Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 25
Landsbankinn býður fyrirtækjum alhliða lausnir fyrir fjármál þeirra. Hjá okkur starfa tugir sérfræðinga um land allt sem sérhæfa sig í þjónustu við fyrirtæki í öllum helstu greinum atvinnulífsins. Sérfræðiþekking á fjölbreyttum þörfum fyrirtækja landsbankinn.is 410 5000Landsbankinn Pantaðu viðtal hjá sérfræðingum okkar í síma 410 5000 eða sendu okkur tölvupóst á netfangið fyrirtaeki@landsbankinn.is. Í öllum fyrirtækjum er nauðsynlegt að geta gengið að fjölbreyttum lausnum sem styðja við reksturinn. Við leggjum mikið upp úr persónulegum tengslum og vandaðri þjónustu. Hjá fyrirtækjaþjónustu Landsbankans leggjum við okkur fram við að koma til móts við þarfir fyrirtækja. Við horfum fram á veginn þegar kemur að viðskiptasamböndum og störfum með fyrirtækjum á ólíkum vaxtarskeiðum. Netbanki fyrirtækja er upp- lýsingaveita sem eykur yfir- sýn og auðveldar stjórnendum ákvarðanatöku. Við bjóðum upp á greinargóðar innheimtu- skýrslur, beintengingu við bókhaldskerfi og kortalausnir sem einfalda innkaup. Við bjóðum ýmsar gerðir rekstrarlána, fjármögnum tækjakost, veitum fjárfestinga- lán og aðstoðum við fjár- mögnun á verðbréfamarkaði. Við ávöxtum fé og bjóðum virka eignastýringu fyrir eignir fyrirtækisins. Fjármögnun og eignastýring Öflugar netlausnir Vönduð fyrir- tækjaþjónusta Eigendur Atlantsolíu, sem rekur nítj- án sjálfsafgreiðslustöðvar á landinu öllu, kanna nú mögulega sölu á öllu hlutafé fyrirtækisins. Hafa þeir fengið endurskoðunar- og ráðgjafar- fyrirtækið Deloitte til að undirbúa Atlantsolíu fyrir söluferli, samkvæmt heimildum Markaðarins, en ákvörð- un um að bjóða félagið formlega til sölu hefur hins vegar ekki enn verið tekin. Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, stað- festir í samtali við Markaðinn að verið sé að skoða að selja fyrirtækið. Það komi til vegna áhuga sem inn- lendir aðilar hafi sýnt Atlantsolíu að undanförnu. Aðspurð segir Guðrún að ákvörðun um hvort félagið verði sett í opið söluferli muni liggja fyrir á allra næstu vikum. Eigendur Atl- antsolíu, sem er minnsta olíufélagið á íslenska markaðnum, eru Guð- mundur Kjærne sted og Bandaríkja- maðurinn Brandon Charles Rose. Atlantsolía var stofnuð sumarið 2002 og var fyrsta bensínstöð félags- ins opnuð ári síðar. Hagnaður Atlantsolíu á síðasta ári nam rúmlega 203 milljónum króna borið saman við hagnað upp á 50 milljónir árið áður, að því er fram kemur ársreikningi. Heildarvelta félagsins dróst hins vegar saman um 680 milljónir og var samtals 4.638 milljónir í fyrra. Samkvæmt heimildum Markaðarins gera áætl- anir stjórnenda Atlantsolíu ráð fyrir að afkoma félagsins fyrir fjármagns- liði, afskriftir og skatta (EBITDA) verði um 500 milljónir á þessu ári. Heildareignir námu rúmlega 3.700 milljónum í lok síðasta árs og eigið fé var um 840 milljónir. Eiginfjár- hlutfall félagsins er því rúmlega 22 prósent. Í skýrslu stjórnar Atlantsolíu segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um greiðslu arðs vegna afkomu síðasta árs. Á árinu 2016 greiddi félagið hins vegar tæplega 124 milljónir í arð til hluthafa. Í lok síðasta árs var Atlantsolía í hundrað prósent eigu Atlantsolíu Holdings ehf. en það er aftur í jafnri eigu bandarísku félag- anna Atlantsoliu Investments LLC og Atlantsoliu Holding LLC. Stjórnar- menn Atlantsolíu Holdings eru þeir Guðmundur Kjærnested og Brandon Rose. Sá sem er ráðgjafi Atlantsolíu varð- andi mögulega sölu á fyrirtækinu er Þór Hauksson í fjármálaráðgjöf Deloitte en hann var meðal annars áður yfir fjárfestingum og rekstri félaga hjá Framtakssjóði Íslands. Hræringar á markaði Miklar hræringar hafa verið á íslensk- um eldsneytismarkaði á undanförn- um misserum, ekki síst með aukinni samkeppni eftir komu Costco, og hafa olíufélögin leitað leiða til hag- ræðingar með sameiningum við félög í smásölu. Þannig var gengið frá endanlegum kaupsamningi fyrr í þessum mánuði vegna kaupa N1 á öllu hlutafé Festar, næst stærsta smá- sölufélags landsins, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Krónunnar og Elko. Samkvæmt sam- komulaginu er heildarvirði Festar tæplega 38 milljarðar króna. Þá var tilkynnt um kaup Haga á Olís fyrir um 9,2 til 10,2 milljarða króna í apríl síðastliðnum. Gert var ráð fyrir að kaupin gengju í gegn í lok þessa árs en kaupsamningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þá áform- aði Skeljungur einnig að kaupa allt hlutafé Basko, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum 10/11, fyrir um 2,2 milljarða en stjórn félagsins ákvað hins vegar um miðjan júlí á þessu ári að slíta þeim samningaviðræðum. Þegar starfsemi Costco hófst í maí síðastliðnum var félagið upp- haflega með tólf eldsneytisdælur en þeim var síðar fjölgað í sextán. Flest íslensku eldsneytisfélögin hafa brugðist við samkeppninni frá Costco. Atlantsolía með lægra verði á tveimur sjálfsafgreiðslustöðvum í nágrenni við Costco, Skeljungur með Orkunni X og N1 með Dælunni. Fram kom í ViðskiptaMogganum þann 5. október síðastliðinn að sam- kvæmt heimildum blaðsins þá næmi eldsneytissala Costco, ef tekið er mið af sölu frá opnun verslunarinnar, um 30 milljónum lítra á ársgrundvelli. Það væru um tíu prósent af allri bensínsölu á landinu og mætti áætla að tekjur Costco vegna eldsneytis- sölu nemi um fimm milljörðum króna á ári. hordur@frettabladid.is Eigendur undirbúa sölu á Atlantsolíu Eigendur Atlantsolíu, þeir Guðmundur Kjærnested og Brandon Rose, skoða nú sölu á öllu hlutafé félagsins. Ákvörðun um hvort farið verði í opið söluferli tekin á næstu vikum. Áætlanir gera ráð fyrir að EBITDA-hagnaður Atlantsolíu á þessu ári verði um 500 milljónir. 4,6 milljarðar króna nam velta Atlantsolíu á árinu 2016. Atlantsolía rekur 19 sjálfsafgreiðslustöðvar á landinu öllu. FréttAblAðið/Anton markaðurinn 3M I Ð V I K U D A G U R 2 5 . o K t ó b e R 2 0 1 7 A A 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 D -F E 9 0 1 E 0 D -F D 5 4 1 E 0 D -F C 1 8 1 E 0 D -F A D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.