Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.10.2017, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 24.10.2017, Qupperneq 4
 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 BÚRIÐ RÍGHELDUR ÖLLUM – sleppur einhver heill á húfi? Lilja Sigurðardóttir er spennusagna- höfundur sem bregst ekki lesendum Bergens Tidende (um Gildruna) Heilbrigðismál Í um það bil tíu skipti á ári þarf að flytja Akureyr- inga af Sjúkrahúsinu á Akureyri til legudvalar í öðrum sveitarfélögum. Ingvar Þóroddsson, staðgengill framkvæmdastjóra lækninga hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir ástæðuna vera skort á legurýmum á Akureyri. Forstöðumaður Öldrunar- heimila Akureyrar er ósammála því að það þurfi fleiri hjúkrunarrými. Einar Guðbjartsson, 66 ára íbúi á Akureyri, varð fyrir því óláni að tví- lærbrotna í sumar. Hann var fluttur eftir aðgerð á öldrunarheimilið Hornbrekku í Ólafsfirði fjarri sínum nánustu og hefur engin tengsl við Ólafsfjörð. „Ég er bara hérna í geymslu og hef verið síðan ágúst. Ég bíð eftir því að komast inn á Kristnes í endurhæf- ingu innan um aldraða sem hér búa á Hornbrekku. Þetta er löng ferð fyrir fjölskylduna ef hún vill kíkja í kaffi til mín,“ segir Einar. Hann segir það afar undarlegt að þurfa að vera fluttur  á milli sveitarfélaga  vegna þessa óhapps og vill fyrir alla muni liggja á Akureyri frekar en á Ólafs- firði. „Það svo sem fer ágætlega um mig hér og ekkert við starfsfólkið hér að sakast. Það eru hins vegar bara fífl í þessari bæjarstjórn á Akureyri sem vilja frekar byggja rennibrautir en að byggja upp þjónustu í heil- brigðismálum.“ Ingvar Þóroddsson segir eina ástæðu þess að sjúklingar séu fluttir í aðrar stofnanir utan Akureyrar sé plássleysi á Akureyri. „Þegar einstaklingar eru í bið eftir því að komast í endurhæfingu og þurfa því að liggja lengi á hjúkr- unarheimili er reynt eftir fremsta megni að hafa þá sem næst heim- ili sínu. Hins vegar gerist það að sjúklingar eru fluttir annað. Það er í sjálfu sér betra fyrir þá að vera í hjúkrunarrými en á bráðadeild þar sem erillinn er mikill,“ segir Ingvar. „Það væri auðvitað æskilegra ef hægt væri að setja upp fleiri legu- rými á Akureyri fyrir þennan hóp.“ Halldór Guðmundsson, for- stöðumaður Öldrunarheimila Akureyrar, segir ekki skort á dvalar- rýmum. „Í raun gæti það verið að það séu of mörg hjúkrunarrými. Við þurfum heilsteypta samfellu í þjónustu fyrir þennan hóp frekar en aukna steinsteypu. Til að mynda er alltaf hópur sem á einhverjum tímapunkti þurfti á dvalarrými að halda en þarf það ekki í dag,“ segir Halldór. Einar er nú á Ólafsfirði og má ekki stíga í fótinn fyrr en í fyrsta lagi í desembermánuði. Endurhæfing hans mun fara fram á Kristnesi í Eyjafirði og því er nokkur tími þar til Einar kemst til síns heima á Akur- eyri. sveinn@frettabladid.is Tvílærbrotinn fluttur til legu á elliheimili fjarri fjölskyldunni Tvílærbrotinn karlmaður var fluttur frá Akureyri til Ólafsfjarðar til legu á elliheimili eftir aðgerð sem hann þurfti að undirgangast. Ekki er aðstaða fyrir hann að liggja á Akureyri þar sem er bæði sjúkrahús og öldrun- arheimili. Maðurinn hefur engin tengsl við Ólafsfjörð og segist upplifa að hann hafi verið settur í geymslu. Staðgengill framkvæmdastjóra lækninga hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri segir skort á legurýmum þar. FréttAblAðið/pjetur Halldór S. Guðmundsson. forstöðumaður Öldrunarheimila Akureyrar stjórnmál Sjávarútvegsfyrirtæki eru stærstu styrkveitendur stjórn- málaflokkanna í fyrra  samkvæmt ársreikningum þeirra fyrir 2016. Sjáv- arútvegsfyrirtæki sem veittu flokk- unum 400 þúsund króna hámarks- framlag styrktu fimm af sjö flokkum á þingi um alls 13,6 milljónir; ríflega 40 prósent af heildarhámarksfram- lögum flokkanna fimm. Brim hf., HB Grandi