Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Síða 16
16 Vikublað 16.–18. maí 2017fréttir „Mikið áhyggjuefni fyrir almenning“ Formaður Læknafélags Reykjavíkur óttast að nýtt greiðsluþátttökukerfi verði til þess fólk neiti sér um læknisheimsóknir M ér finnst mjög óskynsam­ lega að þessu staðið,“ segir Arna Guðmundsdóttir, inn­ kirtlalæknir og for maður Læknafélags Reykjavíkur. Arna gagnrýnir nýja greiðsluþátttöku­ kerfið vegna heilbrigðisþjónustu harð­ lega. Hún harmar þá kostnaðaraukn­ ingu sem breytingunum fylgir fyrir fólk sem þarf sjaldan að leita til lækn­ is. Hún segir að nýja greiðsluþátttöku­ kerfið eigi eftir að bitna mest á ungu og tekjulágu fólki. Á sama tíma og Arna fagnar því að þeir einstaklingar sem áður greiddu mest fyrir læknis­ þjónustu borga nú töluvert minna hafi það verið undarleg ákvörðun að velta kostnaðinum yfir á þá sem þurfa minna á þjónustunni að halda. Það eigi eftir að reynast heilbrigðiskerfinu mun dýrara þegar uppi er staðið. Greiðsluþakið of hátt Í dag er greiðsluþakið, fyrir fullgreið­ andi skattborgara í nýja greiðslu­ þátttökukerfinu vegna heilbrigðis­ þjónustu, 24.600 krónur fyrir hvern almanaksmánuð. Kostnaðarþakið fyrir almenning er í dag 70 þúsund krónur. Þá hafa blóðtökugjöld einnig hækkað en í dag borga fullgreiðandi einstaklingar 2.500 krónur fyrir hverja blóðprufu. Sá kostnaður, sem hækk­ aði einnig þann 1. maí síðastliðinn um 100 prósent, leggst ofan á lækniskostn­ aðinn. Sálfræðingar og tannlæknar eru ekki inni í nýja greiðsluþátttöku­ kerfinu. Þá er ótalinn lyfjakostnaður sem getur hlaupið á tugum þúsunda áður en sjúkratryggingar Íslands gefa út lyfja skírteini. Kostnaður vegna hjálpartækja fellur heldur ekki undir greiðsluþakið. „Auðvitað er þetta spurning um hvernig fólk forgangsraðar. Ungt fólk, sem er til dæmis að koma yfir sig þaki, með ung börn eða litlar tekjur, finn­ ur langmest fyrir þessum hækkunum. Það á einfaldlega ekki eftir að fara til læknis nema erindið sé mjög brýnt,“ segir Arna og bætir við að hingað til hafi Ísland verið framarlega þar sem við höfum verið dugleg að fyrirbyggja alvarleg veikindi fólks með langvinna sjúkdóma. „Við þurfum að passa okk­ ur á að missa ekki boltann í forvörn­ um. Það er einmitt það sem þetta nýja greiðsluþátttökukerfi gæti leitt til.“ Flækjustigin of mörg Að sögn Örnu munu þeir sem fara til sérfræðinga tvisvar til þrisvar á ári aldrei ná þakinu fyrir fullgreiðandi sjúklinga sem er 70 þúsund krónur. Í dag borgar þessi hópur 90 prósent af læknisheimsókninni sjálfur. Þá segir Arna að því miður eigi hópur fólks eftir að hætta við næstu læknis­ heimsókn þegar það fær fyrsta reikn­ inginn. „Við erum að vinna mikið í að fyrirbyggja fylgikvilla langvinnra sjúk­ dóma. Stór hluti af því sem við ger­ um er að passa upp á að fólk fái ekki alvarlega fylgikvilla sem hægt er að fyrirbyggja með góðri læknisþjónustu og þéttu eftirliti. Það er miklu verð­ mætara fyrir samfélagið því þegar fólk veikist alvarlega þá getur það orðið mjög dýrt, bæði fyrir einstak­ linginn og samfélagið.“ Arna segir almenning enn ekki vera búinn að átta sig á þessari miklu hækkun. „Við eigum eftir að sjá hver ruðningsáhrifin verða. Þegar þú ert kominn upp í þak í einum mánuði þá getur þú farið ókeypis til lækna það sem eftir lifir mánaðarins. Fólk, sem hittir tvo, þrjá, eða fleiri sérfræðinga á ári ætti því að raða læknisheim­ sóknunum upp þannig að það hitti alla sérfræðingana í sama mánuðin­ um. Fólk mun læra þetta með tím­ anum en það er ekkert sjálfgefið að fá tíma í sama mánuði hjá ákveðnum sérfræðilæknum á svipuðum tíma. Þetta er eitt flækjustigið af mörgum í nýja kerfinu.“ Enginn skilur nýja kerfið Arna segir að þeir ráðamenn þjóðar­ innar, sem samþykktu nýja greiðslu­ þátttökukerfið, hafi gengið of langt. „Þetta var auðvitað með ráðum gert, að þeir sem eru alvarlega veikir greiði minna á kostnað þeirra sem fara sjaldnar til læknis og það er gott.