Fréttablaðið - 15.11.2017, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 6 9 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 5 . n ó V e M b e r 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
sKoðun Ingimundur Gíslason
vill ellismelli á Alþingi. 14
sport Margir leikmenn ollu
vonbrigðum í Katar. 18
Menning Heimildarmyndin
Varnarliðið – Kaldastríðsútvörð-
ur verður frumsýnd í kvöld. 38
lÍFið Borgarráð Reykja-
víkur hefur fengið tíu
umsagnir um tón-
listarhátíðina Secret
Solstice og
þar kemur
ýmislegt
miður fal-
legt í ljós. 26
plús sérblað
l FólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun
Gallup apríl-júní 2015
BRÉF OG FRÁSAGNIR
ÍSLENSKRA PILTA
Í VÍTI HEIMSSTYRJALDAR
MAMMA, ÉG ER Á LÍFI
Jakob Þór Kristjánsson Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Skraut í
stórafmæli
sKattaMál Héraðssaksóknari hefur
fellt niður 60 mál sem skattrann-
sóknarstjóri vísaði til embættisins
eftir rannsókn á gögnum um fjár-
muni Íslendinga í skattaskjólum.
Undandregnir skattstofnar í
umræddum málum námu tæplega
tíu milljörðum króna. Málin ná allt
aftur til ársins 2012 og varða flest
íslenska sjómenn sem störfuðu hjá
íslenskum útgerðum erlendis. Stór-
an þátt á einn aðili en vanframtald-
ar tekjur og fjármagnstekjur hans
námu um 2,2 milljörðum.
Rannsóknirnar voru meðal ann-
ars byggðar á gögnum sem keypt
voru í kjölfar Panama-lekans. Skatt-
rannsóknarstjóri hefur mánuð til
þess að kæra ákvörðunina til ríkis-
saksóknara.
„Við sendum 152 mál til embættis
héraðssaksóknara. Nú þegar hafa 60
mál verið felld niður og óvíst er með
rest. Það er verið að taka ákvörðun
um hvort við kærum ákvörðunina
til ríkissaksóknara, en einhver mál
verða kærð – það liggur fyrir,“ segir
Bryndís Kristjánsdóttir skattrann-
sóknarstjóri. „Þetta er mikil blóð-
taka,“ bætir hún við, en rannsókn
málanna var umfangsmikil.
Alls varða 34 þessara mála tekjur
Íslendinga vegna starfa þeirra
erlendis. Í heildina nema vanfram-
taldar tekjur um 5,7 milljörðum
og vanframtaldar fjármagnstekjur
rúmum fjórum milljörðum.
Ólafur Þór Hauksson héraðssak-
sóknari segir að litið hafi verið til
dómafordæma við ákvörðunina.
Vísar hann þar til máls Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar og Tryggva Jóns-
sonar en Mannréttindadómstóll
Evrópu komst að þeirri niðurstöðu
í maí að íslenska ríkið hefði brotið
á þeim þegar Hæstiréttur dæmdi
þá fyrir skattalagabrot árið 2013.
Hinn dómurinn varðar mál Braga
G. Kristjánssonar, sem dæmdur
var fyrir meiriháttar skattalaga-
brot í héraði, en Hæstiréttur ákvað
að fresta máli hans á meðan beðið
væri eftir dómi Mannréttindadóm-
stólsins.
„Við þurftum að bíða eftir niður-
stöðum þessara dóma,“ segir Ólafur.
„Í ljósi þessara dóma höfum við
metið það sem svo að málin séu
ekki líkleg til sakfellingar,“ segir
hann. – sks
Mál sjómanna í skattaskjólum niðurfelld
Skattrannsóknarstjóri kærir ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður 60 mál er varða meint skattalagabrot. Skattstofn málanna
nemur tæpum 10 milljörðum. Héraðssaksóknari segir málin ekki hafa verið líkleg til sakfellingar. Mörg mál varða íslenska sjómenn.
ViðsKipti Kostnaðarhlutfall í
samningum um lífeyristryggingar
umboðsaðila þýska tryggingafélags-
ins Allianz hér á landi er að meðaltali
tæp 25 prósent á ári fyrstu fimm ár
samningstímans ef samið er til meira
en 40 ára. Innlendir keppinautar
umboðs aðila erlendra lífeyristrygg-
inga benda á að hefðbundinn sér-
eignarsparnaður og lífeyristryggingar
séu ólík sparnaðarform sem séu lögð
að jöfnu við markaðssetningu.
Framkvæmdastjóri Allianz á
Íslandi segir ekki þýða að líta ein-
ungis til kostnaðar við samning
fyrstu ár samningstímans. Mestu
skipti hvað viðskiptavinurinn fái
greitt til baka í samningslok. Ólíkt
innlendum vörslu aðil um sýni Alli-
anz viðskiptavinum með nákvæm-
um hætti hver þróun lífeyristrygg-
ingarinnar verður. – kij / sjá Markaðinn
Hár kostnaður á
fyrstu árunum
Á meðan íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætti landsliði Katar á heimavelli héldu knattspyrnustjörnur framtíðarinnar út á Vivaldivöllinn í vetrarkuldanum. Þeir létu haglélið ekki á sig
fá, enda keppnisskapið mikið. Karlalandsliðið gerði jafntefli en á Seltjarnarnesi í gær voru allir þeir sem mættu Vetri konungi sigurvegarar. Fréttablaðið/SteFán
1
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
7
-2
8
6
C
1
E
3
7
-2
7
3
0
1
E
3
7
-2
5
F
4
1
E
3
7
-2
4
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K