Fréttablaðið - 25.10.2017, Síða 35
Þrif og ræstivörur –
Fágæt sérþekking og
persónuleg þjónusta
Þrif og ræstivörur á Akureyri er fyrirtæki með sérstöðu að sögn eigenda. Það rekur
annars vegar sérverslun með efni
og tæki til hreingerninga og veitir
hins vegar fyrirtækjum og ein-
staklingum víðtæka og fjölbreytta
ræstinga- og hreingerninga-
þjónustu.
Verslunin er að Frostagötu 4c
og er opin virka daga milli kl. 8 og
16. Þar er meðal annars að finna
hinar þekktu Evans hreinsivörur
frá Bretlandi og margvísleg önnur
hreinsiefni. Þar eru einnig margs
konar áhöld, vélar og tæki til
ræstinga: tuskur, svampar, sköft,
skúringavagnar og skúringafötur
með vindum. Af öðrum vörum
má nefna pappír, pappírsstanda
og sápuskammtara frá hinu virta
merki Katrin.
Enn fremur er mikið úrval af
ryksugum, gólfþvottavélum og
fleiru undir hinu klassíska Nilfisk
merki til sölu í versluninni, sem
og hreingerningavélar frá þýska
framleiðandanum Kärscher – en
þar ber hæst afar vinsæla vél til
heimilisnota sem bæði skúrar og
ryksugar.
Sérhæfð ráðgjöf
„Helsta sérstaða verslunarinnar
er kannski sú að þar starfar fólk
sem er að vinna með þessa hluti
alla daga. Viðskiptavinir fá því
mjög sérhæfða ráðgjöf um val og
notkun á efnum og tækjum. Þetta
er eitthvað sem fólk fær ekki annars
staðar, til dæmis í stórverslunum.
Mörg sterk
hreinsiefni eru
ekki fyrir alla og
þú getur skemmt
meira með þeim en
gert gagn. Það er mikil-
vægt að velja rétta vöru
sem hentar í viðkomandi
verkefni. Við höfum
alltaf lagt mikið upp úr
persónulegri og góðri
þjónustu,“ segir Sveinn
Rúnar, annar eigenda
fyrirtækisins, en hinn
eigandinn er eiginkona hans,
Birna Böðvarsdóttir.
Þjónusta einstaklinga
og fyrirtæki
Starfsemi Þrifa og ræstivara hefur
vaxið mikið í gegnum árin en fyrir-
tækið sinnir daglegum ræstingum
og hreingerningum fyrir hina ýmsu
aðila, stóra og smáa, fyrirtæki jafnt
sem einstaklinga og heimili. Starfs-
menn eru nú um 120 talsins.
Starfsemin nær víða út fyrir
Akureyri: „Við þjónustum
austur á firði og vestur fyrir
Blönduós. Við erum með föst
ræstingaverkefni á Akureyri,
Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði,
Siglufirði, í Mývatnssveit og
víðar.“
Meðal stórra viðskiptavina
Þrifa og ræstivara eru Samkaup
en fyrirtækið hefur séð um
ræstingar fyrir allar verslanir
Samkaupa á Norðurlandi í 12
ár; Samherji, Akureyrarbær,
Norðlenska, Íslandsbanki,
Sjúkrahúsið á Akureyri, Mjólkur-
samsalan og Eimskip svo nokkrir
aðilar séu nefndir.
Tækjabúnaður til sérverkefna
Sveinn Rúnar segir þörfina mikla
og er lögð mikil áhersla á faglega
ráðgjöf og persónulega þjónustu í
hreingerningunum, viðhaldi gólf-
efna og öðrum sérverkefnum. Fyrir-
tækið sinnir margs konar vanda-
sömum sérverkefnum en Sveinn
Rúnar telur að sú sérþekking sem
það búi yfir á þessu sviði sé fágæt:
„Við höfum líka sérhæft okkur
mjög í tækjabúnaði til að þjónusta
tryggingafélög í tjónamálum,“ segir
Sveinn Rúnar. „Við erum vel búnir
tækjum til að glíma við afleiðingar
vatnstjóna, erum til dæmis með
rakabúnað, skilvindur, blásara og
fleira sem til þarf. Einnig erum við
sérhæfð í að fást við brunatjón með
búnaði og tækjum til að fást við þrif
eftir bruna og eyða lykt.“
Að sögn Sveins Rúnars eru verk-
efnin óþrjótandi en mikil áhersla er
lögð á að viðhalda þeirri persónu-
legu þjónustu við viðskiptavini og
faglega ráðgjöf, sem ávallt hefur
einkennt starfsemi fyrirtækisins
þrátt fyrir að það stækki og
umsvifin aukist.
Nánari upplýsingar um starfsemina
veitir Sveinn Rúnar í síma 865 2425
en einnig er að finna upplýsingar á
Facebook-síðunni Þrif og ræstivör-
ur sem og á heimasíðunni thrif.is.
Þrif og ræstivörur er til húsa að Frostagötu 4 c á Akureyri og er opin virka daga milli kl. 8 og 16.
Kärscher vélin
sem bæði skúrar
og ryksugar
hefur slegið í
gegn hér á
landi.
Þrif og ræsti-
vörur rekur sér-
verslun með efni
og tæki til hrein-
gerninga. Fyrir-
tækið veitir einnig
fyrirtækjum og
einstaklingum
víðtæka ræstinga-
og hreingerninga-
þjónustu.
Verslunin býður mikið úrval af ryksugum, gólfþvottavélum og fleiru
frá Nilfisk.
Helsta sérstaða
verslunarinnar er
kannski sú að þar starfar
fólk sem er að vinna með
þessa hluti alla daga.
Viðskiptavinir fá því
mjög sérhæfða
ráðgjöf um val og
notkun á efnum og
tækjum.
Sveinn Rúnar Vatnsdal
KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 2 5 . o k tó b e R 2 0 1 7 hReINLæTISVöRUR
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
D
-D
C
0
0
1
E
0
D
-D
A
C
4
1
E
0
D
-D
9
8
8
1
E
0
D
-D
8
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K