Fréttablaðið - 24.10.2017, Síða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Störfin eru
manneskju-
legri en áður,
og fólk finnur
sér farveg þótt
breytingar til
skamms tíma
geti verið
sárar.
Kosningaloforðum fylgir ákveðin mótsögn. Á einn háttinn er linnulaus eftirspurn eftir þeim. Á hinn bóginn vitum við öll að flokkar „svíkja“
þau yfirleitt, eða öllu heldur, mistekst að uppfylla
þau. Samt er sífellt krafist fleiri kosningaloforða,
sérstaklega í risavöxnu, flóknu málaflokkunum sem
krefjast yfirlegu og raunsæis.
Allir flokkar kannast við kröfur um já/nei svör við
flóknum spurningum og galdralausnir á samfélags-
ins stærstu vandamálum. Flottastir þykja flokkarnir
sem veita einföldustu svörin, því þau teljast skýrust.
En einföldustu svörin eru einmitt þau hættulegustu
vegna þess að þau taka ekki tillit til tveggja stað-
reynda: Mikilvægustu vandamálin eru jafnan þau
flóknustu og enginn einn flokkur ræður einn að
loknum kosningum.
En það þarf auðvitað að spyrja og fá svör, þannig að
hvað er til ráða?
Í fyrsta lagi þurfa flokkar að gera heimavinnuna
sína. Það kostar þá tíma, vinnu og glerhart, stundum
sársaukafullt raunsæi. Það er ábyrgð sem skortir nær
algerlega í íslenskum kosningabaráttum.
En þeir þurfa líka að geta rætt tillögur sínar og
hugmyndir án þess að þær séu sjálfkrafa túlkaðar sem
einhvers konar „loforð“. Flokkar þekkja ekki fram-
tíðina fyrirfram og atkvæði gera ekki frambjóðendur
almáttuga. Mun ábyrgara er að flokkar bjóði fram
áætlanir og sýni með gögnum hvernig þær standist,
þannig að þeir þurfi einfaldlega ekki afsakanir fyrir
aðgerðaleysi seinna meir.
Áherslur Pírata eru það; áherslur. Í stað þess að
treysta á góðar afsakanir fyrir því að geta svikið loforð
með góðri samvisku seinna meir, búum við frekar
undir okkar áherslur með því að gera þær einfaldlega
sem raunhæfastar og sem opnastar fyrir gagnrýni og
samstarfi við aðra. Þetta gerum við með því að birta
opinberlega áætlanir okkar um fjármögnun áherslna
okkar.
Við vonum að kjósendur kunni að meta þessa til-
raun og taki þátt í henni með því að ljá okkur atkvæði
sitt í komandi kosningum.
Ný stjórnmál
Helgi Hrafn
Gunnarsson
í 1. sæti Pírata í
Reykjavík suður
2017
Mun ábyrgara
er að flokkar
bjóði fram
áætlanir og
sýni með
gögnum
hvernig þær
standist.
Gámahús/vinnubúðagám
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að
kaupa eða leigja gámahús/vinnubúðagám með salernis- og
baðaðstöðu, eldhúsi og öðrum nauðsynlegum útbúnaði
sem slíkur búnaður þarf að uppfylla reglur um aðbúnað og
hollustuhætti.
Vinsamlegast skilið inn verði og lýsingu á gámahúsi/
vinnubúðum á netfangið dora@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Steindór Ívar Ívarsson
í gegnum netfangið steindor@akureyri.is
Akureyrarbær, Geislagötu 9, 600 Akureyri, sími 460-1000
Starfandi samgöngu- og sveitarstjórnarráð-herra hefur skipað starfshóp til að endur-skoða regluverk um leigubifreiðaakstur. Hópurinn á að skila rökstuddum tillögum til ráðherra um miðjan janúar á næsta ári.Markmið verkefnisins er að leigubif-
reiðaakstur hér á landi stuðli að góðri þjónustu og
hagkvæmni, svo og öruggri leigubifreiðaþjónustu
fyrir neytendur. Í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð
hefur leigubílalöggjöfin verið endurskoðuð og færð í
frjálsræðisátt. Hins vegar hefur löggjöfin hér landi og í
Noregi lengi verið óbreytt en hún er um margt svipuð
í báðum ríkjum.
Sjálfur hefur ráðherrann lýst því, að opna þurfi
þetta kerfi meira en verið hefur og nauðsynlegt sé að
vera í samræmi við þróun samfélagsins í þeim efnum.
