Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Page 60
36 menning Helgarblað 6. október 2017
Framhald
Í
slensk hip-hop tónlist hefur
verið í miklum blóma undan-
farin ár. Af dægurtónlistar-
stefnum er gróskan langmest
í rappinu, hún er vinsælust með-
al ungmenna og framþróun og
nýsköpun mikil. Rapptónlistar-
menn eru að sama skapi farnir
að njóta almennra vinsælda, þeir
fylla tónleikahallir og raka inn
hinum ýmsu tónlistarverðlaun-
um. Í framlínunni eru rappararn-
ir sem semja og flytja rímurnar,
syngja, koma fram á tónleikum,
móta sjónræna ásjónu tónlistar-
innar og eru andlit hennar út á
við.
En þeir sem smíða tónana,
leggja taktana, hanna hljóðheim-
inn og semja jafnvel melódíurn-
ar, mennirnir á bak við tónlistina,
falla hins vegar oftar en ekki í
skuggann – óviljandi eða viljandi.
Á ensku eru þessir hljóðsmið-
ir kallaðir „producers“ – fram-
leiðendur – en það hefur gengið
illa að festa gott íslenskt hugtak
á þessa þúsundþjalasmiði, þetta
eru taktsmiðir, útsetjarar, upp-
tökustjórar, hljóðblandarar og
svo framvegis. Stundum sinna
þeir bara einu þessara starfa en
stundum öllum.
Í þessari umfjöllun var mark-
miðið að varpa kastljósinu á
nokkra af þeim tónlistarmönnum
sem hafa framleitt vinsælustu
rapplög sumarsins og haustsins
– fólkið sem hefur smíðað takta
ársins 2017. Hér er ekki um að
ræða tæmandi úttekt á helstu
pródúserum íslensks hip-hops í
dag – og má til að mynda nefna
að tvö af áhrifamestu taktsmíða-
teymum íslensks rapps í dag,
Reddlights og No Judings Eyes,
afþökkuðu boð um að taka þátt
í umfjölluninni, en bæði teymin
hafa lagt upp með að halda sig í
skugganum. Þá þarf umfjöllun
um tilraunakenndari kima rapp-
senunnar að bíða betri tíma.
Í ljósi þess að kvenkyns rapp-
arar eru að verða sífellt atkvæða-
meiri í íslensku hip-hopi kom
það blaðamanni á óvart að ekki
einn einasti kvenkyns hljóðsmið-
ur hefur verið áberandi í íslensku
meginstraumsrappi að undan-
förnu. Nokkur dæmi eru þó um
taktsmíðandi stelpur í dýpstu
grasrót rappsins auk raftónlistar-
kvenna sem gera órappaða hip-
hop tónlist. n
kristjan@dv.is
Úr skugga taktsins
Hljóðframleiðendurnir á bak við vinsælustu rapplög Íslands að undanförnu
Eitt vinsælasta lag ársins er Joey Cypher með rapp-aranum Joey Christ og
hálfu landsliðinu í rappi: Herra
Hnetu smjöri, Birni og Aroni
Can. Galsafullt rappið og mynd-
bandið hefur vakið athygli
en það er kannski ekki síst
dansvænn takturinn og ein-
falt og grípandi undirspilið sem
hafa stuðlað að vinsældum þess.
Framleiðandi lagsins er Arnar
Ingi Ingason, sem kallar sig yfir-
leitt Young Nazareth. Hann vakti
fyrst athygli sem plötusnúður
og annar pródúser hljómsveit-
arinnar Sturla Atlas en í sumar
hefur hann orðið æ meira áber-
andi einn síns liðs, framleitt tvær
plötur fyrir Joey Christ og gert
slagarann Geri ekki neitt með
Aroni Can og Unnsteini Manúel
og nú síðast lagið Psycho með
Cyber.
„Ég er búinn að vera í tónlist
lengi, byrjaði í skólahljómsveit
Kópavogs 8 ára og á henni margt
að þakka. Fyrir fermingarpen-
ingana keypti ég mér svo tölvu
og hljóðvinnsluforritið Logic. Þá
hafði ég aðeins verið að fikta við
að DJ-a. Ég byrjaði þá að gera tón-
list eins og þá sem ég hafði verið
að spila, sem var aðallega house-
tónlist,“ segir Arnar um upphaf
tónlistarsköpunarinnar og að-
spurður segist hann hafa lært
hljóðframleiðsluna að langmestu
leyti upp á eigin spýtur með hjálp
Youtube.
„Þegar ég var í Versló fór ég
svo að prófa mig áfram með gera
eitthvað annað en house. Ég fann
mig strax mjög vel í því að gera
hip-hop takta fyrir ýmsa Versló-
hópa.“
Logi Pedro rakst á tónlist eftir
Arnar Inga á Soundcloud og fékk
hann inn til að vinna með sér og
gera takta fyrir Sturla Atlas. „Ég
hef lært ótrúlega mikið af því að
vera í stúdíóinu með Loga, hann
hefur verið algjör mentor.“
Arnar segist lítið nota hljóðfæri
eða utanáliggjandi vélbúnað –
eða hardware – við tónsmíðarnar.
„Þetta fer eiginlega allt fram í
tölvunni. Ég nota eiginlega ekki
neitt hardware, heldur er með
soft-syntha og einhver trommu-
sömpl ýmist úr trommuheilum
eða alvöru trommum. Svo reyn-
ir maður að „tweaka“ þetta til svo
þetta hljómi sem náttúrulegast.
