Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Side 8
8 Vikublað 16.–18. maí 2017fréttir
G
ríðarlegur seinagangur
er á afgreiðslu mála í
fastanefndum Alþingis og
má segja að sumar nefndir
séu nálega í algjöru frosti.
Nefndirnar átta hafa aðeins skilað af
sér áliti eða álitum í 24 málum það
sem af er ári en 126 málum hefur
verið vísað til þeirra. Það þýðir að 81
prósent þeirra mála sem nefndirnar
hafa fengið til umfjöllunar er enn
óafgreitt. Ekki er hægt að kenna því
um að mál hafi borist nefndunum
seint nema í sumum tilfellum, fjöl-
mörg dæmi eru um óafgreidd mál
sem komu inn á borð þeirra í febrúar
og jafnvel í janúar.
Frumvörpum sem lögð eru fram
á Alþingi, sem og þingsályktunar-
tillögum, skal vísa til einhverrar af
átta fastanefndum þingsins til með-
ferðar eftir fyrstu umræðu. Almennt
eru vinnubrögð þau að nefndin
tekur mál til umfjöllunar og óskar, í
einhverjum tilfellum, eftir umsögn-
um um þau. Þá eru að jafnaði gefn-
ar tvær til þrjár vikur til að skila inn
slíkum umsögnum. Almenningi og
öðrum þeim sem ekki voru beðnir
um umsagnir er sömuleiðis frjálst að
skila umsögnum til nefnda um mál
að eigin frumkvæði. Nefndir fara
síðan yfir umsagnir um viðkomandi
mál og fjalla um þau á fundum. Þær
skila síðan nefndaráliti og gengur þá
málið aftur til umræðu í þingsölum.
Hugsanlega er málinu vísað aftur til
nefndar eftir það en í einhverjum til-
vikum er það afgreitt með atkvæða-
greiðslu í þinginu.
Funda tvisvar í viku
Fastanefndirnar eru því sá vettvang-
ur þar sem vinna við löggjöf og til-
lögur fer að miklu leyti fram, og sem
tryggir aðkomu allra þingflokka að
málum. Að jafnaði funda nefnd-
irnar tvisvar sinnum í viku
og er fundartími ein og hálf
klukkustund. Fundir eru þó
gjarnan settir á oftar, eftir
þörfum, og auk þess eru
sérstakir nefndardagar
settir á í starfsáætlun Al-
þingis. Slíkir dagar voru
settir á um miðjan mars
síðastliðinn og svo aftur
núna en nefndardagar klárast í dag.
Mjög misjafnt er hversu mörg mál
hver fastanefnd fær inn á sitt borð,
sem og hversu umfangsmikil þau
eru. Sem dæmi má nefna að fjár-
laganefnd fær að jafnaði fá mál inn
til sín en þau eru gjarnan flókin og
umfangsmikil, líkt og fjárlagafrum-
varp. Aðrar nefndir fá hins vegar að
jafnaði fleiri mál inn á sitt borð.
Hefur beðið afgreiðslu
frá 1. febrúar
Alls hefur 21 máli verið vísað til alls-
herjar- og menntamálanefndar á
þessu ári. Nefndin hefur aðeins af-
greitt fjögur mál með nefndaráliti
og eru tvö þeirra orðin að lögum frá
Alþingi. Sautján mál eru hins vegar
enn til umræðu eða meðferðar inn-
an nefndarinnar. Það mál sem lengst
hefur verið til meðferðar er þingsá-
lyktunartillaga frá Vilhjálmi Bjarna-
syni um minningu tveggja alda
afmælis Jóns Árnasonar. Til-
lagan kom til nefndar-
innar 1. febrúar og
hefur því leg-
ið óafgreidd hjá
nefndinni í
þrjá og hálfan
mánuð. Fjöldi
mála kom inn
á borð nefndar-
innar í febrúar
og mars og því
liðinn drjúgur
tími án þess
að þau hafi
verið afgreidd.
Ekki eitt mál
afgreitt
Ekkert mál hefur
verið afgreitt
frá atvinnu-
veganefnd á árinu en átta málum
hefur vísað til hennar. Frumvarp
um útboð viðbótarþorskkvóta kom
á borð nefndarinnar 2. febrúar,
sendar voru út 20 umsagnarbeiðn-
ir en engin innsend erindi bárust.
Þrátt fyrir þetta er frumvarpið enn til
meðfara hjá nefndinni. Síðasta mál
sem nefndin fékk til afgreiðslu kom
inn á borð hennar 4. apríl.
Þokast lítið áfram
Efnahags- og viðskiptanefnd hefur
fengið 25 mál inn á borð hjá sér á ár-
inu. Nefndin hefur afgreitt nefndar-
álit í sex málum og þar af hafa fjög-
ur verið afgreidd sem lög frá Alþingi.