Það er vel, enda hefur starfshópnum sérstaklega verið
falið að skoða hvort rétt sé að gera ráð fyrir þjónustu á
borð við Uber hér á landi og ef svo er, hvaða breyt-
ingar séu nauðsynlegar á íslenskri löggjöf til að svo
megi verða.
Ljóst er að alvarlegar samkeppnishindranir ríkja
á íslenskum leigubílamarkaði. Fjöldatakmarkanir
á atvinnuleyfi voru upphaflega settar að beiðni
Hreyfils. Takmarkanirnar höfðu í för með sér vernd
sérhagsmuna – tilgangurinn ávallt sá að tryggja hags-
muni leyfishafa, efla verkefnastöðu þeirra og auka
tekjur. Tilgangurinn aldrei sá að vernda neytendur.
Hræðsluáróður handhafa sérhagsmuna slær því ryki í
augu neytenda.
Formaður Frama, félags leigubílstjóra hefur látið
hafa eftir sér þegar þessi mál hefur borið á góma,
að engin þörf sé á fjölgun leyfa til leigubílaaksturs.
Tekjur leigubílstjóra muni minnka haldi samgöngu-
ráðherra því til streitu að fjölga leyfunum. Í dag bíði
leigubílstjórar aðgerðalausir í langan tíma eftir hverri
ferð.
Leigubílstjórum dagsins í dag stendur ekki einungis
ógn af snjallforritinu Uber eða sambærilegri þjón-
ustu, heldur einnig ökumannslausum bifreiðum, sem
koma á markað innan tíðar. Óumdeilt er að Uber
hefur umbylt bæði upplifun farþega og snarminnkað
kostnað við leigubílaferðir. Því er erfitt að sjá rök fyrir
því að leigubílarekstur eigi að njóta sérstakrar ríkis-
verndar, eða fá vernd fyrir tækninýjungum.
Alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hefur
rannsakað áhrif tækninýjunga á vinnumarkaðinn.
Niðurstaðan var afgerandi. Tækninýjungar verða
ekki til þess að störfum fækki, heldur skapast ný störf
sem vega upp á móti þeim sem úreldast. Stórkost-
lega hefur dregið úr hefðbundinni erfiðisvinnu, en í
staðinn hafa skapast störf við þjónustu, umönnun,
menntun og listir.
Með öðrum orðum, eftir því sem tækninni fleygir
fram batna lífsgæðin. Störfin eru manneskjulegri
en áður, og fólk finnur sér farveg þótt breytingar til
skamms tíma geti verið sárar.
Í grófum dráttum fer daglegt líf batnandi, þótt
vissulega geti stundum verið erfitt að skynja það í
umræðu hversdagsins.
Opnara kerfi
Björt
Undanfarnar vikur hefur Björt
framtíð róið lífróður í þeirri von
að halda mönnum inni á Alþingi.
Hingað til virðist sá róður litlu
hafa skilað en í nýjustu skoðana-
könnunum mælist flokkurinn
álíka sterkur og maltöl. Þrír af
sex oddvitum flokksins eru þing-
menn og þar af tveir ráðherrar.
Frá sjónarhóli áhorfandans
virðist sem langmest mæði á
Björt Ólafsdóttur umhverfis- og
auðlindaráðherra. Svo lítið fer
fyrir öðrum frambjóðendum að
einhverjir hafa velt því fyrir sér
hvort stutt sé þar til nafn flokks-
ins verður einfaldlega Björt.
Samráðherrar Bjartar úr Viðreisn
geta í það minnsta vottað fyrir að
ímyndarbreytingar korteri fyrir
kosningar geta skilað sér.
Umbylting samfélagsins
Í þessum dálki í gær var rætt
um undarlegt tíst Sjálfstæðis-
flokksins þar sem því var haldið
fram að Ísland væri örugg-
asta þjóð í heimi. Já, þjóð. Svo
var spurt hvort þörf væri á að
umbylta þjóðfélaginu. Kallað
var eftir útskýringum á tístinu.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
þingmaður flokksins, svaraði
kallinu og sagði að Ísland
mældist ítrekað með lægstu
glæpatíðni sem þekkist og væri
friðsælasta þjóð heims. Svarið
kallar á frekari útskýringar.
Hefur einhver flokkur kallað
eftir því að hér þurfi að auka
brotastarfsemi? joli@365.is
2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
A
-9
2
2
8
1
E
0
A
-9
0
E
C
1
E
0
A
-8
F
B
0
1
E
0
A
-8
E
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K