Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Qupperneq 6
6 Vikublað 16.–18. maí 2017fréttir Alþingi komið í mikla tímaþröng Alls óvíst er hvaða mál munu ná fram að ganga áður en Alþingi verður frestað en samkvæmt starfsáætlun þingsins verður það gert 31. maí næstkomandi. Alls eru 47 stjórnarfrumvörp óaf- greidd, þar af stór og umdeild mál á borð við frumvarp um jafnlaunavottun og rafsígarettur. Þá er fjármálaáætlun til næstu fimm ára óafgreidd og um hana ríkir óeining. Miðað við hversu umfangsmikil sú þingsályktun- artillaga er er vart að sjá að tími vinnist, að óbreyttu, til að ræða og afgreiða mikið annað. Alls eru fjórtán þingsálykt- unartillögur frá ríkisstjórninni ósamþykktar en í heild bíða um 80 tillögur afgreiðslu. Yfir eitt hundrað frumvörp eru óafgreidd og bíða sum hver 1. umræðu, þar á meðal tvö stjórnarfrumvörp. Aðeins eru eftir sex þingfunda- dagar af yfirstandandi þingi, auk eldhúsdags. Ekki enn rætt um breytingar Ekki hefur verið rætt um breytingar á starfsáætlun þings- ins og hefur Unnur Brá Konráðs- dóttir, forseti Alþingis, sagt að slíkt verði mögulega tekið til skoðunar að afloknum nefndardögum, það er að segja eftir daginn í dag. „Það liggur ekkert fyrir frá meirihlutanum hvaða mál verða sett í forgang, við heyrum bara misvísandi skilaboð úr fjölmiðl- um. Þingmenn meirihlutans virð- ast þar ósammála um hvaða mál eigi að leggja áherslu á og hverju eigi að fresta, samanber frum- varp um jafnlaunavottun. Það á þá eftir að ræða fjármálaáætlun sem stefnt er á að verði afgreidd út úr nefnd 18. maí næstkomandi og það er auðvitað geysilega um- fangsmikil umræða. Miðað við hvernig það mál er að teiknast upp þessa dagana þá vænti ég mikillar umræðu og ég fæ því ekki séð að það verði mikill tími fyrir umræðu um önnur mál,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formað- ur Vinstri grænna. Katrín bætir við að Vinstri græn hafi ekki hug á að afgreiða þingmál á einhverju færibandi út úr þingsölum rétt fyrir þinglok. „Við höfum ekki hugmynd um hvort stjórnarmeirihlutinn hefur áhuga á að klára þau mál sem búið er að leggja fram en við leggjum áherslu á að við erum ekki reiðubúin í að afgreiða stór mál á einhverjum hlaupum. Al- þingi hefur nú brennt sig nógu oft á slíku.“ Ljóst er að titrings er farið að gæta meðal þingmanna meirihlutans sökum þess hve hægt hefur gengið að þoka mál- um áfram. Þannig nefndi Nichole Leigh Mosty, varaformaður alls- herjar- og menntamálanefndar, það á dögunum í fjölmiðlum að hún gæti vel hugsað sér að frum- varpi um jafnlaunavottun yrði frestað til hausts. Þingmenn Við- reisnar brugðust ókvæða við, að því er heimildir DV herma, og gerðu það ljóst að ekkert samkomulag yrði um slíkt. Þá hefur vinna í nefndum þingsins gengið óhemju hægt, svo sem fjallað er um annars staðar í blað- inu. Því er afar ólíklegt, þó ekki sé meira sagt, að takast megi að afgreiða öll þau mál sem ríkis- stjórnin hefur lagt fram, hvað þá þingmannafrumvörp. Silja telur að ungum og einstæðum mæðrum sé mismunað á leigumarkaðnum N ú hef ég fengið að skoða nokkrar íbúðir og í hvert skipti sem ég fæ „því mið- ur völdum við aðra“ þá brotna ég niður. Ég brotna niður fyrir framan börnin mín og þau skilja ekkert af hverju enginn vill lána okkur íbúðina sína,“ seg- ir Silja Pálsdóttir, tveggja barna móðir, en hún hefur undanfarna þrjá mánuði leitað logandi ljósi að leiguíbúð fyrir sig og börnin sín, en án árangurs. Silja er með greiðslu- getu upp á allt 200 þúsund krónur á mánuði, meðmæli og fær um að reiða fram tryggingu en kveðst gruna að leigusalar setji það fyrir sig að hún sé ung og einstæð móðir. Hún sér fram á að enda á götunni í byrjun næsta mánaðar og segir verst að sjá óvissuna bitna á börn- unum. Hátt í 130 manns hafa deilt átakan legri færslu Silju á Facebook þar sem hún lýsir þeirri örvæntingu sem blasir við fjölskyldunni. „Börnin hafa verið að koma með mér að skoða, enda eru þau nán- ast alltaf með mér. Í þessum töluðu orðum græt ég, og ég grét þegar ég þurfti að útskýra fyrir dóttur minni af hverju ég væri að gráta, að við hefðum ekki fengið íbúðina sem við skoðuðum í gær. Ég grét enn meira þegar hún spurði, mjög leið „vor- um við ekki nógu stillt?