Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Qupperneq 16
16 Helgarblað 6. október 2017fréttir búinn að taka inn pillurnar og er dauður.“ Sigrún spurði hann tveimur klukkustundum síðar hvort allt væri í lagi og Anthony svaraði að hann væri „bara að grenja“ og spurði: „Fæ ég mynd af brjóstunum?“ Sigrún reyndi að hringja í Anthony á þessum tíma. Anthony Lee svaraði ekki símanum. Anthony hélt áfram að senda SMS: „Sigrún ég skelf úr hræðslu. – Bæ að eilífu. Pillurnar eru fyrir framan mig. Er að drekka áfengi til að fá kjark til að taka þær inn. – Ok er búin að taka eina inn. Á ég að taka fleiri?“ Hann hélt síðan ítrek- að áfram að hóta sjálfsmorði. Sigrún fer til útlanda – andleg líðan á uppleið Þann 12. ágúst fór Sigrún Ósk til New York. Ritstjóri dv.is var á leið til borgarinnar sem aldrei sefur. Hann tók mynd af passanum sín- um og farmiða og umbrotsmað- ur DV breytti nafni Kristjóns Kor- máks í Sigrún Ósk. Sigrún Ósk skrifaði svo kveðju frá flugvellin- um í Keflavík og skrifaði svo nokk- ur innlegg á Facebook og lýsti veru sinni í Bandaríkjunum. Eftir að veru Sigrúnar lauk í Bandaríkj- unum héldu karlmenn áfram að hafa samband. Sigrún samþykkti að hitta Anthony á Ingólfstorgi. Spurði hún hvort vinkona mætti koma með til halds og trausts því hún þorði ekki að mæta ein. Anthony spurði: „Hvort á ég að ríða þér eða henni?“ Sigrún svaraði að hún vildi ekki ríða: „Ég vil ekki láta ríða mér sko. Ég hélt þú vildir bara hittast. Það væri asnalegt að segja já þegar við höfum ekki hist.“ Bílstjórinn keyrir skólabörn Skólabílstjórinn hafði einnig sam- band. Nú greindi hann frá því í fyrsta sinn að hann væri að aka skólabíl. Ákváðu þau að fara út að borða 5. september. Þá ræddu þau saman í síma. Þegar Sigrún spurði hvort hann vildi að hún kæmi heim með honum og vændiskon- unni svaraði hann: „Nei á morgun er okkar kvöld. Getum svo hugsað um hitt seinna þegar við vitum hvernig þér líður með mér. Mundu bara að gera ekki það sem þú vilt ekki. Þá er þetta leiðinlegt.“ Þegar hann var spurð- ur hvort hann myndi verða reið- ur ef hún myndi hætta við svar- aði hann neitandi og kvaðst hafa upplifað slíkt áður. „Þá keyri ég þig heim í mestu vinsemd.“ Sigrún Ósk trúði svo bílstjór- anum fyrir einelti sem hún hafði orðið fyrir. Hún hefði verið upp- nefnd ljótum nöfnum og tekið það nærri sér. Hrósaði skólabílstjórinn henni fyrir fegurð sem Sigrún var þakklát fyrir. Síðan ræddu þau um starf bílstjórans og kom þá í ljós að hann keyrði líka skólabörn. Sigrún spurði: „Hvað ertu að keyra gamla krakka?“ Og hvort það væri ekki leiðinlegt starf. „Frá fimm ára og upp í 16 ára […] Þau eru ágætt, svolítill hávaði í þeim yngstu, heyrist varla í þeim eldri. Það þarf svolitla þolinmæði og lagni til að geta verið að kenna svona liði.“ Ætluðu að hittast í september Skólabílstjórinn bauðst til að tala við vændiskonuna og athuga hvort hún myndi vilja koma með þeim í rúmið. Síðan skipti hann um skoðun og taldi best að þau væru bara tvö í fyrsta skiptið. Þá var ákveðið að borða fyrst mat saman og síðan ákveða í framhaldinu hvort þau færu heim til hans. „Það er ekkert víst að þér líki við mig þegar við hittumst,“ sagði bíl- stjórinn. „Lol eg held að þú ert mjög næs og góður, var gott að tala við þig líka.