og Samskip voru einu fyrir- tækin sem styrktu alla þessa flokka með hámarksframlögum. Björt fram- tíð þáði engin framlög frá fyrirtækj- um og engin útgerðarfélög styrktu Pírata sem þáðu engin framlög frá fyrirtækjum yfir 200 þúsund krónur. Þá styrktu 26 fyrirtæki Sjálfstæðis- flokkinn um hámarksfjárhæð, alls 10,4 milljónir. Þar af voru 12 sjávar- útvegsfyrirtæki sem veittu flokkn- um 4,8 milljónir. Alls fékk flokkurinn 19,1 milljón frá lögaðilum og rúma 41 milljón frá einstaklingum í fyrra. Tuttugu fyrirtæki styrktu Fram- sókn með hámarksframlögum, alls 8 milljónir en þar af voru 11 útgerðar- félög með alls 4,4 milljónir. Alls fékk flokkurinn 13,7 milljónir frá lögaðil- um og 11 milljónir frá einstaklingum. VG þáðu átta hámarksframlög frá fyrirtækjum, alls 3,2 milljónir. Þar af helmingur frá sjávarútvegs- fyrirtækjum. Alls fékk flokkurinn 6,7 milljónir frá lögaðilum og 12 milljónir frá einstaklingum. Tíu fyrirtæki styrktu Sam- fylkingu um 400 þúsund krónur, alls fjórar millj- ónir, þar af fjögur útgerðar- félög um alls 1,6 milljónir. Flokkurinn fékk 7,4 millj- ónir frá lögaðilum en 13 milljónir frá einstakling- um. Viðreisn, sem birti árs- reikning sinn fyrr í haust, þáði hámarksframlög frá þremur útgerðarfyrir- tækjum, alls 1,2 milljónir. Alls styrktu tuttugu fyrirtæki flokkinn með hámarksfram- lagi á stofnárinu. Framlög frá lögað- ilum námu 16,4 milljónum en einstaklingum tíu milljónum. Framsókn skilaði 26 milljóna króna hagnaði í fyrra, en Sjálfstæðis- flokkur skilaði 6 milljóna hagnaði. Píratar skiluðu 7 milljóna hagnaði. VG skilaði 19,5 milljóna króna tapi samanborið við 22,8 milljóna króna hagnað árið 2015. Björt framtíð skil- aði rúmlega 10 milljóna króna tapi líkt og Viðreisn. Tap Samfylkingar var tæplega 34 milljónir króna í fyrra en árið 2015 hafði hagnaður verið 21 milljón. – smj Útgerðarfyrirtækin dældu peningum í stjórnmálaflokkana Flokkarnir sem þessi hópur fólks leiddi í þing- björt framtíð þáði engin framlög frá fyrirtækjum. DAnmÖrK Sért þú danskur hesta- eigandi og viljir að fákur þinn verði æti fyrir ljón þar í landi þá gætir þú þurft að bíða í allt að hálft ár eftir því að láta það gerast. Í fréttum danskra fjölmiðla segir að hingað til hafi tíðkast að fá endurvinnslufyrirtæki til að hirða hræ dýranna eftir aflífun. Það kostar hins vegar allt að 3.700 krónur danskar eða tæpar 62 þúsund krón- ur íslenskar á gengi dagsins í dag. Það að gefa dýragarðinum í Kaup- mannahöfn hræin kostar aftur á móti ekki eyri. Þar er kjötið brúkað sem æti fyrir ljónin sem þar lifa. Lausnin er svo vinsæl að offramboð er á kjöti handa ljónunum. Biðlisti hefur því verið settur upp þar sem hrossaeigendur geta skráð dauð- vona dýr sín. – jóe Bið eftir að gefa ljónum að éta stjórnsÝslA Kaupverð Geysis ætti að liggja fyrir innan fárra vikna. Málið hefur verið lagt í dóm mats- manna. Ríkið keypti Geysi í fyrra en kaup- verð lá ekki fyrir. Þriggja manna nefnd var komið á fót sem skyldi ákveða ásættanlegt verð. Sú nefnd hefur nú fengið öll gögn í hendurnar og er áætlað að hún skili niðurstöðu ekki miklu síðar en innan fjögurra vikna. „Það var málflutningur í síðustu viku þar sem landeigendur og ríkið fengu að koma sínum sjónarmiðum að,“ segir Hjörleifur B. Kvaran, lög- maður Landeigendafélagsins. Að auki voru sérfræðingar fengnir til að koma sjónarmiðum að. Uni annaðhvort ríkið eða land- eigendur ekki niðurstöðunni er hægt að vísa málinu til fimm manna gerðardóms. Niðurstaða hans verð- ur endanleg. – jóe Verðmiði Geysis er væntanlegur 2 4 . o K t ó b e r 2 0 1 7 Þ r i ð j U D A g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 2 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 A -A A D 8 1 E 0 A -A 9 9 C 1 E 0 A -A 8 6 0 1 E 0 A -A 7 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.