Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Side 15
Helgarblað 6. október 2017 fréttir 15
vantaði vasapening þegar hún
kæmi aftur heim til Akureyrar.
Nauðgari vill myndir
30. júlí bað Anthony um að fá að
sjá brjóst Sigrúnar. Hann sendi
henni síðan óumbeðið mynd af
ungri stúlku á kynþroskaaldri sem
var ber að ofan. Hann spurði hvort
brjóst Sigrúnar væru stærri og
sagði að stúlkan á myndinni væri
yngri en Sigrún og að hann væri
einnig búinn að sjá mynd af kyn-
færunum hennar. Hann spurði
síðan Sigrúnu hvort hún vildi sjá
„hann á mér“ og áður en Sigrún
náði að svara sendi hann mynd af
getnaðarlim sínum.
„Ef við myndum ríða þá gæti
það verið pínu sárt.“ Anthony sagði
Sigrúnu frá nokkrum skiptum sem
hann hefði afmeyjað stúlkur og þær
hefðu allar viljað það. „Mundiru
þora að fá minn inn í þig já eða nei?“
Sigrún sagðist þá ekki vita hvort
hún mundi þora. Anthony fór þá
að biðja aftur um mynd af brjóst-
um Sigrúnar, hann sagði að það
væri bara sanngjarnt því hún væri
búin að sjá mynd af typpinu hans.
Sigrún svaraði að hún hefði aldrei
sent svona myndir á netinu.
Segir vændiskonu
samþykkja trekant
Þann 30. júlí sendi bílstjórinn tvær
myndir af konu á þrítugsaldri sem
hann sagði að væri vændiskona.
Sagði hann að vændiskonan væri
búin að samþykkja að fara með
þeim í rúmið. Sagði Sigrún að hún
væri hrædd við þetta en bílstjór-
inn reyndi að stappa í hana stál-
inu. Sagðist hann hafa greitt henni
fyrir vændi áður og var „rosalega
ánægður.“ Á endanum samþykkti
Sigrún að fá greitt fyrir vændi með
honum og hinni konunni.
„Ég borga þér 20 ef þú vilt fara
alla leið. […] Hún var model. Þú
færð að putta hana og sleikja pík-
una og leika við brjóstin. Svo ger-
ir hún eitthvað spennandi við þig
líka. Og ég ríð ykkur báðum. Ertu
ekki að hitna svolítið. Farin að
blotna smá við tilhugsunina.“
Þennan sama dag samþykkti
Sigrún vinabeiðni frá manni sem
skrifaði undir réttu nafni. Þau töl-
uðu stuttlega saman. Sigrún sagð-
ist vera í Reykjavík að safna pening
fyrir veturinn. Þegar Sigrún spurði
hvernig þau þekktust og hver hann
væri svaraði maðurinn:
„Ætli ég sé ekki bara einhver
sem sá afar sæta / fallegu stelpu og
ákvað að biðja hana að vera fésb.
Vinur, en þú Sigrún, hver ert þú?“
Sigrún lýsti sjálfri sér og sagðist
vera 14 ára. „Ok, hefði gjarnan vilj-
að hitta þig. Er það gagnkvæmt?
Gæti kannski sýnt þér staði sem
þú hefur ekki séð. Ertu búin að sjá
Þingvelli? Það eru svo ótal margir
staðir þar, afar fagrir.“ Bað hann
svo Sigrúnu að hafa samband síð-
ar símleiðis og gaf upp númerið
sitt.
Þann 31. júlí hafði yfirmaður
hjá stóru íslensku fyrirtæki sam-
band. Hann sendi skilaboðin á
sínu persónulega Facebook. Á
síðunni er hann skráður í hjóna-
band. Hann trúði Sigrúnu fyrir
því að hann ætti tvö börn. Mað-
urinn er búsettur á Akureyri og
viðurkenndi fyrir Sigrúnu að hann
horfði á ungar stúlkur, allt að ellefu
ára, á Glerártorgi. Hann sagðist
einnig „rúnka sér“ stundum eftir
að horfa á ungar stúlkur, stundum
gerði hann það í Kjarnaskógi.
Sigrún sagði manninum strax
að hún væri 14 ára. Hann ræddi
við Sigrúnu yfir nokkurra vikna
tímabil og gekk sífellt lengra.