“ „Takk fyrir það. Það er gott að heyra að þér finnst það. Ég er líka ánægður með þig,“ svaraði bíl- stjórinn. Ekkert varð þó úr því að blaða- menn DV hittu bílstjórann umrætt kvöld. Sigrún hætti við og sendi honum skeyti og baðst afsökunar. Hún hvarf svo af Facebook næstu vikurnar. Nú var hún aftur kom- in á BUGL. Hún skrifaði aftur á Facebook 28. september. Hún birti mynd af sér fyrir utan BUGL. Á myndinni er Sigrún í bleikri hettu- peysu. Hún veifar eins og hún sé að kveðja og sendir BUGL fingur- inn. Með myndinni fylgir texti og Sigrúnu er heitt í hamsi. Textinn byrjar svona: „Laus úr fokkin fangelsi!!! :) Í dag er góður dagur!! Í dag segi ég big bless við þetta skitapleys!! 3 vikur á vessta staðnum! Var fínt í eina viku, en að loka barn í nokr- ar vikur er barasta fangelsi!! Halló! Eina góða hinir krakkarnir. Og fyr- ir hvað? Fyrir að koma ekki heim klukkan eitthvað á kvöldin!“ Bílstjórinn ásamt fleirum sendu sms í síma Sigrúnar. „Sko þig, Lið- ur þér ekki betur eftir að hafa ver- ið þar? Mér finnst gott að þú skul- ir hafa áhuga á að spjalla áfram við mig,“ sagði skólabílstjórinn. Sigrún svaraði: „Var ósann- gjarnt en líður betur eða aldrei liðið betur. Eitt skref aftur á bak en tvö áfram lol. Er ekki allt gott hjá þér?“ „Ég er stoltur af þér,“ svaraði skólabílstjórinn og hélt áfram: „Það er svo gaman að heyra að ungt fólk bætir líf sitt. Sjálfur hef ég verið edrú í 27 ár og sé ekki eftir neinu.“ Svo bætti hann við: „Hefur þú ennþá áhuga á að hitt- ast í mat?“ Aftur nálgaðist hann Sigrúnu sama dag og hún var að losna af geðdeild. „Verðum áfram í sambandi. Endilega fylgdu prógraminu þinu, það skilar sér seinna.“ Svo bætti hann við: „Sagð- ir þú þeim á Bugl frá okkur?“ Sig- rún neitaði því. „Bara forvitinn. Hvernig líður þér í dag?“ Sigrún sagði að henni liði miklu betur. „En hvað mér þykir það gott að heyra. Svo er líka svo töff að vera edrú.“ Anthony á leið í fangelsi Anthony greindi Sigrúnu frá því þann 29. september að hann væri á leiðinni í fangelsi næsta föstu- dag og væri hræddur. Hann lang- aði að hitta Sigrúnu og kúra með henni. Hann bætti því við að hann hafi skorið sig fimmtudags- nóttina, heil 11 spor. Aðspurður af hverju hann væri að fara í fangelsi sagði Anthony hann væri grun- aður um að hafa kveikt í bíl og að hann hafi svo verið tekinn fyrir að keyra próflaus á bensínvespu. Anthony spurði Sigrúnu hvort hann mætti „brunda inn í þig“ og endaði samtalið á að segjast vera „drulluhræddur“ og það „jaðri við að ég grenji.“ En ástæðuna sagði hann vera að hann vildi kúra með Sigrúnu og sofa hjá henni. Anthony sendir þá sex smá- skilaboð á fjórtán mínútum: „Ing- ólfstorgi ok. – Við ríðum já eða nei? – Við ríðum á morgun já eða nei? - ? – Við ríðum þá á morgun ok já eða nei – Svaraðu.