Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Qupperneq 62
38 menning Helgarblað 6. október 2017 Framhald  Þegar rætt er um þá fremstu taktsmiði í íslensku rappi í dag ber nafn Marteins Hjartar sonar, sem kallar sig Banger boy, yfirleitt fljótt á góma. „Það hljómar allt svo ógeðslega feitt sem hann gerir, hann er með eitthvað „touch“ og það er einhver „X-factor“ í því sem hann ger- ir,“ segir plötusnúðurinn og takt- smiðurinn Young Nazareth til að mynda um hljóðframleiðslu hans. Og því verður ekki neitað – mörg lögin hans eru „bangers.“ Marteinn vakti fyrst athygli með töktum sem hann gerði fyrir rapp- arann GKR, hefur síðan þá gert lög fyrir Reykjavíkurdætur, skipað dúettinn Sama-Sem með rappar- anum Dadykewl og mun pródúsera fyrstu íslensku plötuna með gamla rappbrýninu Tiny, auk þess sem hann hefur unnið með banda- ríska rapparanum Trinidad James og unnið tónlist fyrir leikhús, sjón- varpsþætti, auglýsingar og fleira. Marteinn hefur að eigin sögn verið að gera tónlist í tölvu í um tíu ár, glamraði á gítar án mik- illar formlegrar kennslu áður en hann fór að gera takta og gefa út á netinu en þannig komst GKR í samband við hann. „Ég var með Soundcloud-síðu sem hafði ver- ið að fá smá athygli frá fólki sem er eitthvað að pæla í þessu – en það eru ekki mjög margir. Gauk- ur hafði eitthvað verið að fylgj- ast með þessu og sendi mér skila- boð. Mér fannst það svo sætt að ég ákvað að vinna með honum.“ Marteinn notar hljóðvinnslufor- ritið Ableton við tónsmíðarnar og segist ekki notast mikið hljóðfæri eða utanáliggjandi hljóðgjafa. „Ég sem allt í tölvunni á lyklaborðinu, teikna í rauninni inn tónlistina í forritið, en stundum spila ég samt á gítar eða eitthvað annað líka. Það fer eftir stílnum en mér finnst mikilvægast að það séu ein- hver kúl og áhugaverð hljóð í takt- inum, hljóð sem maður kveik- ir ekki alveg á hver eru. Ég vinn mikið með það að hafa eitt hljóð í hverju lagi sem er frekar skrýtið, hljóð sem gæti staðið eitt og sér en getur líka fallið vel inn í hljóma- ganginn.“ Marteinn segir ekki víst að fólk sé farið að greina hvað einkenni hljóðheim hans enda hafi ennþá svo lítill hluti tónlistarinnar sem hann hefur gert komið út. „Ég veit það ekki, maður getur kannski heyrt það á því hvernig „beatið“ er sett upp. Svo nota ég oft eitthvað „fucked-up overdrive“ sánd.“ Eru einhverjir sérstakir pródúserar eða taktsmiðir sem hafa haft áhrif á þig? „Það var kannski aðallega þegar maður var að byrja, í kring- um 2007, þegar maður var að hlusta á Madlib og J Dilla og aðra, en núna er maður eiginlega ekk- ert að pæla í því hvað aðrir eru að gera. Stærstan hluta tímans er ég að hlusta á eigin tónlist. Mér finnst best að gera bara hluti sem koma beint upp úr mér sjálfum.“ Nú vita margir hverjir GKR er en þekkja ekki þig þótt þú gerir stóran hluta af tónlistinni, finnst þér ekkert verra að það séu bara rappararnir sem fái heiðurinn? „Nei, það er í rauninni mjög þægilegt því þá þarf ég ekkert að hafa sérstakar áhyggjur af því að halda einhverju „face-i“. Það getur verið ótrúlega erfitt fyrir rappara að fá einhverja athygli og halda henni, þeir verða gamlir og detta úr tísku. Ég gæti hins vegar verið 70 ára kall að gera það sama, það ætti ekki að breyta miklu. Mér finnst það vera þægilegast við það að vera pródúser, maður getur verið 16 ára að eilífu.