Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 18
Á milli Sjúkratrygginga Íslands og flestra hjúkrunarheimila landsins er í gildi samningur
um þjónustu heimilanna við aldr-
aða. Meðal þess sem samningurinn
gerir kröfu um er að á heimilunum sé
haldin mjög nákvæm skráning um
„raunverulegan aðbúnað íbúa“ sem
opinberlega kallast skráning RAI-
mats.
Umfangið er mikið þar sem þrisvar
á ári er svarað um 400 spurningum
um hvern og einn íbúa. Því er ljóst að
gífurlegir fjármunir og dýrmætur tími
heilbrigðisstarfsfólks á hjúkrunar-
heimilum fer í RAI-matið.
Fjárveitingar fylgja ekki þróuninni
Mælitækinu er meðal annars ætlað að
meta gæði þjónustunnar sem heim-
ilin veita, þörf íbúa fyrir hjúkrun og
aðstoð ásamt því að móta einstakl-
ingsbundna meðferðaráætlun fyrir
hvern og einn íbúa og halda utan um
heilsufarsupplýsingar viðkomandi.
Niðurstöður RAI-mats eru saman-
burðarhæfar milli tímabila, hjúkr-
unarheimila og annarra landa og
gefa góða mynd af gæðamálum.
Niðurstöðurnar eru einnig lagðar til
grundvallar við veitingu fjármagns
til einstakra hjúkrunarheimila. Sem
dæmi um það voru greiddir um það
bil 26 milljarðar króna á árinu 2016
til hjúkrunarheimila í gegnum ofan-
greindan samning þar sem um 11
milljarðar skiptast eftir niðurstöðum
RAI-mælitækisins.
Gæðamatshlutinn er gífurlega
gagnlegur í núverandi útgáfu mæli-
tækisins og því viljum við halda. Sá
hluti sem snýr að útdeilingu fjár-
magns er umdeildari og úreltari
þar sem hann nær síður yfir þær
breytingar sem orðið hafa á starfi
hjúkrunarheimila á síðustu árum
og áratugum. Sífellt flóknari með-
ferð veikari einstaklinga, sem áður
var veitt á sjúkrahúsum er nú veitt á
hjúkrunarheimilum landsins.
Gamalt mælitæki
Vandinn sem blasir við þeim sem
vinna með RAI-mælitækið er að það
er tæplega 20 ára gamalt. Nýrri og
betri útgáfur eru til, en ekki fæst fjár-
magn til að uppfæra kerfið og færa
hjúkrunarheimilin nær nútímanum.
Ekki hefur heldur fengist fjármagn
til að leiðrétta innbyggðar skekkjur
í núverandi útgáfu þrátt fyrir ábend-
ingar þess efnis til velferðarráðuneyt-
isins. Nýrri útgáfa myndi einnig gefa
möguleika á að tengjast þeim mæli-
tækjum sem Landspítali og heima-
hjúkrun nota fyrir skjólstæðinga sína,
og auka þannig samfellu í meðferð og
öryggi upplýsinga.
Eftirliti verulega ábótavant
Í dag er staðan sú að það er enginn
opinber aðili sem hefur virkt eftirlit
með skráningu hjúkrunarheimila
í mælitækið. Hingað til hefur verið
brotalöm á því að opinber aðili kenni
starfsmönnum hjúkrunarheimila
hvernig eigi að skrá gögn í mælitækið
svo að skráning uppfylli opinberar
kröfur. Afleiðingin er því ósamræmd
skráning í kerfið og staðreyndin sú að
hið opinbera gerir kröfu um notkun
mælitækis sem ekki er tryggt að notað
sé með samræmdum og réttum hætti.
Fagráð sem m.a. hafði það hlutverk
var lagt niður í sumar án þess að við-
fangsefninu væri fundinn viðunandi
farvegur. Ef ekkert verður að gert
munum við áfram sitja uppi með
úrelt mælitæki sem ráðstafar, eins
og áður segir, milljörðum króna til
hjúkrunarheimila.
Geri gangskör að breytingum
Við köllum eftir að velferðarráðu-
neytið taki ábyrgð og gegni réttmætri
skyldu sinni og skipi nú þegar í stað
nefnd um mælitækið. Við köllum
einnig eftir að umrædd nefnd verði
skipuð fulltrúum notanda jafnt sem
eftirlitsaðila. Nefndin þarf að hafa
heimild og bolmagn til að standa
fyrir kennslu og uppfærslu á kerfinu
sem og virkt eftirlit með notkun þess.
