Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 8
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
Bleiku hanskarnir
á tilboði!
Þessir vinsælu, einnota nítril-hanskar eru húðaðir með AlloGel og hafa
reynst þeim frábærlega sem eru með ofnæmi og viðkvæmar hendur.
Mjög góðir í léttar hreingerningar og meðhöndlun matvæla, lyfja og fjölda
kemískra efna, auk þess að vernda gegn ýmsum veirum og bakteríum.
Aðeins 990 kr. kassinn, stærðir XS–XXL. Verð áður: 1.772 kr.AÐEINS
990 KR.
KASSINN
Samfélag Læknir Sigurbjargar
Hlöðversdóttur, íbúa í Hátúni 10,
mælir eindregið með því að hún fái
að halda hundi sínum og segir það
mikilvægt heilsu hennar. Líkt og
Fréttablaðið greindi frá á mánudag
hefur Brynja, hússjóður Öryrkja-
bandalags Íslands, tilkynnt Sigur-
björgu að hún þurfi að hafa sig á
brott úr íbúð sinni fyrir 1. desember
næstkomandi, að hennar sögn
vegna þess að hún hefur haldið þar
lítinn pomeranian-hund sem heitir
Hrollur. Gæludýrahald í öryrkja-
blokkunum í Hátúni var bannað
árið 2015 en dæmi eru þó um að
íbúar séu enn með gæludýr.
Sigurbjörg fær ekki flutning í
annað húsnæðisúrræði þar sem
gæludýr eru leyfð og má ekki til
þess hugsa að þurfa að gefa frá sér
hundinn, líkt og fram kom í umfjöll-
un Fréttablaðsins. Í baráttu sinni
fyrir að halda Hrolli og íbúðinni
hefur hún nú lagt fram vottorð frá
heimilislækni þar sem hann mælir
eindregið með því að hún fái halda
honum, heilsu sinnar vegna.
Í vottorðinu rekur læknirinn að
Sigurbjörg hafi um langa hríð glímt
við líkamleg og andleg veikindi en
að hundurinn hafi veitt henni mikla
gleði og lífsfyllingu hin síðari ár og
að dýrið sé henni afar kært.
„Ekki skilst mér að mikill ófriður
sé vegna dýrsins enda ekki geltandi
daga og nætur. Ef kattahald er leyft
í húsinu er klárt að þegnum hússins
er mismunað þó með tilliti til þess
sem ég hef áður sagt. Fer vinsaml.
fram á að Sigurbjörg fái að halda
dýrinu heilsu sinnar vegna.“
Gæludýrabannið í Hátúni var afar
umdeilt þegar því var komið á árið
2015 enda dýrin mikilvæg eigend-
Heilsuspursmál að Sigurbjörg
fái að halda hundinum sínum
Læknir mælir eindregið með því að Sigurbjörg Hlöðversdóttir fái að halda hundinum Hrolli, heilsu sinnar
vegna. Hún þarf að óbreyttu að yfirgefa íbúð sína á vegum Brynju, hússjóðs ÖBÍ, í Hátúni 10 um mánaða-
mótin vegna hundahaldsins. Læknirinn segir Hroll hafa veitt Sigurbjörgu gleði og lífsfyllingu hin síðari ár.
Sigurbjörg Hlöðversdóttir er með læknisvottorð fyrir því hversu mikilvægur
hundurinn Hrollur er henni. Fréttablaðið/VilHelm
Hundurinn Hrollur.
um og mótmæltu íbúar og dýravinir
af því tilefni fyrir utan blokkirnar
og var ákvörðunin gagnrýnd harð-
lega. Fjöldi kvartana var ástæðan
sem framkvæmdastjóri Brynju gaf
fyrir banninu á sínum tíma.
Fréttablaðið hefur óskað eftir svör-
um við því hjá framkvæmdastjóra
og stjórnarformanni Brynju hvort
komið hafi til álita að endurskoða
bannið, hvort einhvern tímann hafi
verið gerð könnun á viðhorfi íbúa til
gæludýrahalds annarra íbúa í blokk-
inni í ljósi þess að bannið á rætur
sínar að rekja til kvartana og loks
hversu mörgum íbúum hafi verið
gert að yfirgefa íbúðir sínar í Hátúni
vegna dýrahalds frá 2015. Ítrekuðum
fyrirspurnum blaðsins hefur ekki
verið svarað. mikael@frettabladid.is
Ekki skilst mér að mikill
ófriður sé vegna dýrsins
enda ekki geltandi daga og
nætur.
