Fréttablaðið - 09.11.2017, Qupperneq 6
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum
www.kia.com
Tveir sem vekja aðdáun — hvor hentar þér betur?
Hveragerði „Við förum því vinsam-
lega fram á að bæjarráð dragi til baka
öll áform um afturköllun lóða í eigu
félagsins og staðfesti með formlegum
hætti og að aftur verði teknar upp
viðræður milli aðila á uppbyggileg-
um nótum með framtíðarhagsmuni
þessa verkefnis og bæjarfélagsins alls
að leiðarljósi,“ segir í bréfi sem Björn
Ingi Hrafnsson, talsmaður og einn
eigenda Orteka Partners á Íslandi,
sendi Hveragerðisbæ í september.
Bærinn varð ekki við þessari
umleitan. Nú hafa forsvarsmenn
fyrirtækisins sent stjórnsýslukæru
til samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytisins vegna ákvörðunar
bæjarins um að afturkalla úthlutun
á fjórum ferðaþjónustulóðum sem
félagið hafði fengið undir starfsemi
ferðaþjónustu í Ölfus dal. Stjórnsýslu-
kæran var kynnt á fundi bæjarráðs 2.
nóvember.
Forsaga málsins er sú að hinn
18. ágúst 2016 samþykkti Hvera-
gerðisbær að úthluta fyrirtækjunum
lóðunum fyrir þjónustuhús, smáhýsi
og gistiskála og tjaldsvæði. Hinn 15.
júlí síðastliðinn var úthlutunin aftur-
kölluð.
„Forráðamenn kærenda telja að
Hveragerðisbær hafi brotið með
alvarlegum hætti á rétti kæranda,
m.a. með því að sýna af sér vald-
níðslu og virða ekki jafnræðisreglu
gagnvart kæranda en að mati kær-
anda var Hveragerðisbæ með öllu
óheimilt að afturkalla úthlutun lóð-
anna með þeim hætti sem gert var,“
segir í stjórnsýslukærunni.
Þá segir að félagið hafi frá síðustu
áramótum verið í vinnu um gerð
rammasamnings við Hveragerðisbæ
varðandi lóðirnar ásamt fleiri lóðum
sem bærinn hafði gefið vilyrði fyrir.
„Þá var félagið búið að leggja út í
tugmilljóna króna kostnað vegna
hönnunar á svæðinu. Dráttur á að
framkvæmdir hæfust orsakast af því
að bærinn var ekki búinn að afhenda
hinar lóðirnar og samningum um
heildarsvæðið ekki lokið.“
Í kærunni segir líka að eftir að
sveitarfélagið hafi slitið einhliða við-
ræðum á milli aðila um rammasamn-
ing varðandi uppbyggingu hafi kær-
anda verið veittur mánaðarfrestur til
þess að hefja framkvæmdir. Slíkur
frestur sé óeðlilega stuttur saman-
borið við tímafresti annarra aðila
sem hafi fengið úthlutaðar lóðir af
hálfu sveitarfélagsins. Frestur til að
hefja framkvæmdir sé aldrei styttri
en 6 mánuðir eftir að úthlutunarhafi
geti raunverulega hafið undirbúning
framkvæmda.
Í fyrirtækjaskrá er Orteka Partn-
ers á Íslandi skráð í eigu FjBj ehf. og
Þjónustu og viðskiptamiðlunarinnar
Hóls ehf., en þau fyrirtæki eru bæði
skráð í eigu félagsins Maltice Ltd,
sem er skráð erlendis. Brynjar Már
Magnússon er skráður stjórnar-
formaður fyrirtækisins og Baldur
Jezorski stjórnarmaður. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins er faðir
Baldurs, Franz Jezorski, á meðal hlut-
hafa. jonhakon@frettabladid.is
Segja Hveragerðisbæ brjóta á
rétti sínum og sýna valdníðslu
Hveragerðisbær afturkallaði úthlutun lóðar í Ölfusdal sem Orteka Partners höfðu fengið úthlutað undir
starfsemi í ferðaþjónustu. Fyrirtækið segist hafa varið tugum milljóna í hönnun á svæðinu og segir bæjar-
yfirvöld brjóta með alvarlegum hætti á rétti sínum. Vilja uppbyggilegar samræður við bæinn að nýju.
Yfirlitsmynd yfir Hveragerði. Bærinn lætur lögmann sinn um að svara kæru Orteka Partners. FréttaBlaðiið/E. Ól.