“ Sigrún svaraði honum játandi en sagð- ist vera stressuð um að vera lé- leg. Sigrún Ósk hélt áleiðis til Ant- honys miðvikudaginn 5. október. Þau ætla að hittast á Ingólfstorgi klukkan 13.00. Bílstjórinn og Sigrún hittast Sigrún Ósk ræddi við skólabíl- stjórann í síma þann 3. október. Nokkrum dögum áður höfðu þau rætt um áfengi og þunglyndi. Vildi Sigrún gera lítið úr sínu vanda- máli og að foreldrar hennar væru að ofvernda hana. Bílstjórinn kvaðst sjálfur þekkja þunglyndi og hann hefði barist við myrkrið í mörg ár. „Þegar ég passaði mig ekki fyr- ir 2 árum fór ég svakalega langt niður og var kominn með sjálfs- vígshugsanir. Þá var ökuskírteini tekið af mér. Það tók sex mánuði að komast í eðlilegt horf aftur og ákvað ég með hjálp geðlæknis, sálfræðings og Virk að prófa að breyta öllu í mínu lífi. Ég tók rútu- prófið og þetta hafði góð áhrif á mig. Þar sem ég hafði gríðarlega fælni var mér ráðlagt að byrja aft- ur að stunda kynlíf sem ég var al- veg hættur því líka. Núna líður mér vel.“ Strax á eftir bætti hann við: „Heldurðu að við getum farið út að borða á þriðjudagskvöldið.“ Sigrún spurði: „Midvikudagur vaeri samt betri eg er ad spa ef vid faerum til tin eftir matinn gaetir tu latid mig fa sma pening er pinu blonk eftir ad hafa ekki komist i vinnuna lengi Eg gaeti ta gert hluti vid tig i stadinn eins og tu vast ad tala um.“ Hann svaraði: „Ég get látið þig fá 20 sjálfsagt. Við getum ákveðið með miðvikudaginn kl. 7. Hef- ur þú ennþá áhuga á 3-some“. Sigrún kvaðst vera tilbúin til að prófa. „Ok. En eigum við ekki að vera bara við tvö í fyrsta skipti. Svo get ég athugað hvort vinkona mín vilji ekki vera með okkur. […] Þú manst að gera ekkert nema þú vilt það sjálf. En það er alltaf spennandi að prófa hluti.“ Þá sagði bílstjórinn að hann þyrfti að fara að keyra börn- in og væri ekki laus fyrr en aftur um kvöldið. Mánudagskvöldið spurði bílstjórinn svo hvað Sigrún Ósk væri gömul. „Sweet 16 var ad klára grunn í vor. Ætladi svo í verkó í haust en foreldrar mínir skemmdu það. Ætla samt að fara aftur til AK city eftir áramot : ) er farið ad langa aftur i skólann.“ „Ég er bara 60 ára táningur. Ertu viss um að þú viljir stunda kynlíf með svona kalli?“ spurði bílstjórinn. Sigrún svaraði að hún væri stressuð. „Já. Þú átt alltaf þinn rétt hvaða sem þú gerir,“ svaraði hann. „Þú átt eftir að njóta vel. En ég er smá óöruggur út af aldrinum.“ „Mig vantar alla vega pen- inginn sem Bugl tók af mér !!!! Og mér líkar við þig. Þú ert góður við mig. Takk fyrir það.“ „Af hverju ætti ég ekki að vera góður við þig. Ég reyni alltaf að vera góður við alla. Þó við höfum ekki kynlíf saman þá máttu alltaf leyta til mín ef þú vilt tala um þín mál.“ Þá sagði Sigrún: „Vid getum líka borðað saman og ákveðið þá hvort við förum til þín og þá bara farið varlega eða þú skilur Og ef ég treysti mér ekki gætir þú kannski horft á mig gera eitthvað við mig eða ég get gert eitthvað við þig án þess að riða eða riðið ef allt er í góðu.