Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2017, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 25.10.2017, Qupperneq 10
Kína Á þriðja þúsund fulltrúa á landsþingi Kommúnistaflokks Kína greiddu í gær atkvæði með því að nafn og hugmyndafræði for- setans Xi Jinping skyldi innleiða í stjórnarskrá flokksins. Enginn andmælti tillögunni eða sat hjá. Xi Jinping styrkir með þessu stöðu sína sem leiðtogi Kínverja en það hefur hann gert stöðugt frá því hann tók við embættinu árið 2012. Fyrri leiðtogar Kommúnista- flokksins hafa fengið ýmsar hug- myndir og stefnur ritaðar í stjórn- arskrá flokksins en til þessa hafði einungis stofnandinn Maó Zedong fengið nafn sitt og sérstaka hug- myndafræði innleidda í plaggið. Virðingin fyrir Xi er því greinilega mikil enda er hann settur á sama stall og stofnandi alþýðulýðveldis- ins. Þess ber þó að gera að Deng Xiaoping, sem leiddi flokkinn frá 1982 til 1987, fékk nafn sitt einnig ritað í stjórnarskrá flokksins. Það gerðist þó eftir andlát hans. „Xi Jinping hefur nú fengið stuðn- ing ríkisins gulltryggðan. Hann getur orðið keisari alla sína ævi og verið í embætti eins lengi og heilsa hans leyfir,“ sagði Willy Lam, pró- fessor í kínverskum fræðum við Kínverska háskólann í Hong Kong, við CNN í gær. Jafnframt sagði Lam að stjórnar- skrárbreytingar flokksins myndu leiða til þess að flokkurinn hefði enn meiri völd og myndi hafa enn meiri afskipti af daglegu lífi Kín- verja. Xi hafi með þessu brotið á bak aftur stefnu Dengs um valddreifingu og snúið aftur til hugmyndarinnar um hinn eina, sterka leiðtoga. Landsþing flokksins skipaði einnig í fjölmargar nefndir og í embætti héraðsformanna flokks- ins, ríkisstjóra og forstjórastóla ýmissa ríkisrekinna fyrirtækja. Hins vegar er ljóst að ekkert hefur vakið jafnmikla athygli og hug- myndafræði Xis. Hugmyndafræðin ber nafnið „Hugmyndir Xi Jinping um nýtt tímabil sósíalisma með kínverskum einkennum“. Nafnið hefur þótt óskýrt en í greiningu New York Times á hugmyndafræðinni kemur fram að orðin „nýtt tímabil“ gegni þar lykilhlutverki. Xi hefur áður lýst sögu kínverska alþýðulýðveldisins, sem stofnað var árið 1949, sem hún skiptist í tvö tímabil. Annars vegar þá þrjá áratugi sem liðu eftir byltinguna og valdatöku kommúnista. Það tíma- bil hafi einkennst af stofnun sam- einaðs alþýðulýðveldis og enda- lokum borgarastyrjalda og innrása erlendra herja. Hitt tímabilið sem um ræðir eru þeir þrír áratugir sem Deng var leiðtogi. Einkenndist það tímabil af styrkingu og þróun hagkerfisins og opnun Kína fyrir umheiminum. Með hugmyndafræði sína að vopni vill Xi hefja þriðja tímabil alþýðulýðveldissögunnar, að því er kemur fram í greiningu New York Times. Xi líti svo á að Maó hafi gert Kína sjálfstætt, Deng hafi tryggt hag- sæld og Xi sjálfur muni nú gera Kína að sterku ofurstórveldi í heiminum. Leiðtoginn ætlar sem sagt að tryggja Kína það hlutverk að ríkið sé leiðandi á sviði alþjóðastjórn- mála. Hinn nýi sósíalismi Kínverja muni verða nýr valkostur fyrir ríki heimsins og að Kínverjar muni aldr- ei samþykkja nokkuð sem grefur undan hagsmunum þeirra. thorgnyr@frettabladid.is Xi styrkist og stendur nú við hlið Maós Nafn og hugmyndafræði forseta Kína hafa verið rituð í stjórnarskrá Kommúnistaflokksins. Með því er hann settur á sama stall og Maó Zedong, stofnandi alþýðulýðveldisins. Landsþing flokksins samþykkti einróma að innleiða hugmyndafræðina í stjórnarskrá sína. Landsþingsfulltrúarnir risu úr sætum sínum og hlýddu á Alþjóðasöng verkalýðsins, Nallann, í lok þingsins. Allir greiddu þeir atkvæði með því að innleiða hugmyndafræði Xi Jingping í stjórnarskrá flokksins. Nordicphotos/AFp HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is Passat GTE Variant togar í mann. Passat GTE Variant. Dráttarbeisli fylgir. Nú fylgja dráttarbeisli með öllum Volkswagen Passat GTE Variant. Hann er jafnvígur á rafmagn og bensín. Þú kemst flestra þinna ferða á raforkunni einni saman, en í langferðum tekur sparneytin bensínvélin við. Láttu það eftir þér að krækja í nýjan Passat GTE Variant. Verð frá 4.930.000 kr. Við látum framtíðina rætast. 2 5 . o K t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a Ð I Ð 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 E -0 D 6 0 1 E 0 E -0 C 2 4 1 E 0 E -0 A E 8 1 E 0 E -0 9 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.