Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 6 4 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 9 . n ó v e M b e r 2 0 1 7 FrÍtt Fréttablaðið í dag skoðun Örlygur Hnefill um einelti. 22 sport Tap hjá strákunum okkar í gær í fyrsta leik Íslands sem HM- þjóð. 32 Menning Blindrahundur, heimildarmynd um líf og list Birgis Andréssonar, í leikstjórn Kristjáns Loðmfjörð komin í Bíó Paradís. 40 lÍFið Þau sem hlutu tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands svara spurningum. 50 plús sérblað l Fólk *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 M I Ð N Æ T U R S P R E N G J A OPIÐ TIL 24 Í KVÖLD Glæsileg tilboð inni í blaðinu lÍFið Fljótlega geta brottfluttir Íslendingar í Noregi fengið sér skál af ilmandi kjötsúpu, hangikjöti, fiskréttum og uppstúf og fleiru í vegasjoppunni Spisekroken eða Matkróknum í smábænum Jess- heim. „Er núna að vinna í að fá íslenska hangirúllu og úrbeinað hangikjöt, ætla að reyna að bjóða upp á jólamat fyrir landann með uppstúf og stöppu. Svo verður það gamla góða íslenska kjötsúpan og svo fiskréttir. Annars er þetta erfitt að eiga við, ég er mest með fasta- kúnna sem vilja bara þetta gamla norska,“ segir veitingamaðurinn Steinar Agnarsson sem reynir fyrir sér í veitingasölu í Noregi ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Hjálmars- dóttur. – áhg / sjá síðu 56 Íslensk kjötsúpa í norskri vegasjoppu löggÆsla Um fjórðungur þeirra hraðasekta sem til verða við hrað- akstur fram hjá hraðamyndavélum landsins innheimtist ekki. Lang- stærstan hluta þessa má rekja til erlendra ferðamanna en tæplega helmingur þeirra greiðir sektir sínar. Í fyrra voru 45.160 brot skráð vegna mynda úr hraðamynda- vélum og hafði fjöldinn þrefaldast frá árinu 2013. Af þeim voru 16.447 sektir sem ekki innheimtust. Að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirlögreglu- þjóns hjá lögreglunni á Vesturlandi, er meðalsektarupphæð vangreiddra sekta um 10 þúsund krónur. Varleg áætlun leiðir því ljós að 160 milljónir króna, hið minnsta, innheimtust ekki á síðasta ári. Talan er tvöfalt hærri en árið 2015. „Þegar myndavélin smellir af mynd þá flettum við upp skráðum eiganda. Ef sá eigandi reynist vera bílaleiga þá köllum við eftir upplýsingum um það hver var skráður leigutaki á þeim tíma. Sé sektin 30 þúsund krónur eða meira þá sendum við sektarboð til viðkomandi,“ segir Ólafur. Þrír starfsmenn embættisins sjá um að skrá brot, senda út sektir og samskipti við bílaleigur sé þess þörf. Fjárheimildir fyrir starfið hafa ekki aukist frá 2007 þrátt fyrir launahækk- anir og gífurlega fjölgun brota. „Það eru engar vinnureglur til um hvað skuli gera ef ökumaður reyn- ist ferðamaður. Við settum okkur viðmiðið 30 þúsund krónur sjálf á sínum tíma. Við tókum það upp sjálf að senda sektarboð út,“ segir Ólafur. Hann bætir því við að næsta sekt fyrir neðan, það er þar sem hámarkshraði er 90 km/klst., sé 10 þúsund krónur og það taki því ekki að eltast við slík- ar upphæðir. Það að skrá þær sektir inn í kerfið myndi auka vinnuálag til muna, sem þó er mikið fyrir. Sektarboðsbréf hafa verið þýdd á sex tungumál og eru send heim til viðkomandi. Það að koma fjármun- um til embættisins getur þó verið vandkvæðum háð. „Við höfum kallað eftir því að sett verði upp greiðslugátt sem lögreglan gæti nýtt sér. Það gæti aukið inn- heimtuhlutfallið,“ segir Ólafur. – jóe Ferðamenn skulda 160 milljónir í sektir Nýir og ferskir þingmenn sátu á skólabekk í gær og kynntu sér þingstörfin, líkt og venjan er þegar nýtt fólk sest á þing. Enn hefur lítið þokast í viðræðum flokkanna um að mynda ríkisstjórn, eftir að slitnaði upp úr viðræðum vinstri flokkanna á mánudag. Enginn augljós kostur er í stöðunni, en þó nokkrir sækjast eftir stjórnarmyndunarumboði. Sjá síðu 4. Fréttablaðið/Eyþór Aðeins um helmingur ferðamanna sem mynd- ast í hraðamyndavélum landsins greiðir sektir sínar. Fjöldi slíkra mynda sem teknar eru hefur margfaldast á síðustu árum. Engar formlegar verklagsreglur eru til. 0 9 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 E -4 6 B 4 1 E 2 E -4 5 7 8 1 E 2 E -4 4 3 C 1 E 2 E -4 3 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.