Fréttablaðið - 25.10.2017, Page 4
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15
„... stafar einlægni af ljóðunum og jafnvel
örlar á viðkvæmni.“
S TE INUNN ING A ÓT TA R S DÓT TIR / VÍ ÐSJÁ
„... vinaleg ljóðabók sem flytur ljóðrænan en
eitursvalan söng hins þroskaða Bubba Morthens ...“
HE LG A BIRGI SDÓT TIR / FR É T TA BL A ÐI Ð
„...Bubbi er fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.“
ÓL A FUR GU ÐS TE INN K R I S TJÁ N S SON / S TA R A FUGL
Heilbrigðismál Sjúkraflutninga-
menn á Suðurlandi eru settir í þá
stöðu að rukka erlenda ferðamenn
um greiðslu fyrir notkun sjúkrabíls
á meðan á ferðinni stendur. Þetta
finnst sjúkraflutningamönnunum
óþægilegt og vilja helst að Heil-
brigðisstofnunin sjálf sjái um að
rukka ósjúkratryggða fyrir ferð með
sjúkrabílum.
Samkvæmt reglugerð fyrir ósjúkra-
tryggða skal greiða gjald til rekstrar-
aðila sjúkraflutninga. Er upphæðin
40.600 krónur. Einnig þarf að greiða
2.500 króna gjald til eiganda bif-
reiðarinnar á hvern ekinn kílómetra.
Þar sem umdæmi HSU er nokkuð
víðfeðmt getur reikningurinn sem
sjúkraflutningamennirnir þurfa að
rukka orðið talsvert hár.
„Við höfum bent á þetta áður
en ekkert hefur breyst í þessum
efnum,“ segir Stefán Pétursson,
formaður Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna. „Það
er óþægilegt fyrir sjúkraflutninga-
menn sem eru að sinna sjúklingum
og vinna sér inn traust þeirra að
þurfa í sömu andrá að taka upp
posa og rukka ferðamenn um
þetta.“
Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi
hafa lent í því að fá tilkynningu um
slasaðan ósjúkratryggðan einstakling
við Gullfoss sem þurfti til Reykja-
víkur. Klukkan fer í gang við útkall og
þarf bíllinn að fara frá Selfossi. Síðan
þegar búið er að sinna sjúklingi á
vettvangi er hann fluttur til Reykja-
víkur. „Tíminn heldur samt áfram að
ganga þar til bíllinn er kominn aftur
á Selfoss og þurfum við því að áætla
þann aksturstíma. Því erum við að
rukka fjóra tíma fyrir svona,“ bætir
Stefán við.
Finnst óþægilegt að reiða fram
posann strax í sjúkrabílnum
Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi þurfa að taka fram posann og rukka ósjúkratryggða ferðamenn, en for-
maður Landssambands sjúkraflutningamanna segir óþægilegt að menn séu settir í þessa stöðu. Forstjóri
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands segir fyrirkomulagið til þæginda fyrir þjónustuþega og fyrir stofnunina.
Slysahætturnar leynast víða á ferðamannastöðum á Suðurlandinu. Fréttablaðið/Pjetur
Posarnir eru notaðir
til að spara öllum
fyrirhöfn.
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU
bANDArÍKiN Öldungadeildarþing-
maðurinn Jeff Flake mun ekki
sækjast eftir endurkjöri á næsta ári.
Ástæðan er samflokksmaður hans
og forseti Bandaríkjanna, Donald
Trump.
Flake, sem er þingmaður Repúbl-
ikanaflokksins fyrir Arizona-ríki,
kunngjörði ákvörðun sína með
þrumuræðu úr pontu öldunga-
deildarinnar í gær. Í ræðu sinni
sagði hann meðal annars að „skeyt-
ingarlaus, svívirðileg og ósæmandi
hegðun“ æðstu ráðamanna ríkisins
væri hættuleg lýðræðinu þar í landi.
„Við megum aldrei líta á þennan
reglulega og kæruleysislega gröft
undan okkar lýðræðislegu grunn-
gildum og hugsjónum sem venju-
lega hegðun,“ sagði Flake í ræðu
sinni.
Ræðu Flakes var fagnað innilega
á gólfi þingsins. Meðal þeirra sem
tóku undir málflutning hans voru
Repúblikanarnir John McCain,
þingmaður Arizona, og Bob Corker,
þingmaður Tennessee. – jóe
Þingmaður
hættir vegna
Trumps
jeff Flake, þingmaður arizona.
