Fréttablaðið - 25.10.2017, Síða 6

Fréttablaðið - 25.10.2017, Síða 6
Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is Rekstrarland er hluti af Olís Nilfisk fæst í Rekstrarlandi, Vatnagörðum 10. Þetta danska vörumerki þekkja flestir enda gæðaryksugur sem hafa þjónað íslenskum heimilum dyggilega í áratugi. Komdu og skoðaðu Nilfisk ryksugurnar og úrvalið af fylgihlutum, hausum, börkum og ryksugupokum. Rekstrarland er opið alla virka daga kl. 9–18. NILFISK er nauðsyn á heimilið Stjórnmál „Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gengist við eða talað um að  hér hafi orðið nokkur sið- ferðisbrestur eða rof á trausti milli þjóðar og þings í mjög stórum málum og hefur hrist hausinn við stórum málum eins og stjórnar- skrá og þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Ofan í kaupið bætast svo efnahagstillögur sem teikna upp framtíð sem er algjörlega andstæð því sem við stefnum að, svo ég bara sé engan grundvöll fyrir því,“ segir Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, spurður um mögulegt samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn. Logi  segir línurnar hafa verið að skýrast núna á síðustu dögum í gegnum áherslur flokkana. „Það er ljóst að hér eru að myndast tvær blokkir. Annars vegar um hægri stefnu og áframhaldandi misskipt- ingu auðs eða stjórn um félagslegan stöðugleika, mannúð og mannrétt- indi,“ segir formaður Samfylkingar- innar um horfurnar eftir kosningar. Hann segist vel geta hugsað sér stjórn nokkurra flokka og nefnir auk Samfylkingar Vinstri græn, Fram- sóknarflokk, Viðreisn og Pírata. Þótt engar formlegar viðræður eigi sér stað milli flokkanna fyrir kosningar eru forystumenn farnir að hringjast á og taka stöðuna. Símar formanna eru þó mismikið á tali og sumir vinsælli en aðrir eins og gengur. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við eru sammála um að svokölluð Lækjarbrekkutilraun vinstri flokk- anna fyrir síðustu kosningar hafi verið misráðin. Logi sér ekki grundvöll fyrir samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn eftir kosningar Formlegar viðræður milli flokka eru ekki fyrirhugaðar fyrir kosningar, að fenginni reynslu. Formenn flokka eru farnir að hringjast á og hlera stemningu hver hjá öðrum um mögulega myndun ríkisstjórnar eftir kosningar. Átakalínur hverfast annars vegar um afstöðu til Sjálfstæðisflokksins og hins vegar til litlu flokkanna sem gætu ráðið miklu um myndun ríkisstjórnar ef fleiri flokka en tvo þarf í stjórn. Forystumenn stjórnmálaflokkanna eru farnir að hringjast á og taka stöðuna þótt formlegar stjórnarmyndunarvið- ræður séu ekki hafnar. Sigurður Ingi útilokar ekki samstarf við Sigmund Davíð. FréttablaðIð/SaMSEtt MynD „Mér fannst þetta nú ekki koma neitt sérstaklega vel út síðast,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati um  möguleika á formlegum við- ræðum milli flokka fyrir kosningar. Aðspurð um óskasamstarfsflokka Pírata nefnir Þórhildur Sunna þá flokka sem störfuðu saman í stjórnar andstöðu á því kjörtíma- bili sem er að ljúka; Vinstri græn, Samfylkingu og Framsóknarflokk. „Það eru helst þeir flokkar sem eru til í að koma með okkur í stjórnar- skrármálin og raunverulegar kerfis- breytingar.“ Aðspurð hvort hún telji þessa flokka líklegasta til þess, segir Þórhildur Sunna: „Þeir eru allavega minnst líklegir til að vilja standa gegn því.“ Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru einkum tvær átaka- línur sem skipt geta miklu máli við myndun ríkisstjórnar eftir kosn- ingar. Annars vegar afstaða flokka til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn og hins vegar afstaða forystumanna til þess hvor flokkurinn eigi að mynda límið í ríkisstjórn, Framsóknar- flokkur eða Viðreisn. „Ég met stöðuna þannig að þrátt fyrir að útlit verði fyrir mikinn fjölda flokka á þingi þá verði ekki stjórnarkreppa eins og síðast,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og er bjart- sýn á að að unnt verði að mynda ríkisstjórn hvort heldur er til hægri eða vinstri. „Ég held að menn sjái æ betur að allt tal um tveggja flokka stjórn er gamaldags nálgun og engan veginn ávísun á stöðugleika. Þetta snýst fyrst og fremst um mál- efnin og þess vegna er ég bjartsýn.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, for- maður Framsóknarflokksins, lýsir þungum áhyggjum af óstöðugleika í  íslenskum stjórnmálum. „Það þarf að mynda öfluga starfhæfa ríkisstjórn til að ráða bót á þessum pólitíska óstöðugleika, honum verður að linna,“ segir Sigurður. Hann segir að ekki verði ráðin bót á vanda stjórnmálanna nema menn stigi upp úr skotgröfunum og  er sjálfur reiðubúinn að ganga á undan með góðu fordæmi:  „Það er enginn maður í stjórnmálum sem ég treysti mér ekki til að vinna með,“ segir Sigurður þegar hann er spurður hvort hann sé reiðu- búinn að starfa með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins. Sigurður segist helst vilja sjá breiða stjórn fyrir miðju og segir Framsóknarflokkinn reiðu- búinn að taka þátt í slíkri stjórn. adalheidur@frettabladid.is lÖGrEGlUmál Yfirtollvörður á Kefla- víkurflugvelli segir að fjölga þurfi tollvörðum til muna ef þeir eigi að sinna eftirliti með öllum starfs- mönnum flugvallarins. Í gær var sagt frá því að lög- reglan á Suðurnesjum hefði fyrr í mánuðinum handtekið þrjá karl- menn vegna stórfellds þjófnaðar á tollfrjálsum varningi frá flug- þjónustufyrirtæki á flugvellinum. Tveir mannanna störfuðu á flug- vellinum en sá þriðji sá um að koma varningnum í verð. Höfðu þeir meðal annars stolið miklu af kjöti en talið er að um hundruð kílógramma, hið allra minnsta, sé að ræða. „Það er alveg ljóst að starfs- mönnum okkar hefur ekki fjölgað í samræmi við aukna umferð og aukinn fjölda starfsfólks á vellinum. Á hverjum degi eru um 30 þúsund manns sem fara um völlinn og að auki eru sex þúsund manns sem starfa á vellinum,“ segir Kári Gunn- laugsson, yfirtollvörður á Kefla- víkurflugvelli. Að sögn Kára er umfangsmikið eftirlit með starfsfólki þegar það kemur inn og fer út af svæðinu en ómögulegt sé að vera með 100 pró- sent eftirlit með öllum, alltaf. Sem stendur séu tollverðir um fimmtíu talsins en milli tíu og fimmtán eru á vakt hverju sinni. „Ef við ættum ávallt að hafa algjört eftirlit með öllum þá þyrfti að fjölga okkur tollvörðum um hundruð prósenta,“ segir Kári. – jóe Þyrfti margfalt fleiri tollverði til að geta sinnt eftirliti með öllum Það er talið að brot mannanna þriggja hafi staðið yfir um árabil. FréttablaðIð/antOn brInK Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður 2 5 . o k t ó b E r 2 0 1 7 m I Ð V I k U D A G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A Ð I Ð 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 D -E 5 E 0 1 E 0 D -E 4 A 4 1 E 0 D -E 3 6 8 1 E 0 D -E 2 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.