Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 18
Fyrirtæki í fjármála- og vátrygg-
ingastarfsemi greiða tæplega
þriðjung allra opinberra gjalda
hér á landi, að því er fram kemur í
ársriti Samtaka fjármálafyrirtækja
sem kemur út í dag. Hefur skatt-
byrði umræddra fyrirtækja aukist
um 233 prósent frá árinu 2010, en
á sama tíma hefur tekjuskattsstofn-
inn aðeins aukist um 79 prósent.
Umfjöllun samtakanna er byggð
á skýrslu fjármála- og efnahagsráð-
herra um skatttekjur, skattrann-
sóknir og skattaeftirlit sem lögð
var fyrir síðasta löggjafarþing.
Alls greiddi fjármála- og vátrygg-
ingageirinn tæpa 50 milljarða
króna í opinber gjöld í fyrra, en þar
af greiddu aðildarfélög samtakanna
tæpa 40 milljarða. Í ársritinu er auk
þess bent á að arðgreiðslur stóru
viðskiptabankanna þriggja – Arion
banka, Íslandsbanka og Lands-
bankans – hafi numið um 200
milljörðum frá árinu 2013. Er hluti
ríkisins í þeim um 150 milljarðar.
Aðildarfélög samtakanna hafi
þannig greitt tæplega 400 milljarða
króna til ríkisins frá árinu 2009.
Samtökin taka fram að hvergi í
Evrópu sé skattlagning á fjármála-
fyrirtæki hærri en hér á landi.
Auk þess sé leitun að ríkjum sem
leggi fleiri sérstaka skatta, eins
og bankaskatt og fjársýsluskatt,
á rekstur slíkra fyrirtækja. Segja
samtökin sérstöku skattana rýra
að óbreyttu heildarvirði banka-
kerfisins um allt að 280 milljarða
króna en ríkið fer sem kunnugt er
með stærstan hluta eignarhalds
þess. – kij
Fjármálageirinn greiðir tæplega
þriðjung allra opinberra gjalda
Rannsókn embættis héraðssaksókn-
ara á meintum innherjasvikum fyrr-
verandi yfirmanns hjá Icelandair er
nokkuð vel á veg komin, að sögn Ólafs
Þórs Haukssonar héraðssaksóknara.
Hann getur þó ekki sagt hvenær gert
er ráð fyrir að rannsókninni ljúki.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í júlí síðastliðnum beinist
rannsókn héraðssaksóknara að
umfangsmiklum viðskiptum með
hlutabréf í Icelandair Group sem
gerð voru í aðdraganda þess að félag-
ið sendi frá sér afkomutilkynningar til
Kauphallarinnar.
Er hópur manna grunaður um
að hafa nýtt sér í nokkur skipti inn-
herjaupplýsingar sem þeir fengu frá
yfirmanni hjá Icelandair. Yfirmað-
urinn var sendur í leyfi frá störfum
þegar málið komst upp í lok maí-
mánaðar á þessu ári.
Mennirnir eru grunaðir um að
hafa gert framvirka samninga
við innlendar fjármálastofnanir,
þar á meðal Landsbankann, en
ljóst þykir að þær hafi tapað
háum fjárhæðum á samning-
unum. – kij
Rannsókn á meintum
innherjasvikum vel á veg komin
Rann-
sóknin beinist
að viðskiptum með
hlutabréf í Icelandair.
AÐALFUNDUR
Sögufélags
verður haldinn fimmtudaginn 23. nóvember
kl. 18.30-19.30 í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8
Dagskrá:
• Venjuleg aðalfundarstörf
• Höfundakvöld kl. 20 með kynningum
og spjalli um nýjar bækur Sögufélags
Stjórnin
www.egodekor.is - Bæjarlind 12 Kópavogur.
MODESTO LEÐURHORNSÓFI
Stærð: 300X210cm
Verð: 399.900,-
TILBOÐSVERÐ: 359.910,-
Ný innlána- og greiðslukerfi, sem
Landsbankinn mun taka í notkun
síðar í mánuðinum, geta leitt til
hagræðingar í rekstri íslenska
bankakerfisins, að sögn Lilju Bjarkar
Einarsdóttur, bankastjóra Lands-
bankans. Bankinn verður sá fyrsti
hér á landi sem innleiðir kerfin.
Friðrik Þór Snorrason, forstjóri
Reiknistofu bankanna (RB), segir að
með tíð og tíma muni kerfin draga
talsvert úr rekstrarkostnaði. Það sé
mikilvægt, enda sé kostnaðurinn af
upplýsingatækni veigamikill þáttur
í heildarkostnaði bankanna og hærri
en gengur og gerist erlendis.