Fréttablaðið/ePa
slYs Lögreglu- og björgunarsveitar-
menn á Suðurlandi leituðu í gær á
Sólheimasandi að bandarískum
ferðamanni. Skömmu eftir hádegi
fannst lík við Jökulsá sem talið er
að sé af manninum.
Leit hófst að manninum í gær-
morgun eftir að aðstandendur hans
fóru að grennslast um afdrif hans
seint í fyrrakvöld. Hann kom hingað
til lands 12. október og hafði áætlað
að fara héðan degi síðar. Þegar hann
skilaði sér ekki aftur til Bandaríkj-
anna óskuðu aðstandendur eftir því
að leitað yrði að honum.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni á Suð-
urlandi segir að líkið hafi verið flutt
til Reykjavíkur þar sem kennsla-
nefnd Ríkislögreglustjóra, réttar-
meinafræðingur og tæknideild LRH
muni bera kennsl á hinn látna. Ekki
er talið að andlát hans hafi borið að
með saknæmum hætti. – skh
Ferðamaður
fannst látinn
lÖgreglUmál Greiningardeild Ríkis-
lögreglustjóra spáði því árið 2015 að
skipulögð glæpastarfsemi hér á landi
kæmi til með að aukast á næstu árum.
Ákalli um fjölgun lögreglumanna
vegna þeirrar spár var ekki sinnt.
Í gær kom út skýrsla greiningar-
deildarinnar um mat á skipulagðri
glæpastarfsemi hér á landi. Í skýrsl-
unni kemur meðal annars fram
að mikil aukning hafi orðið í sölu
vændis hér á landi og grunur leiki á
að starfsemin tengist mansali. Einn-
ig kemur fram að fíkniefnaneysla
sé að aukast og framboð á slíkum
efnum einnig.
„Það sem stendur upp úr er að
skipulagðri glæpastarfsemi er að
vaxa ásmegin og að lögreglan hefur
mjög takmarkaða getu til að vinna
frumkvæðisvinnu sökum manneklu
og fjárskorts,“ segir Ásgeir Karlsson
hjá greiningardeildinni.
Ásgeir segir að sambærileg grein-
ing hafi síðast verið gerð árið 2015.
Niðurstöður hennar hafi verið að
með aukinni hagsæld aukist líkur á
vændi, mansali og fíkniefnasölu og
-framleiðslu.
„Það er að koma á daginn núna.
Staðreyndin er sú að lögreglan hefur
um nokkurra ára skeið þurft að búa
við skerðingu. Það verður að taka
stöðuna nú alvarlega og ef ekki á illa
að fara verða menn að gjöra svo vel
og taka á þessu,“ segir Ásgeir. – jóe
Viðvörunum Ríkislögreglustjóra ekki svarað
Ásgeir Karlsson. Fréttablaðið/Pjetur
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri
HSU, segir þetta verklag til hægðar-
auka fyrir stofnunina. „Gjald fyrir
sjúkraflutninga erlendra ferða-
manna, hjá HSU, er innheimt sam-
kvæmt gjaldskrá. Til þæginda fyrir
bæði þjónustuþega og fyrir okkur,
er innheimt gjald af sjúklingi fyrir
sjúkraflutning á staðnum, eins og
aðra heilbrigðisþjónustu HSU,“ segir
Herdís. „Posarnir eru einnig notaðir
til að spara öllum fyrirhöfn, meðal
annars við að senda reikninga eftir á
til erlendra ferðamanna.“
Stefán segir það ekkert óeðlilegt
að greitt sé fyrir slíka þjónustu. Það
sé bara erfitt fyrir einstaklinga á vett-
vangi að þurfa að taka við greiðslu úr
hendi skjólstæðinga sinna. „Það er
einnig orðið verklag hjá okkur að við
þurfum að gera fólki grein fyrir kostn-
aðinum við þjónustuna. Það þarf að
vita að þjónustan er ekki ókeypis,“
segir Stefán. sveinn@frettabladid.is
2 5 . o K t ó b e r 2 0 1 7 m i ð V i K U D A g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
D
-D
2
2
0
1
E
0
D
-D
0
E
4
1
E
0
D
-C
F
A
8
1
E
0
D
-C
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K