Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 2
Veður Hvöss norðvestlæg átt um landið austanvert, einkum á annesjum, en mun hægari breytileg átt annars. Él norðaustan til og einnig má gera ráð fyrir stöku éljum suðvestanlands, en víða bjartviðri í öðrum landshlutum. sjá síðu 38 Pottur gleymdist á eldavél við heimilisstörfin Eldur kviknaði í íbúð á Miklubraut í Reykjavík á sjötta tímanum í gærkvöldi en slökkviliðsmenn Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru fljótir á vettvang og voru þar að störfum eitthvað fram eftir kvöldi, eins og sjá má á myndinni. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu kviknaði í eftir að pottur hafði gleymst á eldavél við heimilisstörfin. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins, en reykræsta þurfti húsnæðið á eftir. Fréttablaðið/steFán samfélag Bandarísk kona frá Ann Arbor í Michigan leitar að göml- um skólafélaga sínum hér á landi. Manninn þekkti hún þegar þau voru saman í grunnskóla, átta ára gömul. Hún á mynd af manninum en kann ekki önnur deili á honum. „Þegar ég var átta ára gömul var ég í þriðja bekk í Northside-grunn- skólanum árið 1961-62 í Ann Arbor í Michigan. Þá var ég svo heppin að hitta Helga frá Íslandi,“ segir Cherie Lockett. Helgi hafi verið einn af fjölmörgum nemendum sem gengu í skólann í eitt ár eða tvö. Sennilegast hafi foreldrar hans verið í námi við Háskólann í Michigan, en sá skóli er einmitt í Ann Arbor. „Það var alltaf mjög gaman að hitta krakka frá fjarlægum löndum. „Helgi var algjört uppáhald, bjart- ur yfirlitum, vinalegur og forvitinn. Hann hafði fal- legt bros og rautt hár sem greindi hann frá öðrum. Hann kom frá landi sem virtist vera svo óralangt í burtu,“ segir Cherie. Cherie segir að fyrir átta ára gamla stelpu hafi Ísland virst vera í órafjarlægð og erfitt að átta sig á því hvar það var. „Þetta var ekki eins og með bekkjarfélaga mína frá Egyptalandi eða Brasilíu eða Japan,“ útskýrir hún. Í hennar huga hafi Helgi verið frá einhverjum virkilega skemmti- legum stað. Sá staður varð alveg einstakur eftir að móðir Helga hafði komið og varið eftirmiðdegi með bekkjarfélögum hans að ræða við þau og fræða þau um Ísland. „Til að toppa þetta allt saman þá kenndi móðir hans okkur spennandi barnalag frá Íslandi,“ segir Cherie. Hún segir Reykjavík alltaf hafa komið upp í hugann þegar hún hugsar um þennan spennandi rauð- hærða dreng. „Ég er enn með stjörn- ur í augunum eftir öll þessi ár og ég vonaði að einn góðan veðurdag myndi ég fara til Reykjavíkur. Ég er hérna eins og svo margir aðrir ferðamenn, nema hvað ég er með minningar og skóla- mynd af þessu fallega og sakleysis- lega brosi Helga,“ segir Cherie. Cherie kom til landsins í fyrra- dag og dvelur hérna á Íslandi fram í næstu viku. Hún óskar þess að hitta þennan gamla vin sinn meðan á dvöl stendur. jonhakon@frettabladid.is Leitar gamals bekkjar- bróður síns á Íslandi Bandarísk kona leitar manns sem hún þekkti fyrir næstum sextíu árum. Hefur hlýjar minningar um manninn, sem heitir Helgi. Konan er hér á landi á ferðalagi en hefur mikinn áhuga á að nýta tækifærið og hitta þennan gamla vin að nýju. Cherie segir að það hafi verið öðru- vísi að hitta Helga frá Íslandi en aðra félaga frá egyptalandi eða brasilíu. Ég er hérna eins og svo margir aðrir ferða- menn, nema hvað ég er með minningar og skólamynd af þessu fallega og sakleysis- lega brosi Helga. Cherie Lockett, ferða- maður frá Michigan samfélag Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um að tvö börn fái að heita Mia og Zion. Fimm nöfn voru samþykkt. Hvorki Mia né Zion þótti uppfylla skilyrði íslenskra ritreglna þar sem i er ekki ritað á undan a eða o í ósam- settum íslenskum orðum. Þá þótti hvorugt nafnið hafa unnið sér hefð í tungumálinu. Kvenmannsnöfnunum Selinu og Alisu var hleypt í gegn athugasemda- laust og sömu sögu er að segja af karl- mannsnöfnunum Jónsa og Ylfingi. Sérstaklega var fjallað um kven- mannsnafnið Aríel en það hefur verið samþykkt hér á landi sem karl- mannsnafn. Nefndin vísaði til þess að fordæmi væru fyrir því að nafn gæti verið borið bæði af körlum og konum. Gildir það meðal annars um nöfnin Blær, Júní og Auður. Því var fallist á beiðnina um Aríel. – jóe Ylfingi og Jónsa hleypt í gegn PFAFF - GRENSÁSVEGI 13 - SÍMI 414 0400 - PFAFF.IS - Fylgstu með okkur á Facebook HELGAR- SPRENGJA Jólaseríur sem þola íslenska veðráttu 10 metra, 100 ljósa sería frá 4.795 kr. Bandaríkin Enn í gær bættist í hóp þeirra sem ásaka bandaríska leik- arann Kevin Spacey um kynferðis- lega áreitni og ofbeldi. Fyrrverandi fréttaþulurinn Heather Unruh boð- aði til blaðamannafundar í Boston í gær. Sagði hún þar frá því að Spacey hefði beitt son hennar, þá átján ára, kynferðislegu ofbeldi á krá í Nan- tucket. Unruh sagði Spacey hafa keypt áfengi fyrir son sinn en í Massa- chusetts þarf að vera 21 árs til þess að kaupa áfengi. „Þegar Spacey var búinn að hella hann fullan stakk hann hendinni inn  undir buxur sonar míns og greip í kynfæri hans,“ sagði Unruh og bætti við: „ S k a m m a s t u þín fyrir það sem þú gerðir syni mínum.“ – þea Fleiri ásaka Kevin Spacey Kevin spacey, leikari. nor- diCpHotos/ Getty menning Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, veitti í dag LungA – Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, heiðursviðurkenningu við hátíð- lega athöfn á afmælishátíð Eras- mus+, mennta- og æskulýðsáætlun ESB, sem fram fór í Hörpu. Björt Sigfinnsdóttir, fram- kvæmdastjóri LungA, og Aðalheiður Borgþórsdóttir, einn af stofnendum LungA, tóku við viðurkenningunni. LungA hefur í meira en áratug nýtt sér styrki í æskulýðshluta Eras- mus+ til að byggja upp listahátíð og LungA skólann. – srs LungA hlaut viðurkenningu 9 . n ó v e m B e r 2 0 1 7 f i m m T u d a g u r2 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð 0 9 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 E -4 B A 4 1 E 2 E -4 A 6 8 1 E 2 E -4 9 2 C 1 E 2 E -4 7 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.