“ Marteinn hefur unnið með með nokkrum erlendum listamönnum að undanförnu en segist þó ekki endilega stefna á landvinninga með taktana sína: „Það er nóg að gera hérna heima. Ég hef áhuga á því að búa til íslenska tónlist af því að Ísland er svo menningarlega fá- tækt. Mér finnst það vera skylda mín að gera íslenska tónlist og bæta menningarlífið hérna.“ BANGERBOY Skírnarnafn: Marteinn Hjartarson Aldur: 25 Önnur nýleg lög: Reykjavíkurdætur - Kalla mig hvað?, GKR - Tala um. Samstarfsfólk: GKR, Reykjavíkurdætur, Tiny, Dadykewl (Sama-Sem) og Trinidad James. Forrit: Ableton Björn Valur Pálsson Ég hataði eiginlega rapp þegar ég var í grunnskóla. Ég var alltaf mikill rokkari, var alveg í heavy-metal og dauðarokki,“ seg- ir Björn Valur Pálsson, sem hefur samið og gert takta í nokkrum vinsælustu lögum undanfar- ins árs með Emmsjé Gauta, auk þess að vera plötusnúður hans og hljómsveitarinnar Úlfs Úlfs. Björn Valur spilaði á tromm- ur í rokkhljómsveit þegar hann var að alast upp í Grindavík og segist ekki hafa farið að hlusta á rapp fyrr en hann sá trommarann Travis Barker úr Blink 182 spila með plötusnúðinum DJ AM. „Það var ekki fyrr en nokkrum árum eftir að hljómsveitin mín hætti sem ég fór að gera tónlist aftur, þá fór ég að leika mér að gera takta í einhverjum upptöku- forritum. Í lok 2014 fór ég svo út til Los Angeles í skóla til að læra Music Production. Það var fyrst þá sem ég fór að gera takta af ein- hverju viti,“ segir hann. „Ég hafði verið góður vinur Gauta í svolítinn tíma og byrjaði fyrst að DJ-a með honum. Hann studdi mig mjög mikið strax í upphafi og bað mig bara að senda sér takta þegar ég væri kominn með eitthvað kúl.“ Og þegar Björn Valur kom heim frá borg englanna var hann kominn með nokkuð safn af tökt- um, til að mynda það sem varð að slagaranum Reykjavík. Björn Valur notar Ableton Live við tónsmíðarnar og segir að oftar en ekki fæðist lögin á örstuttum tíma þegar hann hittir á áhuga- verð hljóð eða melódíur. „Þetta er eiginlega allt gert í tölvunni. Ég er með „midi- controller“, búnað sem heitir Ableton Push sem ég nota mik- ið. Mér finnst það mjög gott til að henda út hugmyndum. Yfir- leitt þegar maður er kominn með grunnhugmynd fer maður svo að líta í kringum sig og pæla hvort maður eigi að bæta við einhverj- um hljóðfærum og svoleiðis. Taktarnir koma mjög auðveld- lega hjá mér en aðalvinnan finnst mér felast í vinnunni með lista- manninum sem ætlar að nota taktinn. Þá þarf maður að taka upp, mixa og mastera. Ég er til- tölulega nýbyrjaður að taka upp sjálfur og er ennþá æfa mig í að mixa. Ég fæ ennþá aðra til að gera það fyrir mig því ég vil að hlutirn- ir hljómi virkilega vel. Núna eru það yfirleitt strákarnir í Redd- Lights sem hjálpa mér, og við erum svo í stöðugu samtali um hvernig ég vil hafa hljóminn.