Á þeim grunni er hægt að byggja upp
trúverðugt verkfæri í stað þess að sitja
uppi með úrelt mælitæki.
Úrelt kerfi RAI veltir allt að
11 milljörðum króna árlega
Nútímasamfélag án raf-magns er óhugsandi. Við t ö ku m ra f m a g n i s e m
sjálfsögðum hlut á hverjum degi
enda er það samofið flestu því sem
við tökum okkur fyrir hendur. Allir
gera ráð fyrir því að rafmagn sé ávallt
aðgengilegt úr innstungum heim-
ila og afhending þess örugg fyrir
rekstur fyrirtækja í landinu. En svo
er alls ekki. Raforkunni er nefnilega
misskipt eftir landshlutum. Sumir
landsmenn búa við skert aðgengi að
rafmagni. Ótrúlegt, en satt. Ástæðan
er ekki sú að það vanti raforku.
Öryggisleysi íbúa og atvinnulífs
Akureyri og Eyjafjörður allur býr
við raforkuskort þrátt fyrir að næg
orka sé til í landinu. Útsláttur er
algengur og þurfa íbúar og fyrirtæki
reglulega að sætta sig við skerta raf-
orku og sveiflur í raforkuflutningi.
Rafmagnstæki skemmast með til-
heyrandi kostnaði og fyrirtæki þurfa
að draga úr starfsemi eða koma sér
upp varaafli með dísilvélum eða
olíukötlum. Kostnaðurinn er fjór-
faldur á við rafmagnið og mengun
miklu meiri. Fyrirtæki verða fyrir
beinu tjóni vegna stöðvunar fram-
leiðslu og tjóns á búnaði. Atvinnu-
uppbygging á sér enga framtíð við
þessi skilyrði. Málið er grafalvarlegt
og þolir enga bið. Öryggi íbúa og
atvinnulífs á Akureyri og í Eyjafirði
er ógnað. Ef ekkert verður að gert þá
leggst byggðin af og Eyfirðingar flýja
til Reykjavíkur.
Ábyrgðarlaus pólitík flöskuháls
Byggðalínukerfið sem flytur raforku
milli landshluta er orðið áratuga-
gamalt og komið að þanmörkum.
Það getur ekki lengur afhent næga
orku með öruggum hætti eða tekið
við nýrri orku. Vandamálið tengist
ekki eingöngu Eyjafirði heldur
stefnir í orkuskort víða um land
á komandi áratugum við óbreytt
ástand. Miklar takmarkanir í
flutningskerfinu torvelda einnig
samkeppni á raforkumarkaði sem
leiðir af sér hærra raforkuverð og
óbreytt kerfi verður hindrun hvað
varðar þróun byggðar. Samkvæmt
nýlegri skýrslu Samtaka iðnaðarins
um innviði á Íslandi er uppsöfnuð
viðhaldsþörf í raforkuflutnings-
kerfinu um 70 milljarðar króna.
Framkvæmdatími endurnýjunar og
styrkingar byggðalínunnar er langur
og þess vegna þarf að hefjast handa
strax. Það má engan tíma missa.
Pólitíkin getur ekki tekið
ákvarðanir
Öflugir innviðir eins og raforka eru
lífæðar samfélagsins. Ef ekki verður
farið strax í uppbyggingu byggða-
línunnar mun það á næstu árum
leiða af sér margvíslega erfiðleika og
hafa áhrif á byggðaþróun í landinu.
Fyrir notendur raforku á Akureyri
og í Eyjafirði skiptir miklu máli að
áreiðanleiki raforkuafhendingar sé
í lagi. Ef notendur fá ekki raforku
þýðir það í flestum tilvikum mikil
óþægindi eða fjárhagslegt tap.
Eyfirðingar gera þá sjálfsögðu kröfu
að sitja við sama borð og aðrir lands-
menn hvað raforkuöryggi varðar.
Uppbygging og endurnýjun
byggða línukerfisins varðar auðvitað
hag allra landsmanna, um það geta
allir verið sammála. Til að geta hafist
handa þurfum við að vera sammála
um hvernig það er gert. Sú ákvörðun
þolir enga bið lengur.