“ Eru þetta áhyggjur sem 4 og 5 ára börn eiga að þurfa að vera með? Auðvitað á ég ekki að leyfa mér að brotna niður fyrir framan börnin. En við verðum heimilislaus eftir tvær vik- ur þannig að ég ræð ekki við mig,“ ritar Silja í færslunni og bætir við: „Ég kem vel fram. Ég get borgað tryggingu. Ég er reyklaus með engin gæludýr. Ég er snyrtileg. Ég borga alltaf leigu. Ég ber virðingu fyrir eigninni. Ég er traustur leigj- andi. Ég hef leigt sömu íbúð hjá ókunnugu fólki í 5 ár! Ég er ung og ég er einstæð. Ég er farin að halda að seinasta setningin hér fyrir ofan sé mestmegnis ástæðan fyrir því að við erum enn heim- ilislaus. Að vera ung og einstæð gerir mig ekki að slæmum leigj- anda.“ Ekki traust- vekjandi að vera ung og einstæð Silja og börnin hennar tvö, fjögurra og fimm ára hafa búið í leiguíbúð í Grafarvogi seinustu fimm ár en þann 1. mars síðastliðinn var Silju tilkynnt að setja ætti íbúðina á sölu og fékk hún þriggja mánaða uppsagnar- frest. Við tók leit að leiguíbúð í hverf- inu, svo börnin gætu áfram gengið þar í leikskóla og síðar skóla. Silja gerir ráð fyrir að hafa sent fyr- irspurnir og skoð- að hátt í 20 íbúðir síðan þá. Hún segir hreinlega ómögu- legt að finna íbúð í hverfinu. „Það er náttúr- lega ekki margar íbúðir að fá undir 200 þúsundum á mánuði. Og oft hef ég engin svör fengið. Eða þá að íbúðin er of dýr, eða ég verð ekki fyrir valinu. Það virðist ekki vera nógu traustvekjandi að vera ung og einstæð líka.“ Silja hefur undanfarið stundað fullt nám en fengið námsstyrk og því verið með fastar tekjur í hverj- um mánuði. Þá hefur hún verið í fullri vinnu á sumrin og því aldrei átt í vandræðum með að greiða leigu. „Ég reyndi að fá eina íbúð í gegnum sambönd, talaði við félaga minn sem þekkti til. Hann heyrði í eigendunum og þau voru víst eitt- hvað skeptísk vegna þess að ég væri einstæð,“ segir Silja. Hún segir verst að sjá óvissu- ástandið bitna á börnunum, en dóttir hennar hefur áður glímt við kvíðaköst sem tekist hefur að halda niðri. „En svo í morgun þegar ég fór með hana á leikskólann þá grét hún og nánast gargaði þegar ég skildi hana eftir. Það hefur ekki gerst í langan tíma og það er ekki ósenni- legt að dagurinn í gær hafi tekið svona á. Hún er enn mjög viðkvæm og hefur áhyggjur af öllum og öllu í kringum sig, þannig að þetta mun hafa áhrif á hana. Það er alveg bók- að. Hún er til dæmis mjög næm á það þegar mér líður illa. Í gær, þegar hún spurði hvort þau hefðu ekki verið nógu stillt þegar við fór- um að skoða, þá braut það í mér hjartað. Það sagði mér svo mikið. Það er eins og henni finnist þetta vera þeim að kenna. Þau eru fárán- lega ljúf og góð börn og eiga ekki að þurfa að upplifa þetta.“ Dæmi um að leigusalar banni börn Engar opinberar tölur eru til um hversu hátt hlutfall einstæðra for- eldra er á leigumarkaði. Í samtali við DV segir Ásta Hafberg, talskona Leigjendasamtakanna, að saga Silju sé svo sannarlega ekkert eins- dæmi. „Þetta er bara það sem ein- kennir leigumarkaðinn í dag, hvort sem það eru einstæðar mæður, fjölskyldufólk, öryrkjar eða aðrir. Fólk er komið á stað þar sem því eru engir vegir færir, nema kannski að flytja í tjald eða í húsbíl í Laugar- dalinn. Ástandið hefur hríðversnað undanfarna mánuði og það er al- veg rétt að tala um neyðarástand.“ Leigusalar í dag geta oft og tíðum valið úr hundruðum um- sókna og eru þeir því færir um að setja strangar kröfur. Til að mynda er fátítt að leiguíbúðir leyfi gæludýr og aðspurð kveðst Ásta jafnvel hafa heyrt dæmi þess að leigusalar setji barnleysi sem skilyrði. „Það er auðvitað mjög undarlegt að setja börn og gæludýr í sama flokk. Og það er bagalegt að heyra að leigusalar geti sett fram alls kyns kröfur, til dæmis varðandi sakavott- orð, á meðan leigjendurnir geta ekki krafist neins til baka. Þeirra staða er orðin afskaplega veik.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is „Þau skilja ekkert af hverju enginn vill lána okkur íbúðina sína“ Verst að sjá óvissuna bitna á börnunum „Þau eru fáránlega ljúf og góð börn og eiga ekki að þurfa að upplifa þetta.“ „Ég reyndi að fá eina íbúð í gegnum sambönd, talaði við fé- laga minn sem þekkti til. Hann heyrði í eigendun- um og þau voru víst eitt- hvað skeptísk vegna þess að ég væri einstæð. Hefur leitað að húsnæði í þrjá mánuði „Ég er ung og ég er einstæð. Ég er farin að halda að seinasta setningin hér fyrir ofan sé mestmegnis ástæðan fyrir því að við erum enn heimilislaus.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.