Fréttablaðið - 24.10.2017, Qupperneq 39
Bubbi Morthens tekur gamalt
og gott á Dillon í kvöld.
FréttaBlaðið/anton Brink
Eyþórsdóttir, lögreglufulltrúi
hatursglæpa og mannfræðingur,
Jóhann Björnsson heimspekingur
og Unnur Dís Skaptadóttir mann-
fræðingur.
Hvað? Útgáfuboð – Allt kann sá er
bíða kann
Hvenær? 17.00
Hvar? Norræna húsið
Í kvöld verður fagnað útkomu
bókar Silju Aðalsteinsdóttur
um Svein R. Eyjólfsson blaðaút-
gefanda, Allt kann sá er bíða kann.
Við viljum bjóða ykkur að vera
með okkur í Norræna húsinu
þann dag, þiggja léttar veitingar og
kynnast þessari athyglisverðu bók.
Tónlist
Hvað? Kvartett Þórdísar Gerðar á Kexi
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex hostel, Skúlagötu
Í kvöld kemur fram kvartett selló-
leikarans Þórdísar Gerðar Jóns-
dóttur. Auk hennar skipa hljóm-
sveitina þeir Andri Ólafsson á
kontrabassa, Matthías Hemstock
á slagverk og Steingrímur Teague
á píanó.
Hvað? Bubbi
Hvenær? 19.00
Hvar? Dillon, Laugavegi
Bubbi spilar á Dillon. Síðast spilaði
hann lög af nýjum diski, nú er
komið að gömlu lögunum. Miða-
verð er 3.500 kr. og með hverjum
miða fylgir drykkur á barnum.
Hvað? DJ Harry Knuckles
Hvenær? 22.00
Hvar? Prikið, Bankastræti
Haraldur Kjúka sér um tónlistina
á Prikinu þetta kvöldið. Það hlýtur
bara að vera í góðu lagi.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
HRÍFANDI SAGA
Bók um konu á krossgötum,
glötuð tækifæri og drauma
sem enn geta ræst
„Ofsalega fallega
skrifað ... svo mikil hlýja
og væntumþykja ...“
FRIÐRIKA BENÓNÝSDÓTTIR / KILJAN (um Bjarna-Dísu)
„Hrífandi falleg bók ...
alveg magnað verk.“
HRAFN JÖKULSSON / KILJAN (um Ljósu)
Tónlistarkonan María Magnús-
dóttir var að gefa út plötuna Sink-
ing Island undir listamannsnafninu
MIMRA. „Að opna sig persónulega
er auðvitað skrítin tilfinning og
verður raunverulegri þegar lögin
líta loksins dagsins ljós í hljóðriti og
maður fer að tala um tilurð þeirra,“
segir María um lög plötunnar
sem eru innblásin af lífi og tilveru
Maríu seinustu ár. Ást og ástarsorg
kemur þar við sögu en María gekk
til að mynda í gegnum skilnað ekki
alls fyrir löngu og flutti á nýjan og
ókunnan stað. „Ég held að sem
textahöfundur leiti maður alltaf að
einhverju leyti í eigið líf, svo það er
ekkert undarlegt að líf manns og
hjartasár blæði inn í ljóð og texta.
Mér finnst stundum auðveldara að
skapa upp úr erfiðum tilfinning-
um. Sköpunarkrafturinn fær extra
innspýtingu í sorg. Mörg lögin á
plötunni spretta upp úr sambands-
slitum, önnur lög eru upprunnin
annars staðar, úr öðrum tilfinning-
um. Það er bara svo ótrúlega gott að
geta samið um það sem veitir manni
innblástur hverju sinni.“
María er höfundur allra laga og
texta ásamt því sem hún sá um
upptökustjórn, hljóðhönnun og
hljóðblöndun. Platan var masters-
verkefni hennar í tónsmíðum og
hljóðhönnun frá Goldsmiths Uni-
versity of London. Um hljómjöfnun
sá Bjarni Bragi Kjartansson og Sig-
ríður Hulda Sigurðardóttir hannaði
umslagið.
María er himinlifandi með
afraksturinn nú þegar platan hefur
litið dagsins ljós. „Ég er óendanlega
stolt af plötunni og lögunum. Þrátt
fyrir að vera mjög breið, tónlistar-
lega séð, rennur hún vel í gegn og ég
hef nostrað við hvert smáatriði. Ég
vona að það heyrist skýrt og greini-
lega og fái fólk til að vilja hlusta
aftur og aftur.“ – gha
Sköpunarkrafturinn fær innspýtingu í sorg
María heldur útgáfutónleika 8. nóv-
ember. FréttaBlaðið/Ernir
Mér finnst stund-
uM auðveldara að
skapa upp úr erfiðuM
tilfinninguM.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 23Þ R i ð J U D A g U R 2 4 . o k T ó B e R 2 0 1 7
2
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
A
-A
5
E
8
1
E
0
A
-A
4
A
C
1
E
0
A
-A
3
7
0
1
E
0
A
-A
2
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K