Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 34
Hér gefur að líta nokkur glæsileg húð- flúr sem Dagný hefur teiknað og flúrað eftir að hún hóf nám í húðflúrun í mars. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Fyrsta húðflúrið mitt var minn-ingartattú um pabba minn. Þegar ég fékk fréttirnar um að hann væri dáinn teiknaði ég kross og fann seinna hvernig hann varð mér þýðingarmikið tákn sem ég vildi fá flúrað á bakið,“ segir Dagný Lind Draupnisdóttir frá Sandgerði. Síðan hafa mörg húðflúr bæst við hjá Dagnýju sem hefur ekki lengur tölu á þeim. „Húðflúr eru oftar en ekki mjög persónuleg. Eftir fyrsta flúrið kemur oft annað, og svo annað, og annað. Djúp merking liggur að baki húðflúra hjá mörgum; það geta verið minningar eða nöfn foreldra og barna sem hverjum og einum er kærastur; jafnvel mynd af heimilishundinum. Aðrir fá sér flúr til að skreyta líkamann með fal- legum myndum, táknum eða letri,“ segir Dagný og bætir við að æ fleiri velji sér stór húðflúr. „Munstur og myndir eru háðar tískustraumum. Nú er vinsælt að tattúvera heilu ermarnar á handleggi karla og kvenna, og víkingauppruninn togar í marga. Galdrastafurinn Ægishjálmur er vinsæll sem og rúnaletur. Þá er Flúrið lifir og deyr með mér Suðurnesjamærin Dagný Lind Draupnisdóttir er að læra húðflúrun. Hún segir húðflúr geta verið þokkafull og ögrandi í senn. Þau sýni sígildar og eilífar táknmyndir en elti líka tískustrauma. Dagný segir nám í húðflúrun vera krefjandi og skemmtilegt. MYND/EYÞÓR Dagný hefur ekki lengur tölu á húðflúrum sínum en segir eitt tattú gjarnan kalla á annað, og svo annað og annað. Stór húðflúr og svokall- aðar ermar njóti mikilla vinsælda hjá báðum kynjum. MYND/EYÞÓR Svarthvítar, raunverulegar myndir af dýrum og mönnum eru nú hæst- móðins í tattútískunni, sem og rósir, krossar og orð. MYND/EYÞÓR mikið um svarthvít portrett af mönnum og dýrum, og bæði kyn vilja fá flúraðan kross eða rós á hörund sitt. Breiddin er mikil og afar fjölbreyttur hópur fólks sem vill skreyta sig með flúri.“ Aldurstakmark fyrir húðflúr er 18 ár. „Margir koma þó til okkar sextán ára í von um tattú en við fylgjum reglum. Húðin er enn að vaxa á sextán ára unglingum og enn vantar upp á þroska til að taka ákvarðanir sem varða alla framtíð. Húðflúr situr á líkamanum um aldur og ævi.“ Draumur sem rættist Frá því Dagný var lítil hnáta hefur hún teiknað. Hún fór á listnáms- braut Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefur einnig stundað nám við Myndlistaskólann í Reykjavík. „Undir niðri blundaði í mér draumur um að verða húðflúrari. Hins vegar eru fáar stofur sem taka inn nema og hægara sagt en gert,“ segir Dagný sem fékk langþráðan draum sinn uppfylltan í mars þegar hún fékk inni sem lærlingur á Tattoo & Skarti í Hafnarfirði, þar sem húðflúrmeistarinn Svanur Guðrúnarson sér um þjálfun hennar og kennslu. „Námið er ótrúlega skemmti- legt og krefjandi. Maður fer hægt og rólega af stað, fylgist með meisturunum vinna og fer svo hægt og bítandi að æfa sig á vinum og vandamönnum, en alls tekur námið tvö ár. Ég hef meðal annars þurft að sækja námskeið í sótt- hreinsun og meðferðum sára en með einnota nálum hefur hætta á smiti og sýkingum minnkað til muna,“ segir Dagný og húðflúrun leikur í höndunum á henni. „Ég er þegar farin að flúra minni verk, letur og fíngerðar myndir, en bíð enn með stærri húðflúr. Ég er alltaf krotandi á blað og búandi til tattú, en á Tattoo & Skart erum við ekki með uppflettimöppur með fjöldaframleiddum myndum heldur mætum óskum og hug- myndum fólks með einstöku flúri sem það sér ekki á næsta manni.“ Ögrandi og þokkafull Dagný segist mun oftar upplifa aðdáun og jákvæðni gagnvart húð- flúrum sínum. „Það dást líka margir að því að ég þori að skreyta mig þetta mikið því maður losnar ekki svo glatt við húðflúr. Því er mikilvægt að skoða vel hver húðflúrar mann og hvernig útkoman er. Maður þarf að treysta manneskjunni sem flúrar mann því það er auðvelt að gera mistök ef ekki er farið af stað með vandvirkni að vopni.“ Oft kemur fyrir að ókunnugt fólk stoppar Dagnýju til að forvitnast um flúrin og skoða handleggi hennar. „Heimur tattúlistar er gríðar- stór og merkilegur. Húðflúr geta verið þokkafull og ögrandi, en mér finnst það fara eftir hverju og einu flúri, og þeim skilaboðum eða yfir- lýsingu í þeim felst. Persónulega lít ég á mín flúr sem list. List sem lifir og deyr með mér.“ Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi 12.990 MILE HIGH SKINNY Vörunúmer: 22791-0034 Danmörk kr 14.874* Svíþjóð kr. 12.617* *Skv. levi.com og gengiskrán. Isl.banka 7.11.17 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 0 9 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 E -7 8 1 4 1 E 2 E -7 6 D 8 1 E 2 E -7 5 9 C 1 E 2 E -7 4 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.