Fréttablaðið - 15.11.2017, Blaðsíða 38
Vi ð e r u m þ r í r sem unnum að myndinni, meira og minna, Konráð Gylfason, Friðþór Eydal og ég. Við vildum bjarga
þeim heimildum sem hægt væri,“
segir Guðbergur Davíðsson töku
maður nýrrar heimildarmyndar um
veru bandaríska hersins á Íslandi
sem frumsýnd verður í Bíói Paradís
í kvöld klukkan 19.
„Guðbergur segir þá Konráð hafa
séð um allt sem snýr að kvikmynda
gerðinni og svo hafi þeir þremenn
ingar hjálpast að með handritið.
„Friðþór er með fróðustu mönnum
um allt sem snýr að hernaðarbrölt
inu, þannig að við erum með réttar
flugvélar á réttum stað og allt eins
nákvæmt og vandað og hægt er,“
tekur Guðbergur fram.
Ísland gegndi mikilvægu hlutverki
í varnaráætlunum bandalagsríkja
NATO í norðurhöfum og herstöðin
í Keflavík var í áratugi miðstöð kaf
bátaleitar og loftvarnaviðbúnaðar.
Herliðið hafði aðsetur á landinu í 55
ár, frá 1951 til 2006 og var staðsett
í afgirtri herstöð við Keflavíkurflug
völl. En var eitthvað sem kom Guð
bergi á óvart þegar hann fór að
kafa í heimildirnar? „Já, hvað starf
semi varnarliðsins var gríðarlega
umfangsmikil og hvað hún hafði
mikil áhrif á líf og menningu lands
manna, enda var dvölin mikið
þrætuepli þjóðarinnar. Ég held að
fáir hafi fyllilega gert sér grein fyrir
hlutverki hersins.“
Guðbergur er fæddur 1956 og man
hluta þess tímabils sem herinn var
hér. „Ég var á móti her í landinu og
gæti trúað að við höfum verið í meiri
hættu af því að hann var hér þegar
kalda stríðið var upp á sitt versta. Þó
var ég ekkert of upptekinn af þeim
hugsunum í uppvextinum en man
vel eftir því þegar almannavarna
flauturnar glumdu hér á þriggja mán
aða fresti og svo voru leiðbeiningar
um kjarnorkuvá í símaskránni lengi.“
Hvernig gekk ykkur að smala
saman myndefninu? „Það gekk í sjálfu
sér vel en það var tímafrekt því við
Vildum bjarga þeim heimildum sem hægt væri
Ljósi er brugðið á líf setuliðsins sem dvaldi á Íslandi í 55 ár, og áhrif þess, í heimildarmyndinni Varnarliðið –
Kaldastríðsútvörður, saga Bandaríkjahers á Íslandi 1951 til 2006 sem frumsýnd er í Bíói Paradís í kvöld.
Kvikmyndagerðarmennirnir Guðbergur og Konráð leggja sig fram um að gefa sem réttasta mynd af lífi setuliðsins hér á landi. Fréttablaðið/Eyþór Árnason
Ungir menn voru sendir til Íslands í hálfgerða einangrun.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
þurftum að fá það víða að. Leituðum í
öllum söfnum sem okkur duttu í hug,
bæði innan lands og utan. Friðþór
vann sem upplýsingafulltrúi varnar
liðsins um árabil og samskiptin við
bandaríska herinn voru í gegnum
hann. Þannig komumst við inn í
öll söfn í Bandaríkjunum og þar er
búið að gramsa í öllu sem hægt er að
gramsa í. Við erum því með mikið af
áður óbirtu myndefni.“
Myndin er 88 mínútur að lengd og
í henni er meðal annars rætt við fyrr
verandi liðsmenn og íslenska starfs
menn varnarliðsins.
Spurður hvort þeir félagar fari
eitthvað ofan í ástamál eða önnur
persónuleg mál, svarar Guðbergur:
„Við erum með nokkrar sögur,
ekki kannski mikið um ástamál, en
þó kemur ýmislegt fram um sam
skipti hermanna og Íslendinga, bæði
á menningarog félagslegu sviði.
Þetta er löng saga og hún er ekki eins
á öllum tímabilum. Fyrst voru her
mennirnir mest einhleypir strákar
í verkamannavinnu, þeir voru mjög
einangraðir og fengu bara að fara
út af svæðinu á Miðnesheiði á mið
vikudögum. Seinna fluttu fjölskyldur
á svæðið, það fór lítið fyrir þeim en
þær nutu meira frelsis en herinn
gerði í upphafi.
Við minnumst líka aðeins á radar
stöðvarnar úti á landi og sýnum mest
frá þeirri sem var á Hornströndum.
Meiri gat nú einangrunin varla orðið
en þar.“
Þulur myndarinnar er Sigurþór
Heimisson leikari. Framleiðandi
er Ljósop ehf. og meðframleiðandi
KAM film.
1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I Ð v I K U D A G U r22 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
menning
1
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
7
-2
D
5
C
1
E
3
7
-2
C
2
0
1
E
3
7
-2
A
E
4
1
E
3
7
-2
9
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K