Fréttablaðið - 09.11.2017, Síða 32
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Mikið verður um dýrðir næsta laugardag þegar Rúmfatalagerinn opnar
nýja og glæsilega verslun að Bílds-
höfða 20 í Reykjavík, húsnæði
sem flestir tengja við Krónuna,
Húsgagnahöllina og Intersport. Á
opnunardeginum og raunar alla
helgina verður boðið upp á glæsileg
tilboð og ýmsar uppákomur fyrir
gesti segir Ívar Þórður Ívarsson,
verslunarstjóri nýju verslunarinnar.
„Það verða svakaleg opnunartil-
boð í gangi hjá okkur þar sem við
munum m.a. bjóða upp á vörur sem
ekki eru í boði í öðrum verslunum
okkar. Ég vil ekki gefa allt upp því
við viljum líka koma viðskipta-
vinum okkar á óvart, en meðal
nýrra vara er þó hægt að nefna
arna, skemmtilegar bastkörfur og
alls konar skemmtilega hluti. Við
höfum keypt þessar vörur í miklu
magni og getum því boðið upp á
frábær verð um helgina enda eiga
þær vafalaust eftir að klárast.“
Frábær staðsetning
Nýja verslunin mun að öðru leyti
bjóða upp á hefðbundið vöruúrval
en verslanir Rúmfatalagersins eru
þekktar fyrir mjög breitt vöruúrval
að sögn Ívars. „Við bjóðum upp
á glæsilegt úrval, allt frá stærri
húsgögnum niður í fatarúllur og
allt þar á milli. Einnig má ég til
með að nefna sængurnar okkar en
Rúmfatalagerinn stærir sig af alveg
frábærum sængum og geta við-
skiptavinir okkar sannarlega stólað
á frábær gæði þar.“
Nokkrir mánuðir eru síðan
Rúmfatalagerinn lokaði verslun
sinni á Korputorgi en Íslensk amer-
íska festi kaup á Korputorgi nýlega.
„Við finnum fyrir því að mjög
margir sakna verslunar okkar við
Korputorg. Ég er reglulega stopp-
aður og spurður hvers vegna henni
var lokað og hvar við munum opna
næstu verslun. Því hvet ég bara sem
flesta til að mæta á laugardaginn á
opnun okkar, skoða nýjar vörur og
upplifa eitthvað sem þeir hafa aldr-
ei gert áður. Nýja verslunin okkar er
líka til húsa á einum besta hugsan-
lega stað sem í boði er og við erum
mjög ánægð með að vera komin
hingað enda stendur húsið við ein
fjölmennustu gatnamót landsins.“
Jólastemning framundan
Jólavertíðin er að hefjast og Ívar
segist mjög spenntur fyrir næstu
vikum. „Við dettum nánast beint
í jólavertína með opnuninni. Því
verður mikið fjör þessar fyrstu
vikur, fallega skreytt borð og svo
munum við bjóða upp á eina
nýjung sem er lítil Rúmfatalagersí-
búð sem verður staðsett í verslun-
inni. Þar geta viðskiptavinir skoðað
þær vörur sem við bjóðum upp á í
rými sem er eins og lítil íbúð. Þessi
nýjung á án vafa eftir að vekja mikla
lukku.“
Verslunin að Bíldshöfða verður
opnuð kl. 9 á laugardagsmorgun
og biður Ívar gesti um að mæta
tímanlega. „Þetta verður sannkallað
risapartí. Ég mun klippa á borð-
ann kl. 9 og segja nokkur orð. Svo
bjóðum við gestum inn til okkar þar
sem m.a. verður boðið upp á léttar
veitingar og skemmtilega leiki. Við
ætlum t.d. að vera með leik á Instag-
ram-síðunni okkar þar sem hægt
er að vinna rúm. Auk þess fá fyrstu
150 gestirnir sérstakan gjafapoka en
fimmtán gjafapokar innihalda auka
30.000 kr. gjafabréf.“
Framhald af forsíðu ➛
Verslanir Rúmfatalagersins eru fullar af glænýju og spennandi jólaskrauti fyrir fólk á öllum aldri.
Mikið úrval fallegra stóla í ýmsum ólíkum litum. Fallegar körfur og kassar sem henta við ýmis ólík tilefni.
Fallegir gjafapokar eiga við um stór og smá tilefni.
Það verður enginn svikinn af úrvalinu af jólavörum í Rúmfatalagernum.Gott úrval af púðum í ólíkum litum og með skemmtilegum myndum.
Auk þess fá fyrstu
150 gestirnir sér-
stakan gjafapoka en
fimmtán gjafapokar
innihalda auka 30.000 kr.
gjafabréf .
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
E
-8
B
D
4
1
E
2
E
-8
A
9
8
1
E
2
E
-8
9
5
C
1
E
2
E
-8
8
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K