Fréttablaðið - 15.11.2017, Side 42

Fréttablaðið - 15.11.2017, Side 42
Hverfisráð Laugar-dals gerir alvar-legar athugasemdir við það verklag og vinnubrögð að aug-lýsa tónlistarhá- tíðina Secret Solstice án samráðs við borgina. Tónlistarhátíðin var tekin fyrir á borgarráðsfundi í síðustu viku og lokaskýrslur tíu aðila skoðaðar. Þar kemur ýmislegt miður fallegt í ljós. Í lokaskýrslu Þróttar kemur fram að frágangur eftir gleðina tók mun lengri tíma en gert var ráð fyrir. „Umgengnin á svæðinu var vægast sagt hræðileg og tiltekt og lagfæringar á völlunum tóku alltof langan tíma. Illa gekk að ná sambandi við forsvars- menn hátíðarinnar varðandi tiltekt á svæðinu og þegar náðist í þá forsvars- menn þá voru viðbrögðin hæg og léleg,“ segir í skýrslu Þróttar. Þar kemur einnig fram að gert hafi verið ráð fyrir að svæðið yrði ekki nýtt til æfinga frá 5. júní til 19. júní en æfingar hófust 26. júlí eða skömmu fyrir hina alþjóðlegu Rey Cup. „Verði af hátíðinni að ári þarf að leggja alla áherslu á og tryggt að gengið verði hratt og vel til verks við frágang eftir hátíðina, Laugardalurinn hreinsaður af rusli og búnaður allur fjarlægður, skemmdir verði lagfærðar og æfinga- svæðið geti verið tilbúið til notkunar ekki seinna en viku eftir hátíðina,“ segir enn fremur. Í umsögn stjórnar Íbúasamtaka Laugardals kemur fram að íbúar voru ósáttir við nokkra grunnþætti eins og að svæðið í dalnum, sem var tekið undir hátíðina, hafi verið of stórt. Hátíðargestir hafi komið sér fyrir á skóla- og leikskólalóðum til áfengis- og vímuefnaneyslu. „Eftir hátíðina voru þrif í dalnum og aðlægri íbúðar- byggð og frágangur ófullnægjandi og gekk hægt. Viku eftir tónleika, á Notkun Grasagarðsins breytist skömmu fyrir hátíðina og borga menn jafnvel kaffibolla með stórum seðlabúntum. Fréttablaðið/GVa Samantekt rölthópa á og í kring um Secret Solstice Fimmtudagur 15. júní 21:00 „Stór hópur af krökkum. Lög- reglan tekur hóp af áttundu bekk- ingum á tal. Hópur af strákum úr 9. og 10. bekk úr Tjörninni. Stelpu- hópur úr Tjörninni – vape nation (rafrettustelpur). Löggan með afskipti af strákum úr T og KM.“ 21:30 „Mikið af unglingum á svæðinu.“ 22:00 „Foreldrarölt tilkynnti um mikla neyslu í nærumhverfi hátíðarinnar. Gengu fram á menn að sprauta sig, fundu mikið af not- uðum nálum og jónum.“ 23:00 „Mikið um unglinga að reykja. 10. bekkingar úr Hagaskóla og Háteigsskóla – engin sjáanleg drykkja, bara vape og sígó. Mikið af krökkum á grunnskólaaldri en ekki sýnileg drykkja en mikið af fólki á fyrstu árum menntaskóla vel ölvað.“ Föstudagur 16. júní 20:00 „Á móti okkur tók stór hópur af 10. bekkingum úr KM að drekka. Og stór hópur af krökkum úr Tjörn að mæta og sameinast KM boys. Rétt fyrir hittum við 8. bekkinga úr KM og Tjörn.“ 22:00 „Löggan fór baksviðs að horfa á Foo fighters. Við röltum um svæðið.“ 22:30 „Sjúkratjaldið hringdi: 16 ára stelpa ofurölvi tekin inn í athvarf. Security með 17 ára kvk. ofurölvi, fylgt inn í athvarf.“ 23:00 „Fjórar stelpur úr Hagaskóla – drunk. Ekki nógu ölvaðar til að lögregla vildi taka þær inn í athvarf.“ 23:30 „Mikil hópamyndun við stigainnganginn. Mikil drykkja, löggan í öðrum verkefnum.“ laugardagur 17. júní 20:15 „Hittum nokkra unglinga (8.-9. bekk) að deila bjór í glasi. Drifu sig burt.“ 20:20 „Hittum nokkra í Hagó að tjilla og veipa. Sáum rosalega mörg ungmenni á menntaskólaaldri undir miklum áhrifum og með áfengi sem þau keyptu á barnum.“ Sunnudagurinn 18. júní 20:30 „Hittum ungling fæddan 2001 úr Tjörninni (