“ Hverju ertu þá að sækjast eft- ir þegar þú smíðar takt, hvað er mikilvægt í góðum takti? „Fyrst og fremst er mikilvægt að þetta „grúvi“, að það séu gríp- andi melódíur sem maður getur sönglað með. En svo er það bara einfaldleikinn. Þótt það sé gam- an að hlusta á lög sem eru rosa- lega flókin og flottar tónsmíðar er það yfirleitt einfaldleikinn sem nær manni. Fyrir mér snýst takt- urinn svo aðallega um bassann og trommurnar, maður verður virkilega að finna fyrir bassanum, bassatrommunni og snerlinum – það verður að hitta hart. Svo not- ar maður hi-hatana til að búa til grúvið í kringum það.“ Aldur: 26. Önnur nýleg lög: Emmsjé Gauti - Þetta má, Emmsjé Gauti - Reykjavík, Úlfur Úlfur - 15. Samstarfsfólk: Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur, SXSXSX. Forrit: Ableton Oddur Þórisson Kannski óvæntasti smellur sumarsins var lagið „Ég vil það“ með söngvaranum Chase og rapparanum JóaPé. Lagið átti þátt í að skjóta frontmönnun- um tveimur upp á stjörnuhim- ininnn, en maðurinn á bak við slagarann er hins vegar óþekkt- ari, hinn 18 ára gamli Seltirningur Oddur Þórisson sem smíðar takt og melódíu lagsins. Samstarf hans og Chase er það fyrsta sem vekur athygli á honum, en nokkur lög hafa komið út með þeim félögum undanfarið ár og stefna þeir á plötu á næstu vikum. Oddur lærði á trompet á yngri árum en segist hafa haft lítinn áhuga. Hann fór hins vegar að smíða tónlist í tölvunni í kring- um 11 ára aldurinn, fyrst í Garage- Band en síðar í upptökuforritinu Logic. „Ég byrjaði eins og flestir í einhverju EDM-sýrupoppi, síðan fór ég út í hip-hop og það sem ég hef verið að gera með Chase er eitt- hvað nýstárlegt popp með hip-hop „elementum“,“ segir Oddur og nefn- ir Daft Punk, The Wekend og Drake sem áhrifavalda í tónsmíðunum. Ég vil það var eitt allra mest spil- aða lagið á íslenska Spotify í sumar og eru það ekki aðeins ógleymanlegar línur JóaPé á borð við „ég er slaggur að njódda og liffa“ sem hafa gert það að verkum, heldur einnig glaðlegur takturinn og grípandi viðlagið. „Upphaflega átti þetta að vera frekar hefðbundið hip-hop lag, en svo ákvað ég að reyna að gera þetta svolítið poppaðra og Drake-legra. Ég vildi til dæmis ekki nota mikla hi-hata eins og er svo vinsælt í hip- hopi í dag, þótt ég hafi verið mjög nálægt því í lokin. Ég er mikill aðdáandi þess að nota alvöru hljóðfæri. Það er svo lítið notað af þeim í nútímatónlist – og sérstaklega íslenskri tónlist. Í þessu lagi er það þetta bjölluspil og svo einhverjar plastpípur sem ég tók upp og spilaði svo inn með sampler- um. Ég held að bjölluspilið sé það sem gerir lagið að þessu „feel-good“ lagi sem það er,“ útskýrir hann. „Það er líka rosa skrýtið slag- verk í þessu lagi, furðuleg hljóð – eins og til dæmis hljóð sem heyr- ist þegar ég tromma með nöglinni á tölvuna mína. Svo er þarna bassa tromma og önnur sem ég er búinn að klippa botninn af og setja „ chorus“ á. Þetta gerir lagið svolítið ryþmískara. Pælingin var að gera þetta allt svolítið lifandi. Það er oft sem menn mastera lögin þannig að allt sé frekar flatt, en það var mjög meðvitað að láta lagið byrja lágt og verða svo smám saman hærra.“ Aldur: 18 Önnur nýleg lög: Chase - Þekkir þá, Chase - Blame Me. Samstarfsfólk: Chase. Forrit: Logic Maðurinn á bak við Hógvær með Emmsjé Gauta Maðurinn á bak við Ég vil það með Chase og JóaPé Maðurinn á bak við Sólsetrið með Sama- Sem
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.