“ „Ég er til í að borga þér 20 ef þú ferð alla leið, annars 15,“ sagði skólabílstjórinn. „En ef þú treystir þér ekki að gera neitt skal ég samt láta þig fá eitthvað smá.“ „Þú ert alltof góður við mig,“ sagði Sigrún. „Ertu á pillunni?“ Sigrún svar- aði því játandi. „Ok. Ef ég missi inn í þig, er það þá í lagi? Smókt- ime. Brb.“ Sigrún hittir skólabílstjórann Sigrún og skólabílstjórinn mæltu sér mót á höfuðborgarsvæðinu. Sigrún hafði sagt honum að hún vildi spjalla við hann aðeins áður en hún færi með honum inn í bíl. Guðrún Ósk blaðamaður var tál- beita DV og með falda mynda- vél. Kristjón Kormákur, ritstjóri dv.is, sat í bíl rétt hjá og Sigtryggur ljósmyndari var í felum vopnaður myndavél. Skólabílstjórinn mætti á svæðið og heilsaði Sigrúnu. Þau spjölluðu aðeins saman og Sigrún sagðist vera smá stressuð. Bílstjór- inn sagði að það myndi venjast. Kristjón fór út úr bílnum, gekk að skólabílstjóranum og sagði: „Okkur þótti það mjög alvarlegt að bjóða 16 ára stelpu í trekant og biðja um að kaupa af henni nekt- armyndir. Ég myndi hvetja þig að leita þér hjálpar því það er ekki eðlilegt að biðja 16 ára stelpu um nektarmyndir. Ertu ekki sammála því?“ „Jújú, ég er alveg sammála því.“ Hefur áður hitt 14 ára stelpu „Það hefur einu sinni áður haft samband við mig stúlka, man ekki hvort það var á Facebook eða Snapchat. Hún sagði mér að hún vildi fá að prófa sig áfram en ég sagði við hana: þú ert fjórt- án ára, þú lendir bara í vondum málum. Það endaði með að ég fór og hitti hana og við töluðum saman yfir mat og það varð síð- an ekkert meira úr því,“ sagði bíl- stjórinn. Guðrún spurði bílstjór- ann hvort honum fyndist við hæfi að maður á hans aldri hitti fjórtán ára stúlku. Hann svaraði játandi. Aðspurður hvort skólabílstjórinn hefði keypt oft vændi sagðist hann vera með tvær stelpur sem væru „fastar hjá honum.“ Þær væru 27 ára og 31 árs. Býst ekki við að gera þetta aftur Skólabílstjórinn var spurður tvisvar hvort hann héldi að hann mundi gera þetta aftur og sagðist hann annaðhvort ekki búast við því eða ekki halda það. „Hugsaðir þú aldrei yfir þann tíma [sem þú varst í samskiptum við Sigrúnu] að þú værir að gera eitthvað rangt?“ „Jújú, ég hef alveg hugsað það.“ Ekki samþykkja DV beinir þeim tilmælum til þeirra sem hafa lesið þessa umfjöllun að ræða alvarleika málsins við börn sín og ítreka að samþykkja ekki undir nokkrum kringumstæðum vinabeiðnir frá ókunnugum. Tugir karlmanna sendu Sigrúnu vina- beiðnir. Um 50 karlmenn sendu skilaboð. Um 50 vinabeiðnir eru enn ósamþykktar og hefur blaða- mönnum ekki tekist að ræða við alla karlmennina sem hafa sýnt Sigrúnu áhuga. n Sendi þrjár óumbeðnar myndir af getnaðarlim sínum Baðst afsökunar á að hafa gengið of langt eftir að senda typpamynd – sendi svo tvær í viðbót. Sagðist margoft vera graður og bað um klámfengnar myndir af Sigrúnu.„Hvað mig langar að gera er undir þér komið, rúntinn, ríða. Ætlaði að kaupa vændi af barni Kristjón og Guðrún hjá DV tóku á móti skólabíl- stjóranum sem hélt að hann væri að fara að hitta 16 ára stúlku.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.