Nýju kerfin, sem leysa af hólmi
mörg eldri tölvukerfi, hafa á undan-
förnum árum verið þróuð í samstarfi
við evrópska hugbúnaðarfyrirtækið
Sopra Banking Software.
„Þetta er tvíþætt verkefni. Ann-
ars vegar er verið að innleiða ný,
stöðluð og alþjóðleg greiðslu- og
innlánakerfi fyrir Landsbankann
og Íslandsbanka frá Sopra Banking
Software og hins vegar er verið að
búa til nýtt samskipta- og gagnalag
fyrir íslenskan fjármálamarkað sem
mun einfalda til muna þróun nýrra
lausna og samvinnu banka við þriðja
aðila, svo sem fjártæknifyrirtæki,“
segir Friðrik Þór.
„Þrátt fyrir að núverandi grunn-
kerfi hafi á sínum tíma verið bylt-
ingarkennt – sem fyrsta rauntíma-
greiðslukerfi í heiminum – þá eru
hlutar þess orðnir hátt í 40 ára gamlir
og kostnaðurinn þar af leiðandi orð-
inn nokkuð hár. Þeir byggja á gamalli
tækni sem erfitt er að nýta til þess að
mæta kröfum nútímafjármálastarf-
semi,“ nefnir hann.
Nýju kerfin verði hagkvæmari og
einfaldari í rekstri. „Hagkvæmnin
felst í því að um alþjóðlegt, staðlað
kerfi er að ræða þar sem fjöldi
erlendra fjármálafyrirtækja sam-
nýtir þróunarlausnir og deilir
þannig kostnaðinum, en stór hluti
nýrra krafna til slíkra kerfa kemur
til vegna breytinga á alþjóðlegum
lögum,“ bætir Friðrik Þór við.
Lilja Björk segir nýju kerfin gera
það að verkum að bankinn muni
geta brugðist hraðar við þörfum
markaðarins. „Þau munu auðvelda
okkur að bregðast við þegar eftir-
spurn á markaðinum krefst þess eða
þegar við sjáum tækifæri á borðinu.
Í gamla kerfinu var það ekki ein-
falt. Á tímum sem þessum, þegar
bankaviðskipti eru að taka hröðum
breytingum, er afar mikilvægt að við
getum boðið upp á nýjungar sem
henta markaðinum hverju sinni án
þess að þurfa að ráðast í mikla for-
ritunarvinnu eða fjárfestingu í fólki
og ferlum.“
Um sé að ræða stöðluð alþjóðleg
kerfi sem viðhaldið er af stóru fyrir-
tæki sem hefur starfsemi víðs vegar í
heiminum. Ákveðið öryggi sé fólgið
í því.
„Breytingin felur í sér einföldun
á tækniumhverfi bankans þar sem
hægt verður að fasa út ýmsum
kerfum og viðbótum sem bankinn
hefur þurft að byggja ofan á eldri
grunnkerfi RB. Þetta er eitt af ótal
verkefnum sem leggjast öll á eitt um
að lækka kostnað í bankakerfinu.“
Lilja Björk segir að takmarkaður
fjöldi fólks hafi getað haldið gamla
kerfinu við. Það hafi verið orðin
áskorun að manna viðhald og þróun
til framtíðar. „Við horfum nú fram á
breytt umhverfi og þá er mjög gott
fyrir bankann að hafa traustan og
öflugan grunn sem við getum byggt
á til framtíðar. Við erum því í ólíkri
stöðu miðað við marga vestræna
banka sem hafa búið við sömu kerfin
í áratugi og eiga eftir að uppfæra.“
Landsbankinn hyggst innleiða
kerfið 20. nóvember en af þeirri
ástæðu þarf að skerða þjónustu í net-
bönkum bankans helgina 18. til 19.
nóvember. kristinningi@frettabladid.is
Bankar lækka kostnað
með nýjum kerfum
Bankastjóri Landsbank-
ans segir ný innlána- og
greiðslukerfi, sem bank-
inn tekur í notkun síðar
í mánuðinum, geta leitt
til hagræðingar í rekstri
bankakerfisins. Forstjóri
Reiknistofu bankanna
segir kostnað bankanna
af upplýsingatækni
hærri en gengur og gerist
erlendis. Kerfin hafa
verið í þróun í þrjú ár.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, og Friðrik Þór Snorrason,
forstjóri Reiknistofu bankanna. FRéttaBLaðIð/Hanna
markaðurinn
9 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r18 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
E
-5
A
7
4
1
E
2
E
-5
9
3
8
1
E
2
E
-5
7
F
C
1
E
2
E
-5
6
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K