Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Síða 34
Hjálmar Örn
Jóhannsson er er
einn þekktasti „snappari“
landsins. Með tíu þúsund
fylgjendur og daglega
bætast fleiri aðdáendur í
hópinn. Hann er vægast
sagt einstakur 44 ára
maður. Ekki einasta er
hann með eldrautt skegg,
skalla og frekjuskarð sem
gerir hann mjög sérstakan
í útliti, Hjálmar er líka
sérlega hömlulaus týpa
og mikill grínisti sem hefur
á undanförnum vikum og
mánuðum mjakast hægt
og rólega upp á íslenska
stjörnuhimininn.
Hjálmar var illa haldinn af ADHD sem barn og ung-lingur. Hann flosnaði upp
úr menntaskóla og fór að vinna hjá
fjölskyldufyrirtækinu Brimborg
sem er í eigu foreldra hans en fann
sig líka í núinu á leikskólanum
Múlaborg, sem hann segir eitt það
allra besta starf sem hann getur
hugsað sér.
Á Múlaborg keypti Hjálmar í
fyrsta skipti notaðan snjallsíma af
vinkonu sinni og byrjaði að snappa.
Þetta var árið 2014.
„Fyrst var ég bara með svona
þrjátíu fylgjendur, eins og flestir,
bara vini og fjölskyldu en eftir því
sem ég fíflaðist meira fékk ég fleiri
og fleiri fylgjendur. Þetta spurðist
bara út,“ rifjar hann upp.
„Ég man að 10. september 2015
var ég með 324 fylgjendur og fannst
það algjörlega geggjað. Ég hafði
aldrei fengið neitt „shout-out“ eins
og það kallast þegar aðrir snapparar
vekja athygli á manni svo ég vissi
að fólk væri bara að mæla með
snappinu mínu og fannst það alveg
æðislegt. En svo vatt þetta upp á sig
og nákvæmlega tveimur árum síðar,
eða núna 10. september síðastliðinn,
þá hafði ég náð 10.000 fylgjendum.
Sem sagt, það bættust við 9.700
fylgjendur hjá mér á tveimur árum.“
Dæmigerðar týpur sem flestir kannast við
Óhætt er að fullyrða að
persónugalleríið sem Hjálmar
hefur skapað á SnapChat sé
ástæðan fyrir vinsældunum. Hann
bregður sér í alls konar bráðfyndin
gervi, en karakterarnir eru byggðir
á dæmigerðum Íslendingum sem
hann hefur sjálfur kynnst og vill
meina að flestir þekki þessar, eða
mjög svipaðar, týpur.
„Til dæmis hann Bjarni gröfu-
maður. Hver þekkir ekki svoleiðis
karl? Hann er rosaleg karlremba,
vinnur svakalega mikið, helst
bæði laugardaga og sunnudaga,
trúir ekki á listamenn, er ekki
umhverfisverndarsinni … svona
rosalega grófur iðnaðarmaður,
algjör nagli. Og „ hvítvínskonan“
sem er minn allra vinsælasti
karakter núna. Hana byggi ég á
fjölda svona miðaldra kvenna í
kringum mig. Þær hafa rosalega
gaman af því að fá sér rautt og hvítt
og sushi og leggja mikla áherslu
á að „njóta“,“ útskýrir Hjálmar
og breytir röddinni í hálfgerða
falsettu um leið og hann setur sig
í hvítvínskonu gírinn. „Við erum
svo ruglaðar vinkonurnar þegar
við hittumst. Við erum sko ekki í
laaagi,“ segir hann skrækróma og
bætir við þessar týpur leggi mikla
áherslu á að „lífið sé núna“.
Með ímyndaðan sjúkdóm
til að þurfa ekki að vinna
„Svo er það Kristján Agnarsson,
kallaður Kagginn. Hann er ímynd-
aðan sjúkdóm sem heitir Fletcher
Disease og þessa greiningu (eða
ekki greiningu) notar hann til að
þurfa ekki að vinna. Kagginn er
alltaf að missa niður líkamlega
orku og svo reynir hann að byggja
hana upp með því að troða í sig
sykri og sælgæti. Skilur samt
ekkert í því af hverju hann er svona
orkulaus. Án þess að ég vilji vera
eitthvað vondur þá er Kagginn skot
á þetta fólk sem er haldið endalaus-
um sjúkdómum sem orsakast bara
af ólifnaði. Hann er einfaldlega
letingi sem nennir ekki að vinna,
fann sér sjúkdóm og er bara á
bótum frá borginni. Auðvitað er
ekkert að honum,“ segir Hjálmar
og skellir upp úr.
Gervifemínistar sem þykjast
vera góðir á samfélagsmiðlum
Femínistar fá líka að vera með á
snappinu hans Hjálmars en þar fer
fremstur í flokki karakter sem heit-
ir því lauflétta nafni Karl Önnuson
Magnason Sigrúnarson.
„Karl Önnuson Magnason
Sigrúnarson þykist vera mikill
femínisti en í raun og veru þá snýst
þetta bara allt um hann sjálfan. Að
hann komist að í fjölmiðlum og að
Gula
forritið
breytti
lífi
mínu
hjalmarorn110 @hjalmarorn110Skemmtikrafturinn
Hjálmar Örn
marGrét H. Gústavsdóttir
margret@dv.is