Frumvarp um brottfall laga um líf-
eyrissjóð bænda kom inn á borð
nefndarinnar 26. janúar en er enn
til umræðu og meðferðar. Um er að
ræða stjórnarfrumvarp, lagt fram af
fjármála- og efnahagsráðherra, sem
þokast svona hægt. Átta af þeim
málum sem enn eru óafgreidd
komu inn á borð nefndar-
innar í febrúar.
Umfangsmikil
mál á borði fjár-
laganefndar
Aðeins tvö mál
hafa komið
inn á borð
fjárlaganefnd-
ar, sem ekki
er óvanalegt
enda sjaldnast
sem fjöldi mála
ratar inn á borð
þeirrar nefndar.
Annars vegar
er það þings-
ályktunartillaga um fjármálastefnu
2017 til 2022 sem kom inn á borð
nefndarinnar 26. janúar, var af-
greidd með nefndaráliti 22. mars og
samþykkt sem ályktun Alþingis 6.
apríl. Hins vegar er um að ræða fjár-
málaáætlun 2018 til 2022, verulega
umdeilt mál sem kom inn á borð
nefndarinnar 7. apríl. Það er enn til
umræðu og meðferðar.
Eiga níutíu prósent mála eftir
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
hefur fengið til sín tíu mál á árinu.
Öll eru þau, nema eitt, enn til með-
ferðar nefndarinnar. Hið eina sem
hefur fengið afgreiðslu er þings-
ályktun um fjölgun ráðuneyta, sem
kom inn á borð nefndarinnar 26.
janúar. Nefndin afgreiddi það mál
með nefndaráliti 20. mars og tveimur
dögum síðar var það afgreitt sem
ályktun Alþingis. Öll hin málin, utan
eitt, voru lögð fram í marsmánuði.
Eitt búið, 21 eftir
Til umhverfis- og samgöngunefndar
hefur verið vísað 22 málum, og hefur
auðnast að skila nefndaráliti í einu
þeirra. Það er fyrsta málið sem vísað
var til nefndarinnar, stjórnarfrum-
varp um farþega- og farmflutninga.
Því máli var vísað til nefndar 9. febr-
úar og skilaði nefndin áliti sínu 25.
apríl. Málið gekk til annarrar um-
ræðu, var vísað aftur til nefndar 4.
maí síðastliðinn, og skilaði nefndin
aftur áliti á því í gær. Önnur mál eru
enn hreyfingarlaus í nefndinni, þar
á meðal ellefu mál sem komu inn á
hennar borð í mars.
Besta tölfræðin í
utanríkismálanefnd
Utanríkismálanefnd hefur haft til
meðferðar þrettán mál á þessu ári og
hefur nefndin skilað áliti í níu þeirra
mála. Í öllum þeim tilvikum, utan
einu, er um að ræða breytingar á
viðaukum EES-samningsins, full-
gildingu fríverslunarsamnings
milli EFTA-ríkjanna og Georgíu.
Hin málin komu öll til meðfara
hjá nefndinni 3. mars og skilaði
hún áliti í þeim öllum 9. maí síð-
astliðinn. Tvö mál hafa verið af-
greidd frá Alþingi, áðurnefndur
fríverslunarsamningur og ein álykt-
un sem snýr að breytingum á EES-
samningnum. Enn er óafgreitt mál
sem kom inn á borð nefndarinnar
31. janúar.
Sjö mál óafgreidd frá febrúar
Velferðarnefnd hefur skilað áliti á
tveimur þeirra 25 mála sem vísað
hefur verið til hennar. Annars vegar
var um að ræða leiðréttingu á lög-
um um almannatryggingar sem
keyrð var hratt í gegn. Málið
kom á borð nefndarinnar 22.
febrúar, var afgreitt með
áliti 24. sama mánað-
ar og samþykkt sem lög
28. febrúar. Hins vegar
skilaði nefndin áliti 12.
maí síðastliðinn, á máli
sem barst henni 31.
janúar. Önnur mál eru
óafgreidd, þar af sjö
mál frá því í febrúar. n
Algjört frost í
nefndum Alþingis
n Atvinnuveganefnd ekki afgreitt eitt einasta mál n Hreyfast ekki mánuðum saman
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Í hlutlausum gír
Nefndir Alþingis hafa
ekki afkastað miklu,
það sem af er ári.
Mynd SigtRyggUR ARi
Ekkert mál afgreitt Páll Magnússon er
formaður atvinnuveganefndar, sem ekki
hefur skilað áliti í neinu þeirra átta mála
sem komið hafa til hennar meðfara.
gengur best Utanríkis-
málanefnd, undir forystu
Jónu Sólveigar Elínar-
dóttur, stendur sig best
fastanefnda Alþingis þegar
kemur að afgreiðslu mála.