Fréttablaðið - 24.10.2017, Side 20
Það breytist enginn
í grey við það eitt
að hætta að vinna og fara
á eftirlaunaaldur. Þetta er
ótrúlega flottur, orku-
mikill og litríkur hópur
sem er enn í fullu fjöri og
vill ekki láta tala svona
um sig.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Hugmyndin kviknaði þegar ég horfði yfir á prjónakaffi eldri kvenna í Gerðubergi
þar sem fimmtíu til sextíu konur
setjast saman yfir kaffisopa og
hannyrðum á hverjum föstudegi.
Hvar voru herrarnir á meðan þær
voru að prjóna? Ég vissi að þeir
keyrðu elskurnar sínar í prjóna-
kaffið og biðu sennilega einir með
sjálfum sér á bókasafninu eða
fengu sér sundsprett á meðan, en
var kannski hægt að gera eitt-
hvað fyrir þá? Hvað myndu þeir
vilja? Vantaði þá ekki sams konar
vettvang til að hittast á og hafa
gaman, rétt eins og konurnar?“
segir Kristín Kristjánsdóttir, djákni
við Fella- og Hólakirkju, þar sem
vinsælt karlakaffi er orðið fastur
liður síðasta föstudagsmorgun í
hverjum mánuði.
Kristín er að tala um karlmenn
sem eru hættir að vinna, 67 ára og
eldri.
„Mig langaði til að þeir ættu sér
samastað til að hittast á, fá sér kaffi
og vínarbrauð, og kjafta svolítið
saman, rétt eins og við konurnar
gerum þegar við hittumst einar og
án karla. Í byrjun vissi ég ekkert
hvað ég væri að fara út í; hvort
Eldri borgarar eru engin grey
Körlum þykir ekki síður gaman að kjafta við aðra karla heldur en konum í saumaklúbbum. Slíkir
samfundir verða körlum mikilvægir þegar dagleg umgengni við vinnufélagana hættir á efri árum.
Kristín Krist-
jánsdóttir er
djákni í Fella- og
Hólakirkju, þar
sem karlar á
eftirlaunaaldri
koma til að
spjalla, fræðast
og kætast
saman síðasta
föstudagsmorg-
un í hverjum
mánuði.
MYND/ERNIR
Starfsfólk Fella- og Hólakirkju heldur saman utan um karlakaffið. Frá vinstri: Jón Ómar Gunnarsson prestur, kirkjuverðirnir Jóhanna Freyja Björnsdóttir og Kristín
Ingólfsdóttir og Kristín Kristjánsdóttir djákni. Á myndina vantar sóknarprestinn Guðmund Karl Ágústsson og séra Kristin Ágúst Friðfinnsson. MYND/ERNIR
það kæmu fjórir karla eða tíu, en í
fyrsta kaffið komu þeir þrjátíu og
sífellt bætist í hópinn enda mikil
ánægja með karlakaffið, þar sem er
mikið spjallað og hlegið yfir sæta-
brauði með sopanum.“
Sótt í viskubrunn gesta
Í karlakaffið hefur frá upphafi verið
boðinn valinn gestur til að spjalla
um lífið og tilveruna.
„Það finnst mér dýrmætt því
spurningar þess sem er hættur
að vinna eru allt aðrar en hins
vinnandi manns,“ segir Kristín.
„Meðal gesta hafa verið Þráinn
Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Saga Medica, sem talaði um
blöðruhálskrabbamein, hvað sé
hægt að gera og hvað menn geta
gert sjálfir; séra Vigfús Árnason
sem sagði sögur af sjálfum sér og
því hvernig er að vera hættur að
vinna, og Ómar Ragnarsson sem
reytti af sér brandara en talaði
líka um hvernig það er að vera
ekki lengur á launaskrá, sem eru
sannarlega viðbrigði.“
Næsti gestur í karlakaffið verður
Ellert B. Schram, fyrrverandi knatt-
spyrnumaður, ritstjóri og alþingis-
maður.
„Hingað kemur stór hópur karla
til að hlusta á erindi gestanna og
við starfsfólk kirkjunnar tökum
öll á móti körlunum. Hins vegar er
skilyrði að karlarnir njóti samvist-
anna einir í salnum, því rétt eins
og á samfundum kvenna breytist
flæðið þegar karl bætist í hópinn.
Í staðinn pössum við konurnar
upp á að nóg sé á könnunni,“ segir
Kristín kát.
„Þetta er fyrst og fremst notaleg
og skemmtileg stund. Karlar
af þessari kynslóð hafa margir
unnið mikið um ævina, ekki haft
tíma fyrir áhugamál og missa því
mikið þegar þeir hætta að vinna.
Margir eru óduglegir að drífa sig
út og vanafastir; fara bara í sinn
heita pott og þaðan heim, og því
þarf að ýta á þá að sýna sig og sjá
aðra. Í karlakaffinu hafa þeir kær-
kominn vettvang til að hitta aðra
karla, eignast nýja kunningja og
oftar en ekki koma góðir vinir sem
hafa tekið félaga sinn með og eiga
skemmtilega samveru.“
Aldur til að lifa og njóta
Kristín hefur í starfi sínu sem
djákni mikil samskipti við eldri
borgara og er farin að þekkja
þankagang þeirra vel.
„Ég heyri að eldri borgurum
leiðist hvernig oft og iðulega er
talað um þá í þjóðfélaginu. Það
breytist nefnilega enginn í grey við
það eitt að hætta að vinna og fara
á eftirlaunaaldur. Þetta er ótrú-
lega flottur, orkumikill og litríkur
hópur sem er enn í fullu fjöri og
vill ekki láta tala svona um sig.
Í stað þess að tala um dúllurnar
sem hlustuðu á harmóníkuleik á
elliheimilinu væri miklu nær að
lofa það í hástert að eldri borgarar
séu í þeirri eftirsóknarverðu stöðu
að geta djammað yfir hábjartan
daginn. Fólk leggst ekki sjálfkrafa
í kör við það að mæta ekki lengur
til vinnu að morgni; síður en svo.
Þá er einmitt tíminn til að lifa og
njóta, og gott að hafa fastan lið í
tilverunni eins og karlakaffið þar
sem beðið er eftir manni í kaffi og
sögur!“
Karlakaffi Fella- og Hólakirkju
er síðasta föstudag hvers mánaðar,
á milli klukkan 10 og 11.30, næst
föstudaginn 27. október. Aðgangur
er ókeypis og eru karlar á eftir-
launaaldri hjartanlega velkomnir
að gera sér glaðan dag.
... allt sem þú þarft
Þú getur einnig lesið Fréttablaðið
í heild sinni á Vísi og í Fréttablaðs-appinu.
MEST LESNA
DAGBLAÐ
LANDSINS
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . o K tÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
A
-C
3
8
8
1
E
0
A
-C
2
4
C
1
E
0
A
-C
1
1
0
1
E
0
A
-B
F
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K