“ Rétt­ ast hefði þó verið að setja þak á veiku­ stu sjúklingana og láta skattgreiðend­ ur alla sjá um að borga mismuninn. „Greiðsluþátttökukerfið, eins og það er núna, gæti með þessu móti orðið margfalt dýrara fyrir samfélagið til lengri tíma litið.“ Þeir sem, til þessa, hafa borgað mest fyrir heilbrigðisþjónustu eru lík­ lega krabbameinssjúklingar. „Þetta er ekki stór hópur á heildina litið en krabbameinssjúklingar eiga það sameiginlegt að vera skjólstæðingar Landspítalans. Auðvitað hefðu þeir átt að fá einhvers konar fríkort, þegar ákveðinni upphæð er náð, í stað þess að velta kostnaðinum yfir á aðra sjúk­ linga. Það hefði einnig komið í veg fyrir allt þetta ógagnsæi og flækjustig í kerf­ inu sem fáir eða enginn virðist skilja til fulls, en getur kostað stórar upphæðir ef það leiðir til þess að fólk neiti sér um læknisaðstoð. Að lokum segir Arna: „Eins og staðan er í dag hefur verið dregið úr tryggingarverndinni fyrir meirihluta sjúklinga, sem er mikið áhyggjuefni fyrir almenning.“ n Óttast að fleiri fresti læknisheimsóknum Þann 1. maí síðastliðinn gekk í gildi nýtt greiðsluþátttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu. Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hefur lýst yfir miklum áhyggjum vegna aukins kostnaðar fólks við að sækja sér heilbrigðisþjónustu. Að mati sambandsins er mikil hækkun líkleg til að fjölga þeim sem neita sér um heilbrigðisþjónustu enn frekar og mun þetta koma verst niður á konum og fólki í lægstu tekjuhópum samfélagsins. Kostnaður vegna geðheilbrigðisþjónustu vekur sérstakar áhyggjur ASÍ. „Alþingi verður að bregðast við þessari alvarlegu stöðu og tryggja aukna fjármuni inn í nýja kerfið og þar með jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag eins og lög um sjúkratryggingar kveða á um.“ HEimild: ASÍ Meiri kostnaður fyrir flesta Nýja greiðsluþátttökukerfinu er ætlað að tryggja sjúklinga gegn of háum kostnaði vegna læknisþjónustu, rannsókna og þjálfunar með greiðsluþátttökuþaki. Þakið verður 70.000 þúsund krónur fyrir almenna sjúklinga og 45.500 krónur fyrir lífeyrisþega og börn. Börn með sama fjölskyldunúmer samkvæmt skilgreiningu Þjóðskrár Íslands teljast sem einn einstaklingur í greiðsluþátttökukerfinu. Fyrir þá sjúklinga sem þurfa mikla þjónustu reglulega mun kostnaðurinn í flestum tilfellum lækka og við gildistöku nýja kerfisins reiknast það sem greitt hefur verið fyrir heilbrigðisþjónustu undangengna fimm mánuði inn í nýtt greiðsluþátttökuþak. En fyrir flesta aðra mun kostnaðurinn hækka. Til viðbótar við þennan kostnað kemur síðan með- al annars kostnaður vegna lyfja, tannlæknaþjónustu, sálfræðiþjónustu og hjálpartækja. HEimild: ASÍ Margir neita sér um læknis- þjónustu vegna kostnaðar Mun fleiri fresta læknisheimsóknum á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum vegna kostnaðar. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands, sem byggja á evrópskri heilsufarsrannsókn fyrir árið 2015, neituðu um 8 prósent þeirra sem töldu sig þurfa á læknisþjónustu sér um hana vegna kostnaðar. Í rannsókninni kemur fram að ekkert samband er milli tekna og þarfarinnar fyrir heilbrigðisþjónustu, að geðheilbrigðisþjónustu undanskilinni en þörf fyrir hana minnkar með hækkandi tekjum. Alls taldi um fimmtungur aðspurðra sig þurfa á geðheilbrigðis- þjónustu að halda en þriðjungur taldi sig ekki hafa ráð á henni. Þeir tekjulægri hafa mun síður ráð á heilbrigðisþjónustu en þeir tekjuhærri og fleiri konur neita sér um þjónustuna en karlar vegna kostnaðar. margir telja að nýja greiðsluþátt- tökukerfinu hafi mistekist að tryggja sjúklinga gegn of háum kostnaði Til viðbótar kemur síðan, meðal annars, kostnaður vegna lyfja, tannlækna- þjónustu, sálfræðiþjón- ustu og hjálpartækja. mynd SiGtryGGur Ari margir kvensjúkdómalæknar segja nýja kerfið bleikan skatt á konur Þess eru dæmi að konur þurfi að borga allt undir 20 þúsund krónur fyrir heimsókn til kvensjúkdóma- læknis með skoðun. Það er töluverð hækkun frá því sem áður var. Arna Guðmundsdóttir Inn- kirtlalæknir og formaður Læknafé- lags Reykjavíkur. mynd HEiðA HElGAdóttir Kristín Clausen kristin@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.