Fréttablaðið - 09.11.2017, Side 34
Hér gefur að
líta nokkur
glæsileg húð-
flúr sem Dagný
hefur teiknað
og flúrað eftir
að hún hóf nám
í húðflúrun í
mars.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Fyrsta húðflúrið mitt var minn-ingartattú um pabba minn. Þegar ég fékk fréttirnar um að
hann væri dáinn teiknaði ég kross
og fann seinna hvernig hann varð
mér þýðingarmikið tákn sem ég
vildi fá flúrað á bakið,“ segir Dagný
Lind Draupnisdóttir frá Sandgerði.
Síðan hafa mörg húðflúr bæst
við hjá Dagnýju sem hefur ekki
lengur tölu á þeim.
„Húðflúr eru oftar en ekki mjög
persónuleg. Eftir fyrsta flúrið
kemur oft annað, og svo annað,
og annað. Djúp merking liggur að
baki húðflúra hjá mörgum; það
geta verið minningar eða nöfn
foreldra og barna sem hverjum og
einum er kærastur; jafnvel mynd af
heimilishundinum. Aðrir fá sér flúr
til að skreyta líkamann með fal-
legum myndum, táknum eða letri,“
segir Dagný og bætir við að æ fleiri
velji sér stór húðflúr.
„Munstur og myndir eru háðar
tískustraumum. Nú er vinsælt
að tattúvera heilu ermarnar á
handleggi karla og kvenna, og
víkingauppruninn togar í marga.
Galdrastafurinn Ægishjálmur er
vinsæll sem og rúnaletur. Þá er
Flúrið lifir og deyr með mér
Suðurnesjamærin Dagný Lind Draupnisdóttir er að læra húðflúrun. Hún segir húðflúr geta verið
þokkafull og ögrandi í senn. Þau sýni sígildar og eilífar táknmyndir en elti líka tískustrauma.
Dagný segir nám í húðflúrun vera krefjandi og skemmtilegt. MYND/EYÞÓR
Dagný hefur ekki lengur tölu á
húðflúrum sínum en segir eitt tattú
gjarnan kalla á annað, og svo annað
og annað. Stór húðflúr og svokall-
aðar ermar njóti mikilla vinsælda hjá
báðum kynjum. MYND/EYÞÓR
Svarthvítar, raunverulegar myndir af
dýrum og mönnum eru nú hæst-
móðins í tattútískunni, sem og rósir,
krossar og orð. MYND/EYÞÓR
mikið um svarthvít portrett af
mönnum og dýrum, og bæði kyn
vilja fá flúraðan kross eða rós á
hörund sitt. Breiddin er mikil og
afar fjölbreyttur hópur fólks sem
vill skreyta sig með flúri.“
Aldurstakmark fyrir húðflúr er
18 ár.
„Margir koma þó til okkar
sextán ára í von um tattú en við
fylgjum reglum. Húðin er enn að
vaxa á sextán ára unglingum og
enn vantar upp á þroska til að taka
ákvarðanir sem varða alla framtíð.
Húðflúr situr á líkamanum um
aldur og ævi.“
Draumur sem rættist
Frá því Dagný var lítil hnáta hefur
hún teiknað. Hún fór á listnáms-
braut Fjölbrautaskóla Suðurnesja
og hefur einnig stundað nám við
Myndlistaskólann í Reykjavík.
„Undir niðri blundaði í mér
draumur um að verða húðflúrari.
Hins vegar eru fáar stofur sem taka
inn nema og hægara sagt en gert,“
segir Dagný sem fékk langþráðan
draum sinn uppfylltan í mars
þegar hún fékk inni sem lærlingur
á Tattoo & Skarti í Hafnarfirði, þar
sem húðflúrmeistarinn Svanur
Guðrúnarson sér um þjálfun
hennar og kennslu.
„Námið er ótrúlega skemmti-
legt og krefjandi. Maður fer hægt
og rólega af stað, fylgist með
meisturunum vinna og fer svo
hægt og bítandi að æfa sig á vinum
og vandamönnum, en alls tekur
námið tvö ár. Ég hef meðal annars
þurft að sækja námskeið í sótt-
hreinsun og meðferðum sára en
með einnota nálum hefur hætta
á smiti og sýkingum minnkað til
muna,“ segir Dagný og húðflúrun
leikur í höndunum á henni.
„Ég er þegar farin að flúra minni
verk, letur og fíngerðar myndir, en
bíð enn með stærri húðflúr. Ég er
alltaf krotandi á blað og búandi
til tattú, en á Tattoo & Skart erum
við ekki með uppflettimöppur
með fjöldaframleiddum myndum
heldur mætum óskum og hug-
myndum fólks með einstöku flúri
sem það sér ekki á næsta manni.“
Ögrandi og þokkafull
Dagný segist mun oftar upplifa
aðdáun og jákvæðni gagnvart húð-
flúrum sínum.
„Það dást líka margir að því að
ég þori að skreyta mig þetta mikið
því maður losnar ekki svo glatt
við húðflúr. Því er mikilvægt að
skoða vel hver húðflúrar mann og
hvernig útkoman er. Maður þarf að
treysta manneskjunni sem flúrar
mann því það er auðvelt að gera
mistök ef ekki er farið af stað með
vandvirkni að vopni.“
Oft kemur fyrir að ókunnugt fólk
stoppar Dagnýju til að forvitnast
um flúrin og skoða handleggi
hennar.
„Heimur tattúlistar er gríðar-
stór og merkilegur. Húðflúr geta
verið þokkafull og ögrandi, en mér
finnst það fara eftir hverju og einu
flúri, og þeim skilaboðum eða yfir-
lýsingu í þeim felst. Persónulega lít
ég á mín flúr sem list. List sem lifir
og deyr með mér.“
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
12.990
MILE HIGH SKINNY
Vörunúmer: 22791-0034
Danmörk kr 14.874*
Svíþjóð kr. 12.617*
*Skv. levi.com og gengiskrán. Isl.banka 7.11.17
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
E
-7
8
1
4
1
E
2
E
-7
6
D
8
1
E
2
E
-7
5
9
C
1
E
2
E
-7
4
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K