Fréttablaðið - 25.10.2017, Page 50

Fréttablaðið - 25.10.2017, Page 50
Markaðurinn Miðvikudagur 25. október 2017fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál | Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskiptiwww.visir.is Stjórnar- maðurinn @stjornarmadur 22.10.2017 Félag Friðriks Steins Kristjánssonar, stofnanda og fyrrverandi stjórnarformanns Invent Farma, skilaði tæplega 5,4 milljarða króna hagnaði í fyrra. Friðrik átti rúmlega 27 prósenta hlut í spænska lyfjafyrirtækinu sem var selt erlendum fjárfestum á síðasta ári fyrir jafnvirði um 29 milljarða. Fram kemur í nýbirtum ársreikningi Silfurbergs ehf., sem er í jafnri eigu hjónanna Friðriks og Ingibjargar Jónsdóttur, að hagnaðurinn komi til vegna hlutabréfa og hlutdeildar í afkomu hlutdeildarfélaga. Bókfært virði hlutar félagsins í Invent Farma var 6,5 milljarðar í árslok 2016 og jókst um 4,3 milljarða á árinu. Eigið fé Silfurbergs nemur tæplega 8,5 milljörðum. Markaðurinn greindi frá því fyrr í þessum mánuði að bókfærður hagnaður vegna sölu á Invent Farma, sem var nánast að fullu í eigu íslenskra fjárfesta, hafi numið um 21 milljarði. Auk Friðriks voru stærstu hluthafar félagsins Framtakssjóður Íslands með 38 prósenta hlut og framtakssjóðurinn Horn II ásamt meðfjárfestum sem átti um 17 prósenta hlut. – hae  Félag Friðriks hagnast um 5,4 milljarða Friðrik Steinn Kristjánsson Við vorum í harðri hags- munagæslu fyrir almenn- ing í landinu gegn er- lendum kröfuhöfum. Við vorum að reyna að bjarga verðmætum. Sigurður Kári Krist- jánsson, fyrrv. þing- maður Sjálfstæðis- flokksins LEXUS OG EGILS APPELSÍN kynna með stoltiÖrfáir miðar eftir! HARPA.IS/SISSEL ELDBORG HÖRPU 20. DESEMBER KL. 18 OG 20.30 Jól með ATHUGIÐ AÐ EKKI ER HÆGT AÐ BÆTA VIÐ FLEIRI TÓNLEIKUM Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu er sennilega sú íþróttaafurð sem nýtur mestrar hylli sjón- varpsáhorfenda á heimsvísu. Ein af ástæðum þess er einfaldlega sú staðreynd að félögin sem deildina skipa eru þrátt fyrir allt nokkuð jöfn að getu. Eins og klisjan segir – allir geta unnið alla. Sennilega er stærsta ástæðan fyrir því að félögin keppa nokkurn veginn á jafnræðisgrundvelli sú að sjónvarpstekjum er skipt nokkuð jafnt milli félaganna. Þannig er tekjum vegna alþjóð- legrar sölu sjónvarpsréttar skipt bróðurlega milli félaganna tutt- ugu. Tekjum vegna sölu innan Bretlands er hins vegar skipt eftir árangri, þó þar sé þrátt fyrir allt ekki stórkostlegur munur á milli þess sem vinnur deildina og þess sem rekur lestina. Þessu hafa stærstu félögin sex í deildinni – Manchester-liðin tvö, Liverpool og Lundúnarisarnir Arsenal, Chelsea og Tottenham – lengi viljað breyta. Þau vilja að tekjum sé í auknum mæli skipt eftir árangri. Eðlilega, segði ein- hver, en þessi félög hafa allt að því einokað efstu sætin undanfarin ár. En kannski er stöðumatið rangt hjá stórliðunum. Í spænska bolt- anum er tekjunum misskipt, og stórliðin Real Madrid og Barce- lona semja sérstaklega um sjón- varpsréttinn að sínum leikjum, enda vinna þau deildina á víxl og handvelja bestu leikmennina meðan önnur lið geta einungis horft á aðdáunaraugum. Spænska deildin er af þeim sökum mun minna spennandi sjónvarpsafurð og áhorfið eftir því. Enska úrvalsdeildin er langsam- lega vinsælasta knattspyrnudeild heims. Kannski einmitt af því að öll liðin hafa aðgang að góðum og traustum tekjum gegnum sölu á sjónvarpsrétti, sem aftur veldur því að Huddersfield á raunveru- legan séns gegn Manchester United eins og sannaðist um liðna helgi. Væru stórliðin því í raun ekki að grafa undan eigin velgengni með því að taka stærri bita af kökunni? Því geta unnendur enska boltans andað léttar en stórliðunum sex varð ekki að ósk sinni. Sjónvarpstekjunum verður áfram skipt jafnt. Jafn leikvöllur 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 D -E A D 0 1 E 0 D -E 9 9 4 1 E 0 D -E 8 5 8 1 E 0 D -E 7 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.