Sigrún verður 14 ára
Í samskiptum við Anthony taldi
hann að hún væri 16 ára þessa
daga. DV tók þá ákvörðun að
lækka aldur hennar og sjá hvernig
hann myndi bregðast við. Þann 31.
júlí segir Sigrún að hún sé fjórtán
að verða fimmtán. Anthony varð
bara ágengari fyrir vikið. Sigrún
dró sig í hlé og svaraði honum ekki
frá 31. júlí til 8. ágúst. Á þeim tíma
sendi Anthony Sigrúnu sextán
skilaboð á Facebook, þar með talið
eina sjálfsmorðshótun en þetta
var fyrsta sjálfsmorðshótunin af
mörgum.
Sigrún fer á BUGL
Sigrún hvarf af Facebook í viku-
tíma. Hún birti pistil á Facebook-
síðu sinni þann 8. ágúst og opnaði
sig í fyrsta sinn um að hún hefði
glímt við andlega erfiðleika í gegn-
um tíðina, þunglyndi. Hún sagði
að hún hefði lent í niðursveiflu og
að frænka hennar hefði í samráði
við foreldra hennar talið best að
vista hana á BUGL. Sigrún greindi
sjálf frá þessu á Facebook:
„Eins og sum ykkar vitið hef ég
átt til að sveiflast upp og niður. Það
er heldur ekki feimnismál að ég hef
verið áður verið BUGL!!! þau sem
þekkja mig ekki, þá hef ég aldrei
verið í neinu rugli eða dópi. Nú er
ég miklu betri. Það var sól úti í dag
og sól í hausnum á mér.“
Bílstjórinn, nauðgarinn og aðr-
ir karlmenn sýndu nú mikla hlut-
tekningu. Nauðgarinn Anthony
sagði:
„Elsku hjartans engillinn minn
þetta er virkilega sár lesning og
ef ég hef verið vondur við þig þá
biðst ég hjartanlega fyrirgefningar
ég skil þig svo vel, guð verði með
þér ljósið mitt.“
Hinn fertugi Gísli frá Akureyri
sendi líka skeyti: „Hæ. Vissi ekki
að ástandið væri svona hjá þér og
biðst afsökunar á því að hafa verið
leiðinlegur við þig.“
Þá hafði maðurinn sem vildi fá
Sigrúnu í bíltúr á Þingvelli sam-
band og sýndi hluttekningu og
sagðist sjálfur hafa átt erfitt á sín-
um tíma. Ástríkur 52 ára spurði
þá hvort ekki væri allt á uppleið.
Hann óskaði svo eftir númeri Sig-
rúnar. Ræddi blaðamaður DV í
hlutverki Sigrúnar við manninn
og hann vildi hitta hana. „Þarf að
skjótast út af einu erindi á mánu-
dagsmorgun og aftur norður.
Hvað mig langar að gera er und-
ir þér komið, rúntinn, ríða,“ sagði
hann.
„Áttu við þunglyndi að stríða?“
spurði skólabílstjórinn.
„Ég átti það. Eins og allir ung-
lingar beisiklí. Þetta er bara for-
eldrahræðsla eða eitthvað. Bara
maður fari niður og þá halda þau
að allt fari á sama veg aftur,“ svar-
aði Sigrún.
„Ég þekki þunglyndi mjög vel.
Aðalatriðið er að vera jákvæður,“
sagði bílstjórinn. Þennan sama
dag stofnaði DV símanúmer fyrir
Sigrúnu og sá blaðakona DV um
að tala fyrir hennar hönd. Sama
dag og Sigrún greindi frá því að
hún væri laus af BUGL fór bíl-
stjórinn að biðja um nektarmynd-
ir. Sigrún ítrekaði að hún vildi ekki
senda slíkar myndir. Að lokum
sendi Sigrún mynd þar sem sást í
brjóstahaldara og kvartaði yfir litl-
um brjóstum.
„Þetta er flott. Hef séð þau
minni,“ sagði bílstjórinn. Í sama
samtali greindi Sigrún frá því að
hún væri líklega á leiðinni til New
York. Foreldrarnir vildu láta hana
skipta um umhverfi. „Hefur þú
prófað dildo eða titrara?“ sagði
bílstjórinn. Sigrún sagði aftur frá
reynsluleysi sínu og hún hefði
aldrei prófað hjálpartæki. Bauðst
bílstjórinn til að kaupa fyrir hana
hjálpartæki sem hún gæti valið
sjálf á netinu.
