn í kring­ um landið aðilar að samtökunum Cruise Iceland, sem eru samtök aðila sem taka á móti skemmtiferðaskipum. Langstærstu hafnirnar í þessum efn­ um eru Sundahöfn, Akur eyri og Ísa­ fjarðarhöfn. Hins vegar koma skip víða við og segir Pétur Ólafsson, stjórnarformaður Cruise Iceland, það mjög jákvæða viðbót við rekstur hafnanna og ferðaþjónustuna. Þar sé verið að nýta innviði sem séu til stað­ ar á hverjum stað, án auka tilkostnað­ ar svo nokkru nemi. Engar afbókanir Erna segir að ekki hafi borið á af­ bókunum eða miklum óróa skipa­ fyrirtækjanna. „Ég hef svo sem tekið eftir því að fólk sé að hafa áhyggjur af verðlagi hér á landi. Það er hins vegar mikill áhugi á Íslandi og kom­ um hingað, fólk er að sækja í nátt­ úruna.“ Pétur tekur undir þetta en segir að grennslast hafi verið fyrir um gjaldskrárhækkanir. „Það bítur væntanlega eitthvað í, hátt gengi og hækkandi verðlag. Ég er viss um að ferðaþjónustur úti sem veita þessum skipum þjónustu sækja fast að ís­ lenskum ferðaþjónustufyrirtækjum um betra verð. Það er þó aðeins ann­ að með þessar skipakomur en flugið, menn kaupa mest af sínum aðföng­ um erlendis á skipunum og því hef­ ur verðlag hér ekki sömu áhrif og í fluginu.“ Sólmyrkvi dregur að Komur skemmtiferðaskipa eru vana­ lega bókaðar nokkuð fram í tímann, oft eitt til þrjú ár. Þó eru dæmi um enn lengri fyrirvara. Árið 2026 verð­ ur þannig almyrkvi á sól sem sjást mun einkar vel á norðurslóðum, af hafi og á vesturhluta Íslands, frá Suður nesjum og allt norður eftir yfir Vestfirði. Deildarmyrkvi verður sýni­ legur víðast hvar um landið. Erna segir að þegar hafi skemmtiferðaskip bókað komu sína í ágúst þetta ár, en sólmyrkvinn verður 12. ágúst. „Við höfum þegar fengið sex bókanir árið 2026.“ n Skemmtiferðaskip þegar bókað komu sína 2026 n Ekki ber á afbókunum vegna gengis n Enn fleiri farþegar á næsta ári Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is „Ég hef svo sem tekið eftir því að fólk sé að hafa áhyggjur af verðlagi hér á landi. Sífelld fjölgun Skemmtiferðaskipum sem koma til landsins hefur fjölgað jafnt og þétt. Metfjöldi er væntanlegur í sumar. Mynd SigtRygguR ARi Ásta Guðrún hættir „Í ljósi ágreinings milli mín og meirihluta þingflokks Pírata varðandi innra skipulag þing­ flokksins hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem þingflokksformað­ ur Pírata. Við vorum með ólíka sýn á hvert þingflokkurinn ætti að stefna og því held ég að það sé farsælast að annar taki við því starfi. Hlakka til að gerast óbreyttur þingmaður á ný, en þá gefst meiri tími til að vinna að þeim málefnum sem eru mér hugleikin,“ segir Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, á Facebook­síðu Pírata. Ásta Guðrún var skipuð þingflokksformaður flokksins þann 30. janúar síðastliðinn. Einar Brynjólfsson var þá skipaður varaþingflokksformaður og tekur hann við stöðu Ástu. Mistök í innheimtu félagsgjalda „Það var síðan fyrir mistök Sparisjóðsins sem sendi út tvo greiðsluseðla fremur en einn. Það verður leiðrétt á mánu­ daginn,“ segir Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalista­ flokk Íslands á Facebook­síðu flokksins. Tilefnið er óánægja nokkurra félagsmanna vegna innheimtu félagsgjalda sem hófst fyrir helgi. Sendir voru út tveir greiðsluseðlar á meðlimi flokks­ ins auk þess sem gjöldin voru send út sem hefðbundin krafa en ekki valgreiðslukrafa. „Það var samþykkt á félags­ fundi 1. maí að félagsgjöld yrðu 4.000 krónur á ári, en jafnframt að ekki yrði gengið eftir greiðsl­ um. Fólk teldist enn félagsmenn þótt það greiddi ekki félags­ gjaldið,“ segir Gunnar Smári enn fremur. Að hans sögn hafa örfáar kvartanir borist vegna þessa eða um 4–5 frá 1.400 meðlimum flokksins. „Við lifum það af,“ segir stjórnmálaleiðtoginn. Gunnar Smári þvertekur fyrir að seðlarnir beri vexti eða önn­ ur gjöld og að meðlimum sé í sjálfsvald sett hvort þeir greiði eða ekki. „Sósíalistaflokkurinn mun örugglega leita oftar til fé­ laga og almennings en aðrir flokkar. Hann mun alla vega ekki leita til útgerðarinnar og FL,“ segir Gunnar Smári. H ver Íslendingur notar að meðaltali 105 plastpoka á ári og við stöndum öðrum þjóð­ um langt að baki þegar kem­ ur að notkun fjölnota poka. Þó má geta þess að sala þeirra hefur tekið mikinn kipp að undanförnu þó betur megi ef duga skal. Átakinu „ Tökum upp fjölnota“ var hleypt af stokkunum á mánudag en það er á vegum Pokasjóðs, sem í tvo áratugi hefur haft tekjur af sölu plastpoka, en stefnir nú að því að leggja sjálfan sig niður. Af því tilefni klippti Björt Ólafsdóttir umhverfis­ ráðherra, ásamt fulltrúum aðildar­ verslana Pokasjóðs, á borða úr plastpokum. Ef borðinn hefði verið gerður úr þeim fjölda plastpoka sem landsmenn nota á einum degi næði hann frá Reykjavík til Selfoss. Bjarni Finnsson, stjórnar­ formaður Pokasjóðs, sagði þegar átakið hófst að veru­ lega hefði dregið úr sölu plastpoka hér á landi, eða allt upp í tuttugu prósent í sumum verslunum. Þó standi Ísland öðrum þjóð­ um langt að baki í notkun á fjölnota pokum. Benti Bjarni til dæmis á að í Frakklandi og Sviss væru það nær eingöngu ferðamenn sem keyptu plastpoka í verslunum. Þá hafi margar borgir og heilu ríkin inn­ leitt bann við notkun óniðurbrjótan­ legra plastpoka, ríki eins og Búrma, Rúanda og borg eins og Mexíkóborg, ein fjöl­ mennasta borg heims. Í tilkynningu sem send var út vegna átaksins kemur fram að frá upphafi hafi á bilinu einn til einn og hálfur milljarður plastpoka verið seldur á Íslandi frá því að sá fyrsti leit dagsins ljós árið 1968. Bent er á að fyrsti ís­ lenski plastpokinn eigi enn langt í land með að verða að moldu því það taki á bilinu 100 til 500 ár fyrir plastpoka að brotna niður í náttúrunni. n ritstjorn@dv.is 105 plastpokar á mann á ári Fyrsti íslenski plastpokinn á langt í land með að brotna niður í náttúrunni Plastpokar Notkun fjölnota poka hefur tekið kipp að undanförnu á Íslandi. Við stöndum öðrum þjóðum þó langt að baki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.