Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 46
Körfubolti Íslenska kvenna- landsliðið í körfubolta mætir Svartfjallalandi í fyrsta leiknum í undankeppni EM 2019 í Laugardals- höllinni á laugardaginn. Stelpurnar eiga svo leik gegn Slóvakíu í næstu viku en þær ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Báðar þessar þjóðir voru á EM síðast og eru gríðarlega sterkar. Íslenska liðið sýndi að það er á góðri leið í undankeppni HM þegar það lagði Ungverjaland hér heima og það er leikur sem stelpurnar horfa til fyrir þessa tvo hrikalega erfiðu leiki. „Sá leikur gaf okkur mjög mikið og það er gott fyrir okkur að rifja upp hvernig þetta var. Það var gaman í Höllinni fyrir framan íslenska áhorfendur með fullt hjarta af baráttu. Ef skotin detta þá getum við gert ýmsa hluti,“ segir Helena Sverrisdóttir. „Við lendum á móti svakalegum liðum en það er engin ástæða til að vera hræddar við þetta. Þvert á móti förum við óhræddar inn í verkefnið og gerum okkar allra besta.“ Helena er óumdeilanlega besta körfuboltakona Íslands fyrr og síðar en inn í liðið undanfarin misseri hafa verið að koma gríðarlega efni- legar ungar stúlkur sem gætu seinna meir gert tilkall til titils Helenu sem sú besta. Lætur hún þessar stelpur samt ekki vita á æfingum hver er enn þá númer eitt? „Þær eru eiginlega of kurteisar. Ég þarf frekar að reka þær í hina áttina svo þær verði aðeins kokhraustari. Við þurfum líka að vera svolítið kokhraustar á laugardaginn á móti Svartfjallalandi ef við ætlum að gera eitthvað,“ segir Helena og hlær við, en þessar ungu stelpur eru nú reyndari og styrkja liðið mikið. „Það er búið að vinna hægt og rólega í því að koma þessum ungu stelpum inn í þetta. Nú eru þær búnar að fá eitt til þrjú ár með A-landsliðinu og það er stórt fyrir þær. Svo erum við eldri í bland við þær. Einnig erum við komnar aftur með Hildi Björgu úr háskólaboltan- um þannig að blandan er góð,“ segir Helena Sverrisdóttir. tomas@365.is Mega vera kokhraustari Helena Sverrisdóttir er komin aftur í landsliðið. Fréttablaðið/Eyþór fótbolti Stjarnan tekur á móti Tékklandsmeisturum Slavia Prag í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Stjörnukonur unnu sinn riðil í for- keppni Meistaradeildarinnar örugg- lega og drógust svo eins og venjulega á móti rússnesku liði, Rossiyanka, í 32-liða úrslitum. Fyrri leiknum í Garðabænum lyktaði með 1-1 jafnt- efli en Stjarnan gerði sér lítið fyrir og vann útileikinn 0-4 og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum í fyrsta sinn. Og þar drógust Garðbæingar á móti Slavia Prag sem hefur orðið tékk- neskur meistari undanfarin fjögur ár. „Við erum spenntar fyrir verk- efninu og teljum að við eigum alveg möguleika á að fara í 8-liða úrslit. En við þurfum að gera allt rétt, spila okkar leik og vonast eftir góðum úrslitum,“ sagði Katrín Ásbjörns- dóttir, fyrirliði Stjörnunnar, í samtali við Fréttablaðið. Þótt Slavia Prag sé sterkt lið hefði Stjarnan getað fengi mun erfiðari mótherja, eins og Frakklands- og Evrópumeistara Lyon eða Söru Björk Gunnarsdóttur og stöllur hennar í Wolfsburg. „Þetta hefði getað verið verra. Það voru þrjú lið sem við töldum okkur eiga einhverja möguleika gegn og þetta lið var eitt þeirra. Við vorum alveg ánægðar með það og það er gaman að fara inn í 16-liða