Fréttablaðið - 25.10.2017, Side 40
Handhægt sótthreinsigel getur
komið sé vel nú þegar haustið er
gengið í garð og smitsjúkdómar á
borð við kvef og inflúensur herja á
fólk. Slíkt hreinsigel má t.d. hafa í
veskinu eða hanskahólfinu og grípa
til þegar ekki reynist hægt að þvo
hendurnar vandlega af einhverjum
sökum. Auðvelt og fljótlegt er að
útbúa hreinsigelið og kosturinn
er að þá veit maður nákvæmlega
hvað það inniheldur. Allt sem þarf
til er lítill brúsi með tappa, 50 ml
af hreinu Aloe vera, 3 tsk. spritt,
1 tsk. e-vítamínolía og 5 dropar af
ilmkjarnaolíu, t.d. með frísklegum
límónu- eða lavenderilmi. Þessu er
öllu hellt í brúsann og hann hristur
vel til að allt blandist vel saman.
Bæta má við 1 tsk. af spritti ef gelið
er of þykkt. Sótthreinsigelið ætti að
geyma utan seilingar barna og það
heldur virkni í tvo mánuði. Inni-
haldsefnin ættu að fást í öllum betri
heilsuvörubúðum.
Heimatilbúði
sótthreinsigel
Gott er að hafa sótthreinsi í veskinu.
8 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . o K tó B e R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U RhReINLætIsvöRuR
Samkvæmt tímaritinu Good Housekeeping söfnum við stöðugt að okkur hlutum í
gegnum árin en margir þeirra enda
inni í geymslu eða í skápum og eru
aldrei notaðir. Blaðið segir að strax
um fertugt eigi fólk að huga að þess-
ari söfnun og byrja að fækka hlutum
sem það notar aldrei. Eftir því sem
fólk eldist verður erfiðara að ganga
í verkið. Eitt af því sem konur eru
gjarnar á að safna eru skór. Ef farið
er í gegnum skóhrúguna, hversu
margir eru notaðir? Gefðu hina frá
þér.
Nærföt vilja daga uppi í skúff-
unni. Gamlar slitnar nærbuxur eða
brjóstahaldari með slitnar festingar.
Losið ykkur við það slitna sem aldr-
ei er notað og fáið betra pláss í skúff-
unni. Alls kyns krem og snyrtivörur
dagar uppi á snyrtiborðinu en fæst
af þessu er notað. Gamlar snyrti-
vörur eru gróðrarstía baktería svo
nú er kominn tími til að hreinsa til.
Maskarar endast í þrjá mánuði og
krem í sex mánuði. Allt eldra en það
á heima í ruslinu. Sama má segja
um fataskápinn. Föt sem passa ekki
lengur ættu að hverfa úr skápnum.
Rauði krossinn tekur á móti fatnaði
ásamt fleirum.
Það ætti ekki að geyma gamla far-
síma eða raftæki sem ekki eru lengur
notuð. Komið þessum tækjum sem
fyrst í þar til gerðan gám hjá Sorpu.
Ef hlutirnir eru í lagi má gefa þá á
nytjamarkaði. Margt annað má losa
sig við, til dæmis gamla potta og
pönnur, gamlar skreytingar, gamlar
málningardósir, illa farin plastílát,
gömul krydd, ljót og blettótt viska-
stykki, kassettur og margt fleira. Það
er ákveðinn léttir þegar svona hrein-
gerning hefur átt sér stað svo það er
um að gera að ganga í hlutina.
Ekki safna drasli
Heimatilbúnir hreinsilegir hafa sjaldan verið vinsælli en einmitt nú. Einn helsti kosturinn við þá er að þeir innihalda ekki eitur-efni og eru umhverfisvænir. Edik hefur t.d. fyrir löngu sannað
gildi sitt sem gott og gilt hreinsiefni. Færri vita að vodka er líka ágætt í
þrif því það er sótthreinsandi og skilur eftir sig frískandi ilm. Með því að
blanda saman 0,5 dl af vodka, 0,5 dl af ediki, 3 dl vatni og 15 dropum af
góðri ilmkjarnaolíu, t.d. lavender, límónu eða piparmintu, fæst frábær
alhliðahreinsir fyrir eldhús og baðherbergi. Þessu er öllu saman hellt
í úðabrúsa, blandað vel saman og úðað yfir óhreinindi og þurrkað af
með tusku úr örtrefjum. Annar lögur þar sem 1,25 dl vodka er blandað
saman við 2,5 dl af vatni og 10 dropa af ilmkjarnaolíu er fínn til að fríska
upp á sturtuna og baðkerið.
Þrifið með vodka
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
D
-E
F
C
0
1
E
0
D
-E
E
8
4
1
E
0
D
-E
D
4
8
1
E
0
D
-E
C
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K