Fréttablaðið - 25.10.2017, Síða 52

Fréttablaðið - 25.10.2017, Síða 52
Fótbolti Gylfi Þór Sigurðsson hefur upplifað margt á þessu hausti. Á sama tíma og hann hefur upplifað æskudraum sinn með því að kom- ast með íslenska landsliðinu á HM hefur honum gengið illa að fóta sig sem dýrasti leikmaður Everton frá upphafi. Gylfi hefur farið á kostum með íslenska landsliðinu í haustleikj- unum og skoraði þrjú af fjórum mörkum liðsins í mikilvægum heimasigrum á Úkraínu og Kósóvó. Eftir eina stærstu stundina á ferlin- um á Laugardalsvellinum 9. október síðastliðinn kom Gylfi aftur til Eng- lands í mjög þungt andrúmsloft á Goodison Park. Það hefur nefnilega ekki aðeins gengið illa hjá Gylfa sjálfum í bún- ingi Everton heldur hefur allt liðið valdið miklum vonbrigðum. Unnu allt áður en Gylfi kom Everton var búið að vinna alla fjóra leiki sína á tímabilinu (einn í deild og þrjá í Evrópudeildinni) þegar Gylfi klæddist Everton-treyjunni í fyrsta sinn í leik á móti Manchester City í 2. umferð ensku úrvalsdeild- inni. Fimm dögum áður hafði Everton loksins tekist að fá Swansea City til að selja sinn besta mann. Manninn Þrefalt fleiri sigurleikir með Íslandi en Everton Gylfi Þór Sigurðsson frá því að hann var keyptur til Everton Samtals með Everton 1 sigur 12 leikir spilaðir (4 jafntefli, 7 töp) 1 mark og 2 stoðsendingar Komið að 3 mörkum á 962 mínútum Mark búið til á 320 mínútna fresti Með íslenska landsliðinu 3 sigrar 4 leikir spilaðir (1 tap) 3 mörk, 1 stoðsending Komið að 4 mörkum á 360 mínútum Mark búið til á 90 mínútna fresti Everton-liðið er búið að vinna alla fimm leiki sína á tímabilinu þar sem Gylfi Þór Sigurðsson hefur ekki komið við sögu. Einn leik í deild- inni, einn í deildabikar og þrjá leiki í Evrópudeildinni. Gylfi hefur skorað 16 mörk í 41 keppnisleik með íslenska landsliðinu (HM eða EM) en aðeins 2 mörk í 13 vináttu- landsleikjum. Ronald Koeman, knatt- spyrnustjóri Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton, var rekinn á mánudaginn en þetta er þriðji stjóri Gylfa á síðustu þrettán mán- uðum sem þarf að taka pokann sinn. Gylfi hefur mátt þola erfiða tíma á Goodison Park eftir að félagið keypti ís- lenska landsliðsmann- inn fyrir metfé. með fljótum kantmönnum eða öfl- ugum framherja sem eru aðstæð- urnar þar sem hæfileikar hans nýtast hvað best. Einn sigur á 70 dögum Nú er svo komið að eftir 70 daga sem leikmaður Everton þá hefur Gylfi aðeins tekið þátt í einum sigurleik með félaginu. Eini sigurinn kom í leik á móti Bournemouth á heima- velli, öðru liðanna sem sitja neðar en Everton í töflunni. Hitt er Cryst al Palace sem hvorki fékk stig né skor- aði mark í fyrstu sjö leikjunum. Á þessum 70 dögum Gylfa í her- búðum Everton hefur hann aftur á móti tvisvar sinnum komið til móts við íslenska landsliðið og unnið þrjá af eftirminnilegustu sigrum lands- liðsins frá upphafi. Íslenska liðið hélt sér á lífi í bar- áttunni um HM-sætið með sigri á Úkraínu á Laugardalsvelli nokkrum dögum eftir slysið í Finnlandi. Mán- uði síðar fóru strákarnir síðan til Tyrklands og slökktu bæði á hávaða- sömustu stuðningsmönnum Evrópu sem og á HM-draumum Tyrkja. Loks mættu Gylfi og félagar á Laugardals- völlinn og tryggðu sér sæti á HM í Rússlandi með sannfærandi sigri á Kósóvum. Staðan er því sú að Gylfi hefur unnið þrefalt fleiri sigra með strák- unum í íslenska landsliðinu en með nýju liðsfélögunum í Everton. Mikið um stjóraskipti Fyrir vikið er Gylfi að fá nýjan knatt- spyrnustjóra í enn eitt skiptið en hann hefur upplifað hver stjóra- skiptin á fætur öðrum síðustu tíma- bil sín í ensku úrvalsdeildinni. Við fögnum vissulega sigrunum hjá íslenska landsliðinu en Gylfi verður vonandi fljótur að breyta þessu hlutfalli á næstu vikum og koma Everton aftur þangað sem félagið ætlaði að vera í vetur. Eftir áralanga baráttu hjá okkar manni í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar var hann kominn til Everton til að kynnast hinum enda töflunnar. ooj@frettabladid.is sem hafði öðrum fremur bjargað velska liðinu frá falli tvö tímabil í röð. Everton þurfti að borga fyrir hann 45 milljónir punda og varð hann ekki aðeins langdýrasti leik- maður sögunnar heldur einnig dýrasti leikmaður Bítlaborgarinnar (Liverpool og Everton). Ronaldo Koeman lagði mikla áherslu á að landa íslenska lands- liðsmanninum og pressan var gríðarleg á okkar manni. Stóru vandamálin voru hins vegar óleyst. Gylfi dældi inn mörkum og stoð- sendingum með Swansea og allir bjuggust við því sama hjá Everton enda var hann löngu búinn að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni. Koeman tókst hins vegar ekki að finna rétta jafnvægið eða fylla í skarð Romelo Lukaku sem var seldur til Manchester United. Hann eyddi stórum fjárhæðum í nýja leikmenn en Gylfi var ekki sá eini sem vildi helst spila framarlega á miðjunni. Þar voru líka menn eins og Wayne Rooney og Davy Klaassen sem komu báðir í haust. Gylfi hefur sjaldnast fengið að spila sína bestu stöðu og sjaldnast 2 5 . o k t ó b E r 2 0 1 7 M i Ð V i k U D A G U r24 S p o r t ∙ F r É t t A b l A Ð i Ð 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 D -D 7 1 0 1 E 0 D -D 5 D 4 1 E 0 D -D 4 9 8 1 E 0 D -D 3 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.