Fréttablaðið - 25.10.2017, Side 32
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Ég endurnýti notaða kaffipoka, þeir eru þvegnir og klipptir í renninga sem ég skáflétta svo
úr verður taska eða karfa,“ segir
Astrid Björk Eiríksdóttir brosandi.
„Ég vel kaffipoka sem fara vel
saman hvað varðar lit og áferð. Eina
hættan er sú að maður kaupi kaffi
eftir því í hvernig pokum það er,
en ekki eftir bragðinu,“ segir hún
hlæjandi og bætir við að hingað
til hafi ekki verið mikið vandamál
að fá kaffipoka til að flétta úr. „Ég
drekk heilmikið kaffi sjálf en fólk
hefur einnig boðið mér kaffipoka
og þetta safnast einhvern veginn
saman.“
Töskur úr kaffipokum eru bæði
slitsterkar og léttar, að sögn Astrid-
ar, og endast vel. „Ég fléttaði stóra
tösku fyrir tveimur árum og nota
hana oft þegar ég fer út í búð. Hún
hefur reynst afbragðsvel og það er
tilvalið að nota hana í staðinn fyrir
plastpoka. Mér finnst líka gaman að
flétta litlar buddur og töskur og hef
áhuga á að þróa það áfram.“
Fléttað úr birkiberki
Astrid er ekki alveg ókunnug hand-
verki af þessu tagi. Svíþjóð hefur um
árabil verið hennar annað heimili
og þar í landi er löng hefð fyrir því
að flétta muni á borð við körfur og
skó úr birkiberki. „Sú aðferð er ekki
ólík þeirri sem ég nota við að flétta
úr kaffipokum. Finnsk vinkona mín
kenndi mér þessa aðferð og þetta
hefur þróast þannig að ég kenni
grunnnámskeið í skáfléttun hjá
Heimilisiðnaðarskóla Íslands.“
Áhugi Astridar á handavinnu
kviknaði strax í æsku og hún var
aðeins fjögurra ára þegar hún lærði
að prjóna. „Það kom þannig til að
mamma var að prjóna lopapeysu
og mig langaði til að gera eins og
hún og það leið ekki á löngu þar
til ég var búin að prjóna teppi í
dúkkuhúsið mitt. Á sumrin fór ég
til Svíþjóðar til afa og ömmu og þar
voru engir krakkar til að leika við
en amma var dugleg að hjálpa mér
við að prjóna peysur og ýmsa aðra
handavinnu svo ég hafði nóg fyrir
stafni. Ég hlakkaði alltaf til handa-
vinnutímanna í grunnskóla og
bókstaflega lifði fyrir þá tíma,“ rifjar
Astrid upp.
Endurvakti orkeringu
Á unglingsárunum lærði Astrid
orkeringu en það er gamalt hand-
verk sem tilheyrir íslenska þjóð-
búningnum og var um tíma við það
að deyja út. „Þegar ég var komin í
gaggó langaði mömmu að kenna
mér að orkera en hún hafði lært
það í sínum heimabæ, Vík í Mýrdal.
Orkering er í raun nokkuð flókið
handverk en um leið og ég náði
góðum tökum á að orkera fannst
mér það auðvelt og ekki síður
skemmtilegt. Ég fór á fullt að orkera
blúndur og seldi til þeirra sem voru
að sauma sér peysuföt. Svo var ég
beðin um að kenna orkeringu við
Heimilisiðnaðarskólann og ákvað
að slá til og hef nú haldið nám-
skeið í nokkur ár,“ segir Astrid.
„Mér finnst gaman að halda þessu
gamla handverki við og hef þróað
það áfram og bý líka til skart með
þessari aðferð.“
Þegar Astrid er spurð hvort hún
selji töskurnar eða skartið sem hún
gerir svo listilega vel segir hún svo
ekki vera. „Ekki enn þá en það er
aldrei að vita hvað verður í fram-
tíðinni,“ segir hún sposk að lokum.
Kaffipokar
fá nýtt líf
Astrid Björk Eiríksdóttir er mikil hand-
verkskona og virðist allt leika í hönd-
unum á henni. Hún notar óvenjulegt
efni og aðferð við að búa til körfur og
töskur sem hafa vakið mikla athygli.
Astrid hefur alla tíð haft mikinn áhuga
á handavinnu og virðist allt leika í
höndunum á henni.
Taska úr kaffipokum. MYNDir/EYÞÓr
Astrid lærði orkeringu þegar hún var unglingur.
Skart sem er gert
með orkeringu.
Kaffipokar verða að hátísku í meðförum Astridar.
ARKITEKTÚR, VERKFRÆÐI
OG HÚSBYGGINGAR
Hægt er að kaupa bæði auglýsingar og kynningar.
Nánari upplýsingar veitir:
Jóhann Waage, sölu og markaðsráðgjafi Fréttablaðsins.
Netfang: johannwaage@365.is • Sími 512 5439
Blað um Arkitektúr, Verkfræði og Húsbyggingar.
Kemur út þriðjudaginn 31. október.
4 KYNNiNGArBLAÐ FÓLK 2 5 . o K TÓ B E r 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
D
-F
E
9
0
1
E
0
D
-F
D
5
4
1
E
0
D
-F
C
1
8
1
E
0
D
-F
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K