Fréttablaðið - 09.11.2017, Side 12
Takið vel á móti
fermingarbörnunum
Þau safna fyrir
Hjálparstarf
kirkjunnar
PIPA
R
\
TB
W
A
• SÍA
• 122
90
0
kvika.is
Fyrirtækjaráðgjöf Kviku, fyrir hönd Lindarhvols ehf., auglýsir Lyu hf. til sölu.
Lya er stærsta keðja apóteka og heilsuverslana á Íslandi en samtals rekur félagið
50 apótek, útibú og verslanir um land allt undir merkjum Lyu, Apóteksins og
Heilsuhússins.
Einnig á Lya dótturfélagið Heilsu ehf. sem sérhær sig í innutningi og dreingu
á matvörum, vítamínum, snyrtivörum og almennri apóteksvöru. Ríkissjóður er
eigandi félagsins en Lindarhvoll ehf. sér um umsýslu þess og hefur falið fyrirtækja-
ráðgjöf Kviku að selja félagið í opnu söluferli.
Frá og með mmtudeginum 9. nóvember 2017 geta áhugasamir árfestar sem
undirrita trúnaðaryrlýsingu og skila umbeðnum upplýsingum fengið afhent ítarleg
sölugögn um félagið.
Áhugasömum bjóðendum er boðið að skila inn óskuldbindandi tilboði fyrir kl. 16
föstudaginn 15. desember. Þeim sem eiga hagstæðustu tilboðin verður boðin
áframhaldandi þátttaka í ferlinu og munu þeir fá aðgang að rafrænu gagnaherbergi
með ítarlegri gögnum, kynningu á félaginu frá stjórnendum Lyu hf. og gefst
kostur á að framkvæma áreiðanleikakönnun á félaginu.
Áhugasamir árfestar eru beðnir um að hafa samband við fyrirtækjaráðgjöf Kviku
með tölvupósti á netfangið lya@kvika.is og munu þeir í framhaldinu fá stutta
kynningu á félaginu og frekari upplýsingar um söluferlið.
Lya hf. – Opið söluferli
Bandaríkin Demókratar sópuðu
að sér kosningasigrum í Banda-
ríkjunum þegar úrslit fjölmargra
kosninga fóru að skýrast í fyrrinótt.
Unnu frambjóðendur flokksins
meðal annars tvo ríkisstjóraslagi
og allnokkra borgarstjórastóla. Þá
sneri flokkurinn einni öldungadeild
ríkisþings á sitt band og bætti við sig
einu ríki þar sem flokkurinn er með
ríkisstjóra og meirihluta í báðum
deildum þingsins.
Einna helst hefur vakið athygli
hversu fjölbreyttur hópur Demó-
krata náði kjöri í hin ýmsu embætti
vestanhafs. Til að mynda stefnir í að
fyrsta transkonan sem Bandaríkja-
menn kusu meðvitandi taki sæti á
þingi, fyrsta svarta konan var kjörin
borgarstjóri Charlotte og fyrsti sík-
inn varð borgarstjóri Hoboken.
Kjörsókn Demókrata jókst mikið
að meðaltali frá síðustu kosningum
í sömu embætti og unnu Demókrat-
ar sigra sem þeir höfðu varla gert sér
vonir um. Í útgönguspám kemur
fram að einna helst hafi kjósendur
viljað senda Donald Trump, forseta
Bandaríkjanna og Repúblikana,
skýr skilaboð.
Miðað við úrslitin stefnir í stór-
sigur Demókrata þegar kosið verður
til þings á næsta ári en kosið verður
um öll sæti fulltrúadeildarinnar,
þriðjung sæta öldungadeildarinnar
og tugi ríkisstjórastóla. Ólíklegt
þykir að Repúblikanar missi meiri-
hluta sinn í öldungadeildinni en af
þeim 33 sætum sem kosið er um
verma Repúblikanar átta í ríkjum
sem þykja afar ólíkleg til að kjósa
Demókrata.
Kosningasigur Demókratans
Danicu Roem í Virginíu þykir einna
merkilegastur og var kosningabar-
áttan hörð. Roem barðist um sæti
í fulltrúadeild Virginíuþings við
sitjandi þingmann, Repúblikanann
Bob Marshall. Roem verður að
öllum líkindum fyrsta transkonan,
sem vinnur kosningar vestanhafs
eftir að hafa komið út úr skápnum
sem trans, til að taka sæti á þingi.
Áður hafði Althea Garrison
náð kjöri í fulltrúadeild þingsins í
Senda Trump
skýr skilaboð
Demókratar unnu stórsigra í fjölmörgum
kosningum á þriðjudag. Kjósendur vildu senda
forseta Bandaríkjanna skýr skilaboð. Einna mesta
athygli vekur sigur transkonu á Repúblikana sem
kallaði sjálfan sig aðalhommahatara Virginíu.
Transkonan Danica Roem hirti þingsæti í fulltrúadeild Virginíuþings af sjálf-
titlaða hommahataranum Bob Marshall. NoRDicphoTos/AFp
Hann hefur í
tvígang sent frá sér
efni þar sem hann ræðst á
mig fyrir að vera trans.
Danica Roem, Demókrati
Samkvæmt útgöngu-
spám vildu kjósendur einna
helst senda Donald Trump
skýr skilaboð.
Massachusetts. Þá vissu kjósendur
hins vegar ekki að frambjóðandinn
væri transkona. Einnig náði trans-
konan Stacie Laughton kjöri í New
Hampshire árið 2012 en þáði ekki
sætið.
Fyrrnefndur Marshall lýsti sér
eitt sinn sem „aðalhommahatara“
Virginíu og reyndi, án árangurs, að
koma frumvarpi í gegnum Virginíu-
þing sem hefði sett strangar reglur
um notkun transfólks á almennings-
salernum í ríkinu. Eins og gefur að
skilja var kosningabaráttan á milli
Roem og Marshalls því hörð.
Sendi framboð Marshall meðal
annars frá sér bæklinga þar sem
karlkyns fornöfn voru ítrekað
notuð í stað kvenkyns fornafna
þegar fjallað var um Roem og var
Roem sögð gera kyn sitt að helsta
kosningamálinu. „Hræsni þing-
mannsins á sér engin takmörk.
Hann segir að ég hafi gert kyn mitt
að kosningamáli þegar hann hefur
í tvígang sent frá sér efni þar sem
hann ræðst á mig fyrir að vera trans,
fyrir að berjast fyrir réttindum hin-
segin fólks og notar vitlaus fornöfn,“
sagði í yfirlýsingu sem Roem sendi
frá sér í kjölfarið.
Því svaraði Marshall með yfirlýs-
ingu sem í sagði að innihald bækl-
ingsins snerist ekki um að Roem
væri trans. Í yfirlýsingunni hélt
hann áfram að nota vitlaus fornöfn
um Roem. thorgnyr@frettabladid.is
9 . n ó v e m B e r 2 0 1 7 F i m m T U d a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
E
-9
5
B
4
1
E
2
E
-9
4
7
8
1
E
2
E
-9
3
3
C
1
E
2
E
-9
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K