Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2017, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 25.10.2017, Qupperneq 35
Þrif og ræstivörur – Fágæt sérþekking og persónuleg þjónusta Þrif og ræstivörur á Akureyri er fyrirtæki með sérstöðu að sögn eigenda. Það rekur annars vegar sérverslun með efni og tæki til hreingerninga og veitir hins vegar fyrirtækjum og ein- staklingum víðtæka og fjölbreytta ræstinga- og hreingerninga- þjónustu. Verslunin er að Frostagötu 4c og er opin virka daga milli kl. 8 og 16. Þar er meðal annars að finna hinar þekktu Evans hreinsivörur frá Bretlandi og margvísleg önnur hreinsiefni. Þar eru einnig margs konar áhöld, vélar og tæki til ræstinga: tuskur, svampar, sköft, skúringavagnar og skúringafötur með vindum. Af öðrum vörum má nefna pappír, pappírsstanda og sápuskammtara frá hinu virta merki Katrin. Enn fremur er mikið úrval af ryksugum, gólfþvottavélum og fleiru undir hinu klassíska Nilfisk merki til sölu í versluninni, sem og hreingerningavélar frá þýska framleiðandanum Kärscher – en þar ber hæst afar vinsæla vél til heimilisnota sem bæði skúrar og ryksugar. Sérhæfð ráðgjöf „Helsta sérstaða verslunarinnar er kannski sú að þar starfar fólk sem er að vinna með þessa hluti alla daga. Viðskiptavinir fá því mjög sérhæfða ráðgjöf um val og notkun á efnum og tækjum. Þetta er eitthvað sem fólk fær ekki annars staðar, til dæmis í stórverslunum. Mörg sterk hreinsiefni eru ekki fyrir alla og þú getur skemmt meira með þeim en gert gagn. Það er mikil- vægt að velja rétta vöru sem hentar í viðkomandi verkefni. Við höfum alltaf lagt mikið upp úr persónulegri og góðri þjónustu,“ segir Sveinn Rúnar, annar eigenda fyrirtækisins, en hinn eigandinn er eiginkona hans, Birna Böðvarsdóttir. Þjónusta einstaklinga og fyrirtæki Starfsemi Þrifa og ræstivara hefur vaxið mikið í gegnum árin en fyrir- tækið sinnir daglegum ræstingum og hreingerningum fyrir hina ýmsu aðila, stóra og smáa, fyrirtæki jafnt sem einstaklinga og heimili. Starfs- menn eru nú um 120 talsins. Starfsemin nær víða út fyrir Akureyri: „Við þjónustum austur á firði og vestur fyrir Blönduós. Við erum með föst ræstingaverkefni á Akureyri, Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, í Mývatnssveit og víðar.“ Meðal stórra viðskiptavina Þrifa og ræstivara eru Samkaup en fyrirtækið hefur séð um ræstingar fyrir allar verslanir Samkaupa á Norðurlandi í 12 ár; Samherji, Akureyrarbær, Norðlenska, Íslandsbanki, Sjúkrahúsið á Akureyri, Mjólkur- samsalan og Eimskip svo nokkrir aðilar séu nefndir. Tækjabúnaður til sérverkefna Sveinn Rúnar segir þörfina mikla og er lögð mikil áhersla á faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu í hreingerningunum, viðhaldi gólf- efna og öðrum sérverkefnum. Fyrir- tækið sinnir margs konar vanda- sömum sérverkefnum en Sveinn Rúnar telur að sú sérþekking sem það búi yfir á þessu sviði sé fágæt: „Við höfum líka sérhæft okkur mjög í tækjabúnaði til að þjónusta tryggingafélög í tjónamálum,“ segir Sveinn Rúnar. „Við erum vel búnir tækjum til að glíma við afleiðingar vatnstjóna, erum til dæmis með rakabúnað, skilvindur, blásara og fleira sem til þarf. Einnig erum við sérhæfð í að fást við brunatjón með búnaði og tækjum til að fást við þrif eftir bruna og eyða lykt.“ Að sögn Sveins Rúnars eru verk- efnin óþrjótandi en mikil áhersla er lögð á að viðhalda þeirri persónu- legu þjónustu við viðskiptavini og faglega ráðgjöf, sem ávallt hefur einkennt starfsemi fyrirtækisins þrátt fyrir að það stækki og umsvifin aukist. Nánari upplýsingar um starfsemina veitir Sveinn Rúnar í síma 865 2425 en einnig er að finna upplýsingar á Facebook-síðunni Þrif og ræstivör- ur sem og á heimasíðunni thrif.is. Þrif og ræstivörur er til húsa að Frostagötu 4 c á Akureyri og er opin virka daga milli kl. 8 og 16. Kärscher vélin sem bæði skúrar og ryksugar hefur slegið í gegn hér á landi. Þrif og ræsti- vörur rekur sér- verslun með efni og tæki til hrein- gerninga. Fyrir- tækið veitir einnig fyrirtækjum og einstaklingum víðtæka ræstinga- og hreingerninga- þjónustu. Verslunin býður mikið úrval af ryksugum, gólfþvottavélum og fleiru frá Nilfisk. Helsta sérstaða verslunarinnar er kannski sú að þar starfar fólk sem er að vinna með þessa hluti alla daga. Viðskiptavinir fá því mjög sérhæfða ráðgjöf um val og notkun á efnum og tækjum. Sveinn Rúnar Vatnsdal KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 2 5 . o k tó b e R 2 0 1 7 hReINLæTISVöRUR 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 D -D C 0 0 1 E 0 D -D A C 4 1 E 0 D -D 9 8 8 1 E 0 D -D 8 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.