Fréttablaðið - 25.10.2017, Qupperneq 60
Leikhús
Risaeðlurnar
HHHHH
eftir Ragnar Bragason
Þjóðleikhúsið
Leikstjórn: Ragnar Bragason
Leikarar: Edda Björgvinsdóttir,
Pálmi Gestsson, Guðjón Davíð
Karlsson, Birgitta Birgisdóttir, Hall-
grímur Ólafsson, María Thelma
Smáradóttir
Leikmynd: Hálfdán Pedersen
Búningar: Filippía I. Elísdóttir
Tónlist: Mugison
Hljóðmynd: Kristján Sigmundur
Einarsson
Lýsing: Jóhann Friðrik Ágútsson
Virðuleg sendiherrahjón bjóða ungu
pari til hádegisverðar í sendiráði
Íslands í Washington DC, eingöngu
er borið fram íslenskt hráefni fyrir
utan hafsjó af erlendu og dýru áfengi.
En undir fáguðu yfirborðinu leynast
dimm fjölskylduleyndarmál. Risa
eðlurnar, frumsýndar síðastliðinn
föstudag í Þjóðleikhúsinu, er loka
hluti leikhúsþríleiks Ragnars Braga
sonar um afkima íslensks samfélags
en höfundur leikstýrir einnig upp
færslunni.
Þrátt fyrir áhugaverða hugmynd
og sterka byrjun þá birtast brota
lamir fljótlega í handritinu. Byrj
unaratriðið er snarpt, vel skrifað
og leggur línurnar fyrir dramatísku
átökin sem eru í vændum. Stærsti
galli handritsins er að framvindan
þróast en persónurnar ekki. Kar
akterarnir umbreytast bara í ýkt
ari útgáfu af manneskjunum sem
kynntar voru til sögunnar í byrjun.
Hegðun sendiherrahjónanna er oft
á tíðum absúrd en Risaeðlurnar eru
hreinlega stofudrama af gamla skól
anum sem minnir meira en lítið á
Hver er hræddur við Virginiu Woolf?
eftir Edward Albee. Nema núna eru
veislugestirnir aðeins eldri, fantasíu
sonurinn er allt annað en draumur í
dós og ástin er löngu dauð í hjóna
bandinu.
Svipuð vandamál má finna í leik
stjórn Ragnars; verkfæri eru notuð
einu sinni og síðan aldrei aftur, heilu
senurnar eru nánast hreyfingarlaus
ar á meðan matargestirnir sitja að
snæðingi og stutt er í hurðafarsann
án þess að hefðir hans séu fullnýttar.
Fyrsta sena eftir hlé er reyndar bráð
fyndin og tilsvör stundum afar hnytt
in. Auðveldlega hefði mátt stytta
sýninguna um hálftíma, ekki það
að þessar auka þrjátíu mínútur séu
alvondar heldur einungis óþarfar.
Þar á meðal hefðu báðar einræð
urnar mátt hverfa.
Edda Björgvinsdóttir hefur verið á
flugi þetta árið sem er svo sannarlega
verðskuldað. Hún sýnir á sér nýjar
hliðar í dramatískari atriðunum sem
hin beyglaða frú Ágústa en kunnug
legar í þeim kómískari. Allt gerir
hún þetta af natni en takmarkast af
yfirborðskenndu handriti; þó finnur
hún harminn í þessari óhamingju
sömu konu sem hefur byggt tilvist
sína á lygi. Elliða sendiherra leikur
Pálmi Gestsson. Hann sýnir góða
gríntakta en nær ekki sömu sterku
tökum á harminum og Edda. Sam
leikur þeirra er oft á tíðum flottur
og fyndinn enda vita þau bæði að
þögnin getur talað tungum á sviði.
Unga parið sem kemur í heim
sókn leika þau Birgitta Birgisdóttir
og Hallgrímur Ólafsson. Birgitta fær
bitastæðari persónu til að takast á
við en listakonan Bríet Ísold verður
mörgum kunnugleg í allri sinni
sjálfhverfu. Aftur á móti er fátt eftir
tektarvert í frammistöðu Hallgríms
sem nær aldrei að gera Albert áhuga
verðan.
Guðjón Davíð Karlsson leikur
Svein Elliða, þunglyndan einkason
sendiherrahjónanna sem stendur
á brún hyldýpisins. Frammistaða
hans er í takt við efnistök en karakt
erinn er nánast eintóna, sýnir aldrei
breytingu á fasi og er sem þrumuský
allan tímann. Þrátt fyrir að sitja uppi
með ansi klisjukennda einræðu þá
stendur María Thelma Smáradóttir
sig virkilega vel í sínu hlutverki.
Þarna er ung leikkona á ferð sem vert
er að fylgjast með og veita athygli.
Umgjörð sýningarinnar endur
speglar líka áðurnefnd vandamál.
Leikmynd Hálfdáns Pedersen er
stór í sniðum og vel útfærð en skortir
dýpt, búningar Filippíu I. Elísdóttur
passa verkinu vel en skilja lítið eftir
sig og lýsing Jóhanns Friðriks Ágústs
sonar sömuleiðis. Eftirminnilegustu
útfærslurnar eru hljóðmynd Krist
jáns Einarssonar og tónlist Mugisons
sem springur út í lokaatriði verksins
og undirstrikar eitt fallegasta atriði
sýningarinnar á kraftmikinn hátt.
Risaeðlunar ná aldrei að kynda
undir satíruna nægilega mikið né
skrúfa nægilega upp í dramatíkinni.
Sýningin er hvorki fugl né fiskur
heldur samsuða af hinum og þessum
hugmyndum sem eru ekki nægilega
vel nýttar. Framvindan er fyrirsjáan
leg en þó fyndin á köflum, hér eru
það leikararnir sem bjarga því sem
bjargað verður.