„Þú stjórnar algjörlega þínum
líkama og ræður hvað þú gerir
með hann,“ sagði skólabílstjór-
inn. Þá stakk Sigrún upp á að þau
myndu hittast fyrst. Fara í bíltúr,
kaffihús eða keilu til að hittast alla
vega einu sinni áður en þau myndu
gera nokkuð. Skólabílstjórinn stakk
upp á að fara út að borða og sam-
þykkti Sigrún það. „Þá ákveðum við
það og verðum í sambandi þegar
þú kemur aftur. Kannski fæ ég svo
að sleikja píku í eftirrétt.“ Svo bætti
skólabílstjórinn við: „Mundu bara
að vera jákvæð.“
Myndir af sjálfsmorðstilraunum
8. ágúst hélt Anthony áfram að
hafa samband. Sigrún minnti
hann á að hún væri aðeins 14 ára.
Anthony hlustaði ekki á hana
og hélt áfram að ganga á hana,
sagði hana vera búna að lofa öðru
sem var ekki rétt: „Kúra eitt skipti
plís – þú varst búin að lofa mér
meiru en kúri.“
Svo sendi Anthony mynd af
stórum og ljótum skurði á hand-
legg sem er búið að sauma saman.
Þetta var fyrsta myndin af
nokkrum sem Anthony sendi af
skurðum og sárum sem hann
kvaðst hafa gert sjálfur við sig. Síð-
ustu tvær myndirnar voru af nýj-
um skurðum og voru Sigrúnu að
kenna að sögn Anthonys. Hann
hótaði ítrekað að meiða sig sjálf-
an eða drepa sig þegar Sigrún
vildi ekki hitta hann, senda mynd
af brjóstunum sínum eða dró að
svara. Þetta er einstök gerð af and-
legri kúgun sem hann hefur áður
beitt fyrri fórnarlömb sín.
Sigrún sagði að myndin væri
svakaleg og svaraði Anthony að
hann vantaði Sigrúnu. Svo byrjaði
hann aftur.
Anthony fékk símanúmerið hjá
Sigrúnu 8. ágúst og sendi fyrsta sms-
ið daginn eftir. Sigrún svaraði hvorki
á Facebook né með sms 9. ágúst.
Eftirfarandi átta skilaboð sendi
hann öll 9. ágúst frá 09.39 til 16.20:
„Ég vissi að þú mundir svíkja
mig – Ég tók eina pillu í gær til
að prófa og sofnaði. Ég á núna 29
pillur. Ég skal taka þær allar inn
þá ertu laus við mig. – Ok er þér
sama þótt ég taki þær inn? – Á ég
að taka þær inn? Svaraðu – Á ég að
hætta að senda þér sms? – Svar-
aðu. Ég er að fara yfir um að eitt-
hvað hafi komið fyrir þig. – Ég er
að grenja. Líður þér betur þá? Og
er að kveðja lífið. Þá ertu laus við
mig. – Ertu hætt að tala við mig?“
Anthony hélt áfram: „Þá fæ ég
mynd af brjóstunum ok- Fæ ég
mynd? Já eða nei. – Ef þú hringir
á eftir og ég svara ekki þá er ég
Flugmiði Þegar Kristjón Kormákur ritstjóri dv.is fór til New York var ákveðið að senda
Sigrúnu Ósk í ferð þangað líka. Var flugmiða Kristjóns breytt og nafn Sigrúnar sett í staðinn.
Biðu níðingarnir spenntir eftir að hún kæmi heim.
„Ég á núna
29 pillur.
Ég skal taka þær
allar inn þá ertu
laus við mig.
Greinarhöfundar ásamt Anthony Lee Bellere á Ingólfstorgi „Ertu frá lögreglunni?“ spurði hann þegar blaðamaður settist við
hliðina á honum. Sagðist hann fagna umfjöllun um málið og kvaðst ætla að fara til geðlæknis þann sama dag. Hann tók fyrir að hafa komið
á Ingólfstorg í annarlegum tilgangi. MyNd SIGtryGGUr ArI