Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Side 10
10 Vikublað 16.–18. maí 2017fréttir
M
agnús Hörður Jónsson er
einn þeirra mörgu sem
hafa svipt sig lífi í blokkum
Öryrkjabandalagsins við
Hátún 10. Hann var ekki
búinn að búa þar lengi þegar hann
svipti sig lífi. Honum var gert að losa
sig við hundinn sinn, Ívan, þegar
hann flutti þangað. Systir hans,
Áslaug Kolbrún Jónsdóttir, segir í
samtali við DV að stefna húsfélagsins
hvað varðar dýrahald eigi stóran þátt
í því að hann hafi framið sjálfsvíg.
Í helgarblaði DV var fjallað um
íbúa sem svipti sig lífi síðastliðið
miðvikudagskvöld með því að
kasta sér út um glugga á einni af
efstu hæð einnar blokkarinnar í
Hátúni. Mörg dæmi eru um sjálfsvíg
íbúa í blokkunum við Hátún 10.
Núverandi og fyrrverandi íbúar í
blokkunum segjast upplifa mikla
fordóma og forðast jafnvel að
gefa upp heimilisfang sitt þar sem
viðmót fólks gagnvart þeim mótist
mjög af því. Einn íbúi segir að Hátún
sé hinn nýi Kleppur hvað fordóma
varðar, sem auki á félagslega
einangrun öryrkja. Fyrrverandi
íbúi segir blokkirnar tímaskekkju í
nútímasamfélagi.
Mikil umræða hefur verið
um gæludýrahald íbúa í
húsnæði Brynju, hússjóðs
Öryrkjabandalagsins, en bann
við dýrahaldi vakti hörð viðbrögð
fyrir um tveimur árum. Íbúar eru
þó margir enn með dýr sem þeir
segja þeim lífsnauðsynlegt. Dýrin
gefi þeim gríðarlega mikið og
elski þau skilyrðislaust, annað en
fordómafullt fólk utan samfélagsins
við Hátún. Ekki voru þó allir svo
heppnir.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
bæði fyrir og eftir helgi hefur
framkvæmdastjóri húsfélagsins,
Björn Arnar Magnússon, ekki viljað
veita DV viðtal.
Óaðskiljanlegir fram að Hátúni
Magnús Hörður Jónsson svipti sig
lífi árið 2009 en hann hafði búið
í Hátúni um stutt skeið. Hann
starfaði lengst af sem sjómaður
en var auk þess mikill listamaður.
Allt lék í höndunum á honum og
hann mótaði svokallaðar „hillbilly“
styttur, málaði málverk og bjó til
skartgripi. Hann var jafnframt
Framdi sjálfsvíg
eftir að þurfa að
losa sig við hundinn
n Dýrin veita íbúum í Hátúni ást í skugga fordóma n Forðast að gefa upp heimilisfang sitt
Hjálmar Friðriksson /
Sigurður Mikael Jónsson
hjalmar@dv.is / mikael@dv.is
Svarar ekki Björn Arnar Magnússon,
framkvæmdastjóri Brynju, hefur ekki svarað
ítrekuðum símhringingum.
Auðgandi áhrif dýra Hallgerður Hauks-
dóttir, formaður Dýraverndarsambands
Íslands, segir afstöðu Brynju grimmileg.
„
Ivan var
það eina
sem hélt
lífinu í
honum
Magga
12. maí 2017