Fréttablaðið - 25.10.2017, Side 10
Kína Á þriðja þúsund fulltrúa á
landsþingi Kommúnistaflokks
Kína greiddu í gær atkvæði með
því að nafn og hugmyndafræði for-
setans Xi Jinping skyldi innleiða
í stjórnarskrá flokksins. Enginn
andmælti tillögunni eða sat hjá. Xi
Jinping styrkir með þessu stöðu sína
sem leiðtogi Kínverja en það hefur
hann gert stöðugt frá því hann tók
við embættinu árið 2012.
Fyrri leiðtogar Kommúnista-
flokksins hafa fengið ýmsar hug-
myndir og stefnur ritaðar í stjórn-
arskrá flokksins en til þessa hafði
einungis stofnandinn Maó Zedong
fengið nafn sitt og sérstaka hug-
myndafræði innleidda í plaggið.
Virðingin fyrir Xi er því greinilega
mikil enda er hann settur á sama
stall og stofnandi alþýðulýðveldis-
ins. Þess ber þó að gera að Deng
Xiaoping, sem leiddi flokkinn frá
1982 til 1987, fékk nafn sitt einnig
ritað í stjórnarskrá flokksins. Það
gerðist þó eftir andlát hans.
„Xi Jinping hefur nú fengið stuðn-
ing ríkisins gulltryggðan. Hann
getur orðið keisari alla sína ævi og
verið í embætti eins lengi og heilsa
hans leyfir,“ sagði Willy Lam, pró-
fessor í kínverskum fræðum við
Kínverska háskólann í Hong Kong,
við CNN í gær.
Jafnframt sagði Lam að stjórnar-
skrárbreytingar flokksins myndu
leiða til þess að flokkurinn hefði
enn meiri völd og myndi hafa enn
meiri afskipti af daglegu lífi Kín-
verja. Xi hafi með þessu brotið á bak
aftur stefnu Dengs um valddreifingu
og snúið aftur til hugmyndarinnar
um hinn eina, sterka leiðtoga.
Landsþing flokksins skipaði
einnig í fjölmargar nefndir og í
embætti héraðsformanna flokks-
ins, ríkisstjóra og forstjórastóla
ýmissa ríkisrekinna fyrirtækja.
Hins vegar er ljóst að ekkert hefur
vakið jafnmikla athygli og hug-
myndafræði Xis.
Hugmyndafræðin ber nafnið
„Hugmyndir Xi Jinping um nýtt
tímabil sósíalisma með kínverskum
einkennum“. Nafnið hefur þótt
óskýrt en í greiningu New York
Times á hugmyndafræðinni kemur
fram að orðin „nýtt tímabil“ gegni
þar lykilhlutverki.
Xi hefur áður lýst sögu kínverska
alþýðulýðveldisins, sem stofnað
var árið 1949, sem hún skiptist í
tvö tímabil. Annars vegar þá þrjá
áratugi sem liðu eftir byltinguna og
valdatöku kommúnista. Það tíma-
bil hafi einkennst af stofnun sam-
einaðs alþýðulýðveldis og enda-
lokum borgarastyrjalda og innrása
erlendra herja. Hitt tímabilið sem
um ræðir eru þeir þrír áratugir
sem Deng var leiðtogi. Einkenndist
það tímabil af styrkingu og þróun
hagkerfisins og opnun Kína fyrir
umheiminum.
Með hugmyndafræði sína að
vopni vill Xi hefja þriðja tímabil
alþýðulýðveldissögunnar, að því er
kemur fram í greiningu New York
Times. Xi líti svo á að Maó hafi gert
Kína sjálfstætt, Deng hafi tryggt hag-
sæld og Xi sjálfur muni nú gera Kína
að sterku ofurstórveldi í heiminum.
Leiðtoginn ætlar sem sagt að
tryggja Kína það hlutverk að ríkið
sé leiðandi á sviði alþjóðastjórn-
mála. Hinn nýi sósíalismi Kínverja
muni verða nýr valkostur fyrir ríki
heimsins og að Kínverjar muni aldr-
ei samþykkja nokkuð sem grefur
undan hagsmunum þeirra.
thorgnyr@frettabladid.is
Xi styrkist og stendur nú við hlið Maós
Nafn og hugmyndafræði forseta Kína hafa verið rituð í stjórnarskrá Kommúnistaflokksins. Með því er hann settur á sama stall og Maó
Zedong, stofnandi alþýðulýðveldisins. Landsþing flokksins samþykkti einróma að innleiða hugmyndafræðina í stjórnarskrá sína.
Landsþingsfulltrúarnir risu úr sætum sínum og hlýddu á Alþjóðasöng verkalýðsins, Nallann, í lok þingsins. Allir
greiddu þeir atkvæði með því að innleiða hugmyndafræði Xi Jingping í stjórnarskrá flokksins. Nordicphotos/AFp
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is
Passat GTE Variant togar í mann.
Passat GTE Variant. Dráttarbeisli fylgir.
Nú fylgja dráttarbeisli með öllum Volkswagen Passat GTE Variant. Hann er jafnvígur á rafmagn og
bensín. Þú kemst flestra þinna ferða á raforkunni einni saman, en í langferðum tekur sparneytin
bensínvélin við. Láttu það eftir þér að krækja í nýjan Passat GTE Variant.
Verð frá 4.930.000 kr.
Við látum framtíðina rætast.
2 5 . o K t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a Ð I Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
E
-0
D
6
0
1
E
0
E
-0
C
2
4
1
E
0
E
-0
A
E
8
1
E
0
E
-0
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K