Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2017, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 15.11.2017, Qupperneq 6
Slysahætta á Holtinu Íbúar á Holtinu í Hafnarfirði eru hreint ekki sáttir við frágang vegna vinnu við gerð hljóðmanar við Byggða- braut. Þar hafa áltunnur verið steyptar í jörðina og standa steypustyrktarjárn upp úr þeim með tilheyrandi slysahættu. Verkið er á vegum Vegagerðarinnar en þegar fréttastofa leitaði upplýsinga um málið í gær kannaðist upplýsingafulltrúi ekki við áhyggjur íbúa á Holtinu. Fréttablaðið/anton brink Föstudaginn 17. nóvember kl. 13:00-17:00 í Norræna húsinu ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg blása til ráðstefnu föstudaginn 17. nóvember næstkomandi um óleyfisbúsetu í atvinnu­ húsnæði. Ráðstefnan er mikilvægur áfangi í umfangsmikilli úttekt RA á þessu vaxandi samfélagslega vandamáli og verða niðurstöður nýrra rannsókna kynntar. Dagskrána má sjá í heild sinni á heimasíðu ReykjavíkurAkademíunnar, www.akademia.is. Efnisflokkar ráðstefnunnar eru þessir: • Verkafólk og húsnæði á tímum alþjóðavæðingar • Búseta í ólöglegu húsnæði á Íslandi – hvað segir tölfræðin? • Tengsl vinnumarkaðar og óleyfisbúsetu Aðalfyrirlesari er Gillian Young frá Newhaven Research í Skotlandi. Gillian er öflugur fræðimaður á sviði húsnæðismála og búsetu í óleyfilegu húsnæði, þá sérstaklega þegar kemur að búsetuskilyrðum erlends verkafólks. Aðrir fyrirlesarar koma frá Háskóla Íslands, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Hagstofu Íslands, Vinnumálastofnun, Starfsgreinasambandi Íslands, ASÍ og Lögfræðistofu Reykjavíkur. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, setur ráðstefnuna. Fundarstjóri: Linda Blöndal, dagskrárgerðarkona Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Léttar veitingar í boði. Á jaðrinum? Ráðstefna ReykjavíkurAkademíunnar og Reykjavíkurborgar um óleyfisbúsetu í atvinnuhúsnæði Framkvæmda- og eignasvið 01 Smærri viðgerðir Hraðþjónusta HEKLU. Hringdu í 590 50 30 eða renndu við. Hekla.is OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS Landbúnaður Rúmlega 1.550 tonn af osti og 400 tonn af smjöri eru nú skráð í birgðahald MS. Ostabir- gðirnar hafa aukist um 300 tonn á síðustu tólf mánuðum en á sama tíma hefur fyrirtækið afsett 500 tonn til útflutnings á mjög lágu verði. Formaður stjórnar Auðhumlu segir framleitt heldur of mikið miðað við sölutölur. Pálmi Vilhjálmsson, fram- kvæmdastjóri framleiðslusviðs MS, segir í síðasta fréttabréfi til bænda að birgðir af osti séu í hærri kant- inum og stöðugt sé verið að flytja út prótein í formi undanrennudufts. Segir hann framleiðslu á próteini ríflega 17 milljónum lítra meiri en innanlandssala. „Það er heldur mikið framleitt miðað við sölu. Sennilega erum við að selja 145 milljónir lítra en fram- leiðslan verður í kringum 151 millj- ón lítra af mjólk,“ segir Egill Sigurðs- son, formaður stjórnar Auðhumlu sem á Mjólkursamsöluna. „Það er heldur meira gap milli sölu og fram- leiðslu í próteininu og því þurfum við að afsetja það. Við erum að reyna að koma próteininu í verð- mestu vöruna eins og skyr og selja það út þannig. En undanrennu- duftið er á lágu verði og því fáum við lágt verð fyrir próteinið í því formi.“ Á sama tíma og ostabirgðir eru að aukast hafa fitubirgðirnar verið stöðugar á þessu ári. Hins vegar hefur MS selt um 500 tonn af smjöri og annað eins af osti til að lækka birgðastöðu sína. Verðið á smjörinu er um 350 krónur á hvert kíló en verðið á ostinum er aðeins 211 krónur hvert kíló. Egill segir ekki hægt að bera það verð saman við verðið í íslenskum verslunum. „Kannski er ólíku saman að jafna. Þegar ostur er kominn í neytenda- umbúðir hefur verið lagður á hann virðisauki og álagning verslunar.“ „Munur á útflutningsverði osts og því verði sem sést í verslunum hér á landi þarf ekki að koma á óvart,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda. „Í skjóli mjög hárra tolla á ost hér á landi geta innlendir fram- leiðendur haldið uppi verði sem er miklu hærra en heimsmarkaðsverð. Erlendir kaupendur myndu aldrei kaupa íslenskan ost á því verði sem Íslendingum stendur til boða. Ef ostbirgðir eru að safnast upp getur MS auðvitað nýtt tækifærið og lækkað verð á ostum til að auka eftirspurnina hér á landi.“ – sa Ostabirgðir í landinu of miklar að mati MS Ostabirgðir Mjólkursamsölunnar hafa aukist um 300 tonn á síðustu tólf mán- uðum þrátt fyrir afsetningu á hrakvirði erlendis. Formaður stjórnar Auðhumlu segir heldur of mikið framleitt af próteini hér á landi miðað við sölutölur. Munur á útflutn- ingsverði osts og því verði sem sést í verslunum hér á landi þarf ekki að koma á óvart. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda 1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I ð v I K u d a G u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð 1 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 7 -5 4 D C 1 E 3 7 -5 3 A 0 1 E 3 7 -5 2 6 4 1 E 3 7 -5 1 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.