Sigríður Jónsdóttir
NiðuRstaða: Klisjurnar bera
Risaeðlurnar ofurliði.
Hádegisverður með
klisjukenndum hjónum
BækuR
Áfram sigurfljóð!
HHHHH
sigrún eldjárn
Mál og menning
Prentun: Prentmiðlun/Lettland
Kápuhönnun og umbrot: Sigrún
Eldjárn
Fyrsta bókin um ofurstelpuna Sigur
fljóð hefst á því að telpan lítur í
spegil og kemst að því að hún hefur
misst eina framtönn. Nú, í Áfram
Sigurfljóð!, er önnur tönn farin og
þar með ný ævintýri að hefjast. Eftir
staðgóðan hádegisverð kollsteypir
Sigurfljóð sér út til krakkanna sem
eru allir jafn hjálpsamir og góðir
og þeir voru orðnir undir lok fyrri
bókarinnar. Fullviss um að allt sé í
góðu lagi heimafyrir þeytist Sigur
fljóð yfir „höf og lönd, yfir fjöll og
firnindi“ og á ferðalagi sínu sér hún
og heyrir ýmislegt, þar á meðal
stríðshrjáð land þar sem „fólk
meiðir hvert annað og eyðileggur
allt í kringum sig!“
Systkinin Amíra og Elías vekja
athygli Sigurfljóðar þar sem þau
standa grútskítug, hrædd, meidd
og svöng í húsarústum. Sigurfljóð
tekur þau undir arminn og flýgur
með þau heim í allsnægtirnar á
Íslandi. Krakkarnir í hverfinu eru
tortryggnir í fyrstu en samþykkja
fljótt að þau eigi nóg en ókunnu
börnin ekkert og þeim þurfi að
hjálpa. Amíra og Elías kunna nú líka
ýmislegt og í ljós kemur að þau geta
lagt sín lóð á vogarskálarnar í hinu
nýja samfélagi. Sigurfljóð fer svo
til baka til hins stríðshrjáða lands
með systkinin og heilmiklar vistir
en kemst þá að því að þar er allt enn
í kaldakoli. Þá grípur hún til sinna
ráða og kippir öllu í liðinn, eins og
sannri ofurhetju sæmir.
Myndastílinn kannast allir Sig
rúnaraðdáendur við og eins og í
Sigurfljóð hjálpar öllum! eru rauð
ar sveigjur látnar tákna hopp, skopp
og flug Sigurfljóðar og ofurhetju
sjónin tákngerð með brotalínum.
Ýmis smáatriði í myndagerðinni
auka á lestrargleðina, svo sem epli
tvö sem birtast á síðunum hér og
þar, leikfangabangsinn hennar
Amíru og litlu allsberu engla
börnin sem svífa yfir eldfjalli sem
gýs af miklum krafti. Áhugaverðust
er þó sú aukna dýpt sem sagan fær
með aðstoð myndanna. Hér má sem
dæmi nefna gleðina sem skín úr
augum barnanna þegar þau hjálpa
kvefuðum kanínum, skíthræddum
skrímslum, púslandi pelabörnum
og vitaskuld þeim Amíru og Elíasi.
Eymd þeirra og ótti er líka svo
skelfilega greinilegur í myndunum
og eflaust komast ungir lesendur
ekki hjá því að veita fátæklegum
leikföngum þeirra athygli og bera
saman við sín eigin.
Persónur bókarinnar eru týpur
sem standa fyrir ákveðin gildi eða
boðskap en sagan sjálf er drifin
áfram af nokkuð spennandi sögu
þræði svo engum ætti að leiðast
lesturinn. Nú er Sigurfljóð búin að
koma röð og reglu á allt heima á
Íslandi og úti í hinum stóra heimi.
Græna flugeðlan á síðustu opnunni
er ef til vill vísbending um það hvert
Sigurfljóð, kraftmikla og góðhjart
aða ofurstelpan, fer í næstu bók.
Helga Birgisdóttir
NiðuRstaða: Einlæg og skondin
fantasía sem flytur mannbætandi
boðskap sem bæði stórir og smáir
lesendur hafa gott af að heyra.
Með krafta í kögglum og risastórt hjarta
Frammistaða leikaranna er góð í Risaeðlunum í Þjóðleikhúsinu.
Mynd/HöRðuR SveinSSon
intellecta.is
RÁÐNINGAR
H E I L S U R Ú M
FORTE
hægindasófar
Þægilegir rafdrifnir hægindastólar
og sófar með leðri á slitflötum.
FORTE 1 FORTE 2
FORTE 3
TILBOÐ
77.440 kr.
TILBOÐ
124.615 kr.
TILBOÐ
151.920 kr.
Fullt verð: 96.800 kr. Fullt verð: 155.768 kr.
Fullt verð: 189.900 kr
A
R
G
H
!!!
2
00
91
7
Byggjum allt Ísland
Opna þarf augun fyrir frjálsum handfæraveiðum Pírata, og
að milljarðar lífvera, td. fiskseiði og fiskegg, fela sig á botni
fiskimiða okkar, til að verða ekki étin af stærri fiskum.
Allt þetta líf er óvarið fyrir þungum veiðarfærum,
dregnum af togveiðiflota okkar dag og nótt.
Fiskimiðin eru eilífðarvél, sem við getum nýtt að eilífu,
en í dag getur vélin ekki brauðfætt þessa örþjóð.,
Sandsíli
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
2 5 . o k t ó B e R 2 0 1 7 M i ð V i k u D a G u R32 M e N N i N G ∙ F R É t t a B L a ð i ð
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
D
-F
9
A
0
1
E
0
D
-F
8
6
4
1
E
0
D
-F
7
2
8
1
E
0
D
-F
5
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K