Úr vottorði frá heimilislækni
StjórnSýSla Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi
segir óskiljanlegt að umræða um
kjörgengi Kristínar Soffíu Jóns-
dóttur fari fram á forsætisnefndar-
fundum borgarstjórnar en ekki á
borgarstjórnarfundum. Fréttablað-
ið hefur greint frá því undanfarið
að vafi leiki á kjörgengi borgar-
fulltrúans og óskað hafi verið eftir
lögfræðiálitum frá tveimur aðilum
vegna þess.
Sveinbjörg Birna spurðist fyrir
um málið á borgarstjórnarfundi í
fyrradag. „18. október 2017 birt-
ist frétt í Fréttablaðinu þar sem
sagt var frá vafa um kjörgengi
borgarfulltrúans Kristínar Soff-
íu Jónsdóttur, en deginum áður
17. október hafði hún setið fund
borgarstjórnar. Ekkert var rætt
um vafa á kjörgengi hennar í sal
borgarstjórnar. Ekki er að sjá í
fundargerðum forsætisnefndar að
neinar umræður hafi farið þar fram
um kjörgengi hennar og fyrst er að
sjá það í fundargerð 23. október
2017,“ segir Sveinbjörg.
Sveinbjörg segir að verkefni for-
sætisnefndar séu tiltekin í sam-
þykkt hennar. „Ekki er hægt að
sjá hvernig álitamál um kjörgengi
sé komið inn á borð forsætis-
nefndar enda hvergi að sjá að því
máli hafi verið vísað til hennar.
Því er óskað eftir skriflegu svari frá
borgarlögmanni um valdsvið for-
sætisnefndar til að fjalla um vafa
um kjörgengi, sérstaklega þegar
haft er í huga að ekki er að sjá að
borgarstjórn eða borgarráð, eða
aðrir til þess bærir aðilar innan
borgarkerfisins hafi vísað málinu
til nefndarinnar. Þá er jafnframt
óskað eftir að borgarlögmaður
taki saman í svari sínu umfjöllun
um hvaða stofnun er réttbær til að
taka ákvörðun þegar vafi leikur á
um almennt hæfi borgarfulltrúa,“
segir Sveinbjörg. – jhh
Skilur ekki af hverju álitamál um kjörgengi endar hjá forsætisnefnd
Bretland Priti Patel, breskur þing-
maður, sagði af sér sem ráðherra
þróunarmála hjá breska utan-
ríkisráðuneytinu í gær. Ástæðan
er leynifundir sem hún átti með
Benjamín Netanjahú, forsætisráð-
herra Ísraels, og öðrum ísraelskum
embættismönnum þegar hún var í
fríi þar í landi í ágúst.
Patel baðst afsökunar þegar upp
komst um málið á mánudag. Þá var
hún í opinberri heimsókn í Keníu
en Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, skipaði henni að koma
heim í gær. – þea
Afsögn vegna
leynifunda
Priti Patel, þingmaður Íhaldsflokks-
ins. NordicPHotoS/aFP
Bandaríkin Ríkisstjórn Donalds
Trump forseta Bandaríkjanna birti
í gær nýjar reglugerðir sem setja
takmörk á viðskipti Bandaríkja-
manna við Kúbverja. Flest fyrir-
tæki í eigu kúbverska ríkisins voru
sett á svartan lista, meðal annars
hótel og verslanir. Þá munu flestir
Bandaríkjamenn ekki geta ferðast
til eyjunnar á eigin vegum.
Hinar nýju reglugerðir eru hluti af
aðgerðum Bandaríkjastjórnar til að
draga til baka hluta þeirra breytinga
sem Barack Obama, fyrrverandi
Bandaríkjaforseti, gerði til þess að
auka samskipti ríkjanna tveggja á
sínum tíma.
Bandaríkjamenn neita því hins
vegar að þessi skref sem nú eru stig-
in tengist nýlegum hljóðárásum sem
gerðar voru á bandaríska erindreka
í kúbversku höfuðborginni Havana
og voru þess valdandi að erindrek-
arnir voru kallaðir heim. – þea
Enginn til Kúbu
Frá Kúbu. Nordicphotos/aFP
9 . n ó v e m B e r 2 0 1 7 f i m m t U d a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
E
-8
6
E
4
1
E
2
E
-8
5
A
8
1
E
2
E
-8
4
6
C
1
E
2
E
-8
3
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K