Björn ingi Hrafns-
son, fjölmiðla-
maður og einn
eigandi Orteka
Partners
Náttúra Allar vísbendingar benda
til þess að aukna rafleiðni í Jökulsá á
Fjöllum megi rekja til vatnslosunar
úr svokölluðu Gengissigi í Kverk-
fjöllum en ekki þess að jarðhita-
vatn streymi í ána úr Bárðarbungu.
Þetta segir Ármann Höskuldsson
eldfjallafræðingur.
Ármann reiknar með því að reynt
verði að fljúga yfir svæðið í dag. Þá
segir hann einnig eðlilegt að sýnum
verði safnað úr ám á svæðinu til að
ganga úr skugga um hvaðan jarð-
hitavatnið kemur.
„Eins og stendur gefa gervihnatt-
armyndirnar til kynna að vatnið
komi úr Kverkfjöllum og ef svo er er
þetta bara hefðbundin vatnslosun
úr þessu svokallaða Gengissigi,“
segir Ármann.
Leiði mælingar og skoðun úr
lofti í ljós að jarðhitavatnið komi
úr Gengissiginu segir Ármann að
menn muni róast í bili. „Ef það er
að koma úr Bárðarbungu vitum við
ekki framhaldið. Skjálftarnir sem
eru búnir að vera frá því hún lauk
sér af úti á sandi benda til þess að
hún sé ekki búin að klára sig. Það er
mjög ólíklegt annað en að hún komi
með annað gos,“ segir Ármann.
Þá segir eldfjallafræðingurinn
enn fremur að allur viðbúnaður sé
í gangi. „Svæðið er vaktað mjög vel.
Menn munu setja sig í meiri við-
bragðsstöðu ef þetta reynist vera úr
Bárðarbungu, en þetta er mjög lík-
lega úr Kverkfjöllum.
Breytingar á yfirborði jökuls segir
Ármann að þurfi ekki endilega
að sjást strax þar sem ekki er um
stórhlaup að ræða. „Vatnsmagnið
er ekki að aukast neitt svakalega í
ánni en ef við erum að mæla aukna
leiðni gæti þetta verið fyrirboði þess
að það komi einhversstaðar hlaup.
Þá þurfum við samt að vita hvaðan
vatnið kemur.“ – þea
Vilja fljúga yfir Jökulsá á Fjöllum og taka sýni úr ánum í dag
Svæðið er vaktað
mjög vel.
Ármann Höskulds-
son eldfjalla-
fræðingur
SpáNN Alfonso Dastis, utanríkisráð-
herra Spánar, segir að stjórnvöld séu
að íhuga breytingar á stjórnarskrá
landsins, sem myndu gefa héruðum
landsins færi á að kjósa um sjálf-
stæði í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Við höfum skipað þingnefnd til
þess að skoða möguleika á stjórnar-
skrárbreytingu, til þess að koma til
móts við fólk í Katalóníu,“ sagði
Dastis. Ákvörðunin þyrfti að vera í
höndum allra Spánverja. – ig
Spánn íhugar
breytingar á
stjórnarskránni
MeNNtaMál Kristján Þór Júlíusson,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, og Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
afhentu nemendum 6. bekkjar í
Hólabrekkuskóla og Austurbæjar-
skóla Microbit smátölvur í gær
en tölvurnar verða notaðar í for-
ritunarkennslu. Allir 6. bekkingar
í grunnskólum landsins munu fá
slíkar tölvur, alls tæplega 5.000 nem-
endur, en þetta er annað árið í röð
sem nemendur fá slíkar tölvur.
Um er að ræða verkefni sem
hleypt var af stokkunum síðasta
haust af ráðuneytinu, Samtökum
iðnaðarins, Menntamálastofnun,
KrakkaRúv og fjölda íslenskra fyrir-
tækja. Er markmiðið að efla þekk-
ingu og áhuga barna á
forritun og tækni og
segir í tilkynningu á
vef stjórnarráðsins að
ljóst sé að á næstu árum
verði þekking
á f o r r i t u n
o g t æ k n i
f o r s e n d a
f l e s t r a
starfa hér á
landi eins
og annars
s t a ð a r .
– þea
Smátölvur fyrir
allan sjötta bekk
9 . N ó v e M b e r 2 0 1 7 F i M M t U D a g U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
E
-7
3
2
4
1
E
2
E
-7
1
E
8
1
E
2
E
-7
0
A
C
1
E
2
E
-6
F
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K