úrslit og eiga möguleika,“ sagði Katrín sem segir Slavia Prag vera með öflugt lið, enda með marga landsliðsmenn innan sinna raða. „Þær eru flestar í tékkneska lands- liðinu og margar í byrjunarliðinu. Þær eru líkamlega sterkar og pressa hátt uppi á vellinum. Við höfum séð Slavia Prag spila þannig og þær opna vörnina og svæðið milli varnar og miðju. Við þurfum að nýta okkur það og keyra á þær þegar við fáum tækifæri til,“ sagði Katrín sem var í íslenska landsliðinu sem mætti því tékkneska í undankeppni HM í síð- asta mánuði. Leikar fóru 1-1. Katrín segir að það hjálpi Stjörn- unni að Ísland og Tékkland hafi mæst fyrir rúmum tveimur vikum. „Það hjálpar. Það eru margar í Slavia Prag sem spila fyrir lands- liðið. Varnarleikurinn er þeirra veik- leiki og við höfum farið yfir hvernig við getum sótt á þær. Við höfum leikgreint þær vel og erum tilbúnar,“ sagði Katrín. Pepsi-deild kvenna kláraðist í lok september og því er leikformið ekki mikið hjá leikmönnum Stjörnunn- ar, nema hjá þeim sem voru í lands- liðinu. Katrín segir þó að það hafi gengið ágætlega hjá Stjörnukonum að halda sér við og undirbúningur- inn fyrir leikina gegn Slavia Prag hafi verið góður. „Það hefur gengið vel. Stelpurnar fengu tvisvar sinnum gott helgarfrí og æfðu vel þar á milli. Síðustu tvær vikur höfum við æft á fullu og tekið æfingaleiki við stráka. Það er hátt tempó á æfingu og allir einbeittir. Ég er mjög ánægð með hvernig æfing- arnar hafa gengið,“ sagði Katrín. Slavia Prag vinnur alla leiki heima fyrir með miklum yfirburðum en liðið er á toppi tékknesku deildar- innar með 28 stig eftir 10 leiki og markatöluna 77-9. „Það er mjög erfitt að bera deild- ina hjá þeim og deildina hér heima saman. Við höfum aðallega skoðað leikina þeirra við Minsk í 32-liða úrslitunum. Við styðjumst mest við þá,“ sagði Katrín. Hún segir að Evrópuleikirnir gefi tímabilinu, þar sem enginn titill kom í hús í Garðabænum, smá lit. „Við vissum snemma í septem- ber að Íslandsmeistaratitillinn væri genginn okkur úr greipum og bikar- inn líka en þetta kórónar sumarið að vera komnar svona langt. Og við vitum að við getum farið enn lengra. Þetta heldur okkur gangandi. Þetta er skemmtileg tilbreyting í nóvem- ber,“ sagði Katrín að lokum. ingvithor@365.is Vitum að við getum farið enn lengra Katrín Ásbjörnsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, telur að liðið eigi góða möguleika gegn Slavia Prag í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Margir leikmenn Slavia Prag spila með tékkneska landsliðinu sem mætti því íslenska fyrir rúmum tveimur vikum. Stjörnukonan lorina White á æfingu með Stjörnunni í gærkvöldi en það er ekki á hverju ári sem það er Evrópuleikur í nóvember á islandi. Fréttablaðið/VilHElm Síðustu tvær vikur höfum við æft á fullu og tekið æfingaleiki við stráka. Katrín Ásbjörnsdóttir, Stjörnunni Kynning í Lyfjum & heilsu, Kringlunni. 20% afsláttur af Skyn Iceland út sunnudag. Kaupauki fylgir með ef verslað er fyrir meira en 6.900 krónur. 9 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 f i m m t u D A G u r34 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 0 9 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 E -9 F 9 4 1 E 2 E -9 E 5 8 1 E 2 E -9 D 1 C 1 E 2 E -9 B E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.