Af hverju er Eyfirðingum
gróflega mismunað?
Um b o ð s m a ð u r s ku l d a ra hve t u r e i n st a k l i n g a í greiðsluerfiðleikum til að fá
endurgjaldslausa aðstoð embættis-
ins við úrlausn á fjárhagsvanda.
Embættið býður upp á almenna
ráðgjöf, úrræði greiðsluaðlögunar
og fjárhagsaðstoð til greiðslu trygg-
ingar fyrir kostnaði vegna gjald-
þrotaskipta. Þá er jafnframt hægt
að senda embættinu erindi sem
snerta málefni skuldara. Embættið
veitir hins vegar ekki almenna lög-
fræðiráðgjöf.
Með umsókn um ráðgjöf geta
einstaklingar fengið heildaryfir-
sýn yfir fjárhagsstöðu með tilliti til
eigna, skuldbindinga og greiðslu-
getu. Ráðgjafi leitar leiða til lausna
á fjárhagserfiðleikum, t.d. með skil-
málabreytingum, frystingu lána
eða samningum um greiðslu van-
skila. Ef vægari lausnir duga ekki er
lagt mat á hvort úrræði greiðsluað-
lögunar geti leyst fjárhagserfiðleika
viðkomandi.
Úrræði greiðsluaðlögunar er
opið öllum þeim sem uppfylla
ákveðin lagaleg skilyrði og berast
nú að meðaltali um 40 umsóknir
í mánuði hverjum. Meðal grunn-
skilyrða er að einstaklingur sé eða
verði um fyrirsjáanlega framtíð
ófær um að standa í skilum með
fjárskuldbindingar sínar. Í greiðslu-
aðlögun einstaklinga er leitast við
að ná frjálsum samningum við
kröfuhafa með það að markmiði
að koma á jafnvægi milli skulda
og greiðslugetu. Samningar um
greiðsluaðlögun geta m.a. kveðið
á um gjaldfrest, lægri afborganir
og eftirgjöf skulda. Í dag hafa tekið
gildi hátt í 3.200 samningar um
greiðsluaðlögun.
Fjárhagsaðstoð vegna skipta-
tryggingar er úrræði fyrir þá ein-
staklinga sem hyggjast leita gjald-
þrotaskipta en hafa ekki tök á að
standa undir tryggingu fyrir skipta-
kostnaði sem nemur 250.000 kr.
Ákveðin skilyrði eru fyrir veitingu
fjárhagsaðstoðar, m.a. að umsækj-
andi hafi reynt önnur greiðslu-
vandaúrræði eða umboðsmaður
skuldara meti það svo að önnur
úrræði séu ekki til þess fallin að
leysa greiðsluvanda umsækjanda.
Umboðsmaður skuldara hvetur
þá sem vilja kynna sér úrræðin
að lesa sér til um þau á heima-
síðu embættisins, www.ums.is. Á
heimasíðunni er jafnframt hægt
að leggja fram rafræna umsókn,
annaðhvort með íslykli eða raf-
rænum skilríkjum
Úrræði
umboðsmanns skuldara
Því er oft haldið á lofti, að mun-urinn á hægri og vinstri flokk-um sé sá að hægri flokkar leitist
við að lækka skatta, og „spara í opin-
berum útgjöldum,“ en vinstri flokkar
vilji hækka skatta til að standa undir
velferðinni.
Í fyrsta lagi snýst skattastefna
ekki fyrst og fremst um hækkun
eða lækkun skatta, heldur hvernig
skattbyrðinni er skipt. Í öðru lagi
er ekki alltaf samhengi milli hærri
skatta og aukinnar velferðar. Í þriðja
lagi er verulegt misræmi milli orða
og athafna þeirra flokka sem hafa
stjórnað undanfarna áratugi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur t.d.
verið í ríkisstjórn um 23 ár af síðustu
30 árum og allan þann tíma undir
slagorðum svonefndrar nýfrjáls-
hyggju, um lækkun skatta og talar nú
um „áframhaldandi lækkun skatta“.
Tekjuskattur
Ef við athugum hvernig tekjuskatt-
urinn hefur þróast á þessum tíma
kemur í ljós að persónuafslátturinn
hefur þrefaldast í krónutölu, meðan
almennt verðlag hefur hækkað næst-
um tvöfalt meira. Tekjuskatturinn
hefur því hækkað verulega, og hlut-
fallslega langmest á láglaunafólk.
