Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Qupperneq 17
Vikublað 16.–18. maí 2017 fréttir - erlent 17 Þetta er ríkasta fólkið í Evrópu Amancio Ortega ber höfuð og herðar yfir aðra í úttekt Sunday Times B reska blaðið Sunday Times birti á dögunum árlegan lista yfir ríkustu einstaklinga heims, en sjónum var einkum beint að auðmönnum í Bretlandi. Eins og DV fjallaði um var Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir í 89. sæti yfir ríkustu einstaklinga Bretlands með eignir metnar á 1,45 milljarða punda, rétt tæplega 200 milljarða króna. Í blaðinu var einnig fjallað um aðra milljarðamæringa á meginlandi Evrópu. Hér að neðan má sjá stutta samantekt yfir ríkustu Evrópubúana samkvæmt úttekt Sunday Times. n 1 Amancio OrtegaAuðæfi: 8.764 milljarðar Aldur: 81 Spánverjinn Amancio Ortega ber höfuð og herðar yfir aðra Evrópubúa á lista Sunday Times. Auðæfi hans eru talin vera tæplega tvöfalt meiri en auðæfi næsta manns á listanum. Ortega er stofnandi Inditex-fata- fyrirtækisins sem er einna best þekkt fyrir eignarhald á verslunarkeðjunni Zöru. 2 Bernard ArnaultAuðæfi: 4.858 milljarðar Aldur: 68 ára Arnault er stjórnarformaður og innsti koppur í búri hjá hjá franska fyrirtækinu LVMH, sem á fjölmörg fyrirtæki sem framleiða lúxusvarning. Meðal þeirra má nefna tískufyr- irtækið Louis Vuitton auk kampavínsframleiðandans Moët og Chandon og koníaks- framleiðandans Hennessy svo dæmi séu tekin. Það þarf vart að taka það fram að Arnault er ríkasti maður Frakklands. 3 Sergey Brin Auðæfi: 4.610 millj- arðar Aldur: 43 ára Sergey, sem fæddur er í Sovétríkjunum en með rússneskt og bandarískt ríkisfang, er líklega best þekktur fyrir að vera meðstofnandi Google ásamt Larry Page. Brin er forseti Alphabet Inc., sem er móðurfélag Google. Brin er fjórtándi ríkasti maður heims samkvæmt úttekt Sunday Times. 4 Liliane BettencourtAuðæfi: 4.389 milljarðar Aldur: 94 ára Liliane Bettencourt er stundum kölluð guðmóðir L‘Oréal snyrtivöruveldisins, en hún er erfingi þessa stóra fyrirtækis sem faðir hennar stofnaði árið 1909. Fyrirtækið er til dæmis fyrirferðarmikið á sviði hárvöru og annarrar snyrtivöru. Fyrirtækið er eitt það stærsta á sínu sviði í heiminum. Bettencourt og börn hennar fara með þriðjungshlut í fyrirtækinu. 5 Stefan Quandt og Susanne Klatten Auðæfi: 4.251 milljarður Aldur: 50 og 55 ára Systkinin Stefan Quandt og Susanne Klatten eru talin vera ríkustu Þjóðverjarnir. Þau eru erfingjar BMW- ökutækjaframleiðandans en faðir þeirra er af mörgum talinn hafa bjargað fyrirtæk- inu frá vísu gjaldþroti upp úr miðri 20. öldinni og gert það að því veldi sem það er í dag. 6 Karl Albrecht Jr., Beate Heister og fjöl- skylda Auðæfi: 4.209 millj- arðar Systkinin eru börn Þjóð- verjans Karls Albrecht sem stofnaði smásölurisann Aldi árið 1946 ásamt bróður sínum. Fyrirtækið rekur í dag 10 þúsund verslanir í átján löndum og veltir tugum milljarða evra á ári hverju. Albrecht eldri lést árið 2014 og erfðu systkinin auðæfi föður síns. 7 Ingvar Kamprad og fjölskyldaAuðæfi: 3.864 milljarðar Aldur: 91 árs Ingvar Kamprad þekkja eflaust margir Íslendingar en hann er maðurinn á bak við IKEA- veldið sem hann stofnaði árið 1943. Þrátt fyrir ríkidæmi sitt er Ingvar nægjusamur og spreðar hann peningunum sínum ekki í neinn óþarfa. Kamprad sagði sig úr stjórn IKEA árið 2013 og tóku synir hans þrír við keflinu hjá IKEA. 8 Henkel-fjölskyldanAuðæfi: 3.105 milljarðar Henkel-fjölskyldan í Þýskalandi rekur sam- nefnda verslunarkeðju sem framleiðir vörur til neytenda og til notkunar í iðnaði. Meðal þess sem fyrirtækið framleiðir má nefna Persil-þvottaefni og Scwarzkopf-hárvörur. Fyrirtækið velti 18 milljörðum evra á síðasta ári og rúmlega 50 þúsund manns starfa fyrir fyrirtækið. 9 Axel Dumas Auðæfi: 3.064 millj- arðar Aldur: 46 ára Dumas er fram- kvæmdastjóri og stjórnarformaður franska lúxusvöru- fyrirtækisins Hermés sem stofnað var árið 1837. Undir hans stjórn hefur velgengni fyrirtækisins aukist gríðarlega en Dumas tók við stjórnartaum- unum árið 2013. Veltan eftir fyrsta ár hans í starfi nam 4 milljörðum evra. 10 Maria Franca Fissolo Auðæfi: 2.857 milljarðar Aldur: 76 ára Fissolo er ekkja Michele Ferrero sem var eigandi súkkulaðifyrir- tækisins Ferrero SpA. Faðir Michele stofnaði fyrirtækið árið 1946, en í dag er Ferrero líklega einna best þekkt fyrir framleiðslu sína á Kinder-eggjum og Nutella. Lang- ríkastur Auðæfi Ortega eru metin á tæplega níu þúsund milljarða. Mynd EPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.