Fréttablaðið - 15.11.2017, Page 38

Fréttablaðið - 15.11.2017, Page 38
Vi ð e r u m þ r í r sem unnum að mynd­inni, meira og minna, Konráð Gylfason, Friðþór Eydal og ég. Við vildum bjarga þeim heimildum sem hægt væri,“ segir Guðbergur Davíðsson töku­ maður nýrrar heimildarmyndar um veru bandaríska hersins  á Íslandi sem frumsýnd verður í Bíói Paradís í kvöld klukkan 19. „Guðbergur segir þá Konráð hafa séð um allt sem snýr að kvikmynda­ gerðinni og svo hafi þeir þremenn­ ingar hjálpast að með handritið. „Friðþór er með fróðustu mönnum um allt sem snýr að hernaðarbrölt­ inu, þannig að við erum með réttar flugvélar á réttum stað og allt eins nákvæmt og vandað og hægt er,“ tekur Guðbergur fram. Ísland gegndi mikilvægu hlutverki í varnaráætlunum bandalagsríkja NATO í norðurhöfum og herstöðin í Keflavík var í áratugi miðstöð kaf­ bátaleitar og loftvarnaviðbúnaðar. Herliðið hafði aðsetur á landinu í 55 ár, frá 1951 til 2006 og var staðsett í afgirtri herstöð við Keflavíkurflug­ völl. En var eitthvað sem kom Guð­ bergi á óvart þegar hann  fór  að kafa í heimildirnar? „Já, hvað starf­ semi varnarliðsins var gríðarlega umfangsmikil og hvað hún hafði mikil áhrif á líf og menningu lands­ manna, enda var dvölin mikið þrætuepli þjóðarinnar. Ég held að fáir hafi fyllilega gert sér grein fyrir hlutverki hersins.“ Guðbergur er fæddur 1956 og man hluta þess tímabils sem herinn var hér. „Ég var á móti her í landinu og gæti trúað að við höfum verið í meiri hættu af því að hann var hér þegar kalda stríðið var upp á sitt versta. Þó var ég ekkert of upptekinn af þeim hugsunum í uppvextinum en man vel eftir því þegar almannavarna­ flauturnar glumdu hér á þriggja mán­ aða fresti og svo voru leiðbeiningar um kjarnorkuvá í símaskránni lengi.“ Hvernig gekk ykkur að smala saman myndefninu? „Það gekk í sjálfu sér vel en það var tímafrekt því við Vildum bjarga þeim heimildum sem hægt væri Ljósi er brugðið á líf setuliðsins sem dvaldi á Íslandi í 55 ár, og áhrif þess, í heimildarmyndinni Varnarliðið – Kaldastríðsútvörður, saga Bandaríkjahers á Íslandi 1951 til 2006 sem frumsýnd er í Bíói Paradís í kvöld. Kvikmyndagerðarmennirnir Guðbergur og Konráð leggja sig fram um að gefa sem réttasta mynd af lífi setuliðsins hér á landi. Fréttablaðið/Eyþór Árnason Ungir menn voru sendir til Íslands í hálfgerða einangrun. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is þurftum að fá það víða að. Leituðum í öllum söfnum sem okkur duttu í hug, bæði innan lands og utan. Friðþór vann sem upplýsingafulltrúi varnar­ liðsins um árabil og samskiptin við bandaríska herinn voru í gegnum hann. Þannig  komumst við inn í öll söfn í Bandaríkjunum og þar er búið að gramsa í öllu sem hægt er að gramsa í. Við erum því með mikið af áður óbirtu myndefni.“ Myndin er 88 mínútur að lengd og í henni er meðal annars rætt við fyrr­ verandi liðsmenn og íslenska starfs­ menn varnarliðsins.  Spurður hvort þeir félagar fari eitthvað  ofan  í ástamál eða önnur persónuleg mál, svarar Guðbergur: „Við erum með nokkrar sögur, ekki kannski mikið um ástamál, en þó  kemur ýmislegt fram um  sam­ skipti hermanna og Íslendinga, bæði á menningar­og félagslegu sviði. Þetta er löng saga og hún er ekki eins á öllum tímabilum. Fyrst voru her­ mennirnir mest einhleypir strákar í verkamannavinnu, þeir voru mjög einangraðir og fengu bara að fara út af svæðinu á Miðnesheiði á mið­ vikudögum. Seinna fluttu fjölskyldur á svæðið, það fór lítið fyrir þeim en þær nutu meira frelsis en herinn gerði í upphafi. Við minnumst líka aðeins á radar­ stöðvarnar úti á landi og sýnum mest frá þeirri sem var á Hornströndum. Meiri gat nú einangrunin varla orðið en þar.“ Þulur myndarinnar er Sigurþór Heimisson leikari. Framleiðandi er Ljósop ehf. og meðframleiðandi KAM film. 1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I Ð v I K U D A G U r22 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð menning 1 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 7 -2 D 5 C 1 E 3 7 -2 C 2 0 1 E 3 7 -2 A E 4 1 E 3 7 -2 9 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.