Til að byrja með horfði ég
mikið til Kanye West fyrir inn-
blástur og geri það reyndar enn-
þá. Í seinni tíð hef ég horft mik-
ið til hljóðheims og lagasmíða 40
sem hefur pródúserað Drake, og
sömuleiðis Mike Will. Fyrst og
fremst langar mig samt að búa
mér til minn eigin hljóðheim eða
skapa sérstakan heim með ein-
hverjum listamanni.“
Arnar Ingi segist alls ekki
vera ósáttur við að vera í bak-
grunninum á meðan rappararn-
ir og söngvararnir fái athyglina
og séu andlit tónlistarinnar: „Það
skemmtilegasta sem ég geri er að
gera lög. Fyrir mér er það að gera
feita músík númer eitt, tvö og
þrjú. Það er auðvitað skemmtilegt
að fá kredit fyrir það sem ég er að
gera, en ég sækist ekkert í sviðs-
ljósið. Þeir sem vita, þeir vita. Það
er alveg nóg fyrir mig.“
Joe Frazier
Young Nazareth
Skírnarnafn: Arnar Ingi Ingason.
Aldur: 20
Önnur nýleg lög: Joey Christ - Túristi
(feat. Birnir), Aron Can - Geri ekki neitt
(feat. Unnsteinn), Sturla Atlas - Time ,
Sturla Atlas - I know, Cyber - Psycho
(feat. Countess Malaise).
Samstarfsfólk: Sturla Atlas, Joey Christ,
Cyber, Aron Can, Birnir og Floni.
Forrit: Logic.
Ég hef alltaf verið frekar athyglis-sjúkur, að minnsta kosti miðað við marga pródúsera sem eru
bara sáttir við að vera í bakgrunnin-
um – mig langar að vera með,“ segir
Joe Frazier sem hefur verið nokkuð
áberandi við hlið rapparans Herra
Hnetusmjörs á sviði og í mynd-
böndum. Joe er hins vegar ekki
einungis rappari heldur gerir hann
einnig taktana og smíðar hljóðheim
laganna – til að mynda lögin Ár eft-
ir Ár, Kling Kling, 203 Stjórinn sem
hafa verið vinsæl í sumar og nýjasta
lagið Spurðu um mig.
Joe – sem heitir réttu nafni Jó-
hann Karlsson – fetaði í fótspor
föður síns og æfði trommuleik um
tíma þegar hann var yngri. „Ég hef
alltaf haft taktinn í blóðinu, ef svo
má segja,“ segir Jóhann, en það var
þó í gegnum eldri bræður hans sem
hann kynntist rappi og taktsmíðum
– þeir voru í rappsveitinni Dáða-
drengir sem vann Músíktilraunir
árið 2003. Á menntaskóla árunum
fór hann svo að vinna takta af ein-
hverri alvöru og prófaði fljótlega
að senda þá á Emmsjé Gauta. „Ég
vissi að Gauti væri að vinna að plötu
svo ég sendi honum e-mail með
nokkrum töktum. Honum og strák-
unum í ReddLights, sem voru að
pródúsera plötuna, leyst vel á þetta
og stungu upp á því að við myndum
vinna eitthvað saman í framtíðinni.
Ég gerði nokkur lög með Gauta og
í gegnum hann kynntist ég nánast
öllum í senunni – og þá byrjaði bolt-
inn að rúlla,“ segir Jóhann.
Það er þó fyrst og fremst í gegn-
um samstarf hans við Herra Hnetu-
smjör, hinn hraðmælta ráðherra-
son og Kópavogsstrák, sem nafn
Frazier breiddist út meðal almenn-
ings: „Hann hafði verið að rappa yfir
ófrumsamda takta sem voru í svip-
uðum stíl og þeir sem ég hafði verið
að gera – Los Angeles klúbba-beat.
Hann heyrði í mér á Facebook og
við gerðum eitt lag áður en við hittu-
mst. Í fyrsta skipti sem við hittumst
gerðum við svo lagið Hvítur bolur,
gullkeðja, sem varð mjög stórt. Upp
úr þessu spratt svo mjög blómleg
vinátta og samstarf.“
Joe segist fyrst og fremst sækja í
grípandi bassalínur og poppuð við-
lög og nefnir DJ Mustard, Nic Nac,
Lex Luger og Kanye West sem helstu
áhrifavalda í taktsmíðunum. Frazier
notar upptöku- og hljóðvinnslufor-
ritið FL Studios við tónsmíðarnar:
„Ég er með hljómborð, en er ekki að
taka hljóð úr neinu „hardware“. Ég
nota mikið „virtual synth“ sem heit-
ir Massive – hann er nánast sá eini
sem ég nota. Það er til mikið af góð-
um hljóðpökkum í hann og mjög
gott að fikta í honum.“
Frazier segir erfitt að greina
einhvern sameiginlegan hljóm í
íslensku hip-hopi í dag en hver
pródúser sé að móta sér sinn eig-
in stíl og séu margir orðnir auð-
þekkjanlegir. Um það hvað skeri
hans takta úr hópnum segir Frazi-
er: „Ég er að gera meiri „west-coast
mainstream pop-beat“ en aðrir
sem eru að gera takta á Íslandi. Það
er eitt af því sem tengir okkur Herra
Hnetusmjör, við erum miklir aðdá-
endur þess konar tónlistar.“
Skírnarnafn: Jóhann Karlsson.
Aldur: 24.
Önnur nýleg lög: Herra Hnetusmjör - Spurðu
um mig, Herra Hnetusmjör - Kling Kling, Emm-
sjé Gauti - Lyfti mér upp, BlazRoca - Fýrupp.
Samstarfsfólk: Herra Hnetusmjör, Emmsjé
Gauti, BlazRoca, Bent.
Forrit: FL Studio.
Maðurinn
á bak við
Ár eftir Ár
með Herra
Hnetu-
smjöri
Maðurinn á bak við Joey
Cypher með Joey Christ
(feat. Aron Can, Herra
Hnetusmjör og Birnir)