Um leið hafa iðgjöld í lífeyrissjóði
hækkað talsvert, og það er auðvitað
bara skattur. „Áframhaldandi“ hvað?
Notendagreiðslur í heilbrigðis-
kerfinu hafa margfaldast, ásamt
ýmsum öðrum þjónustugjöldum.
Lóðagjöld og annar stjórnsýslukostn-
aður hefur hækkað verð á húsnæði,
og þar með skuldir almennings. Það
þyngir kostnaðinn við okurvexti og
verðbætur, sem eru í raun eins konar
skattur.
Lífsgæði
En þó að skattar á almenning hafi
óvart stórhækkað, í stað þess að
lækka, hefur það þá ekki skilað sér í
meiri velferð og bættum lífskjörum
á þann hátt? Þvert á móti. Fátækt
hefur stóraukist, og er í dag útbreitt
þjóðfélagsmein. Aðgangur að heil-
brigðiskerfinu er verulega skertur.
Aðgangur að menntun er á undan-
haldi. Ójöfnuður hefur aukist gríðar-
lega og réttindi vinnandi fólks eru í
uppnámi.
Þessi þróun hefur verið óháð því
hvaða flokkar hafa verið í stjórn,
enda hafa þeir allir stjórnað í beinu
umboði auðstéttarinnar, sem tekur
til sín æ stærri hlut gegnum fjármála-
kerfið og vaxandi tök á innviðum
samfélagsins.
Þessari þróun verður að snúa við
með baráttu alþýðunnar fyrir sínum
efnahagslegu og pólitísku hagsmun-
um. Fyrir félagsvæðingu fjármála-
kerfisins og annarra innviða sam-
félagsins, fyrir betri lífskjörum og
auknum jöfnuði. Baráttan gegn yfir-
ráðum auðstéttarinnar yfir samfélag-
inu verður að eflast á öllum sviðum.
Alþýðufylkingin væntir stuðnings frá
þér og þátttöku í þessari baráttu.
Skattar og lífskjör –
áróður og veruleiki
Jórunn María
Ólafsdóttir
hjúkrunarfor-
stjóri í Brákarhlíð,
Borgarnesi
María Fjóla
Harðardóttir
framkvæmda-
stjóri heilbrigðis-
sviðs Hrafnistu-
heimilanna
Sigmundur
Einar Ófeigsson
framkvæmda-
stjóri Atvinnu-
þróunarfélags
Eyjafjarðar
Akureyri og Eyjafjörður
allur býr við raforkuskort
þrátt fyrir að næg orka sé
til í landinu. Útsláttur er
algengur og þurfa íbúar og
fyrirtæki reglulega að sætta
sig við skerta raforku og
sveiflur í raforkuflutningi.
Rafmagnstæki skemmast
með tilheyrandi kostnaði og
fyrirtæki þurfa að draga úr
starfsemi eða koma sér upp
varaafli með dísilvélum eða
olíukötlum.
Vandinn sem blasir við þeim
sem vinna með RAI-mæli-
tækið er að það er tæplega 20
ára gamalt. Nýrri og betri út-
gáfur eru til, en ekki fæst fjár-
magn til að uppfæra kerfið
og færa hjúkrunarheimilin
nær nútímanum. Ekki hefur
heldur fengist fjármagn til að
leiðrétta innbyggðar skekkj-
ur í núverandi útgáfu þrátt
fyrir ábendingar þess efnis til
velferðarráðuneytisins.
Úrræði greiðsluaðlögunar er
opið öllum þeim sem upp-
fylla ákveðin lagaleg skilyrði.
Ásta S.
Helgadóttir
umboðsmaður
skuldara
2017
Þorvaldur
Þorvaldsson
trésmiður og
formaður Al-
þýðufylkingar-
innar
Fátækt hefur stóraukist,
og er í dag útbreitt þjóð-
félagsmein. Aðgangur að
heilbrigðiskerfinu er veru-
lega skertur. Aðgangur að
menntun er á undanhaldi.
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r18 s k o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
D
-C
D
3
0
1
E
0
D
-C
B
F
4
1
E
0
D
-C
A
B
8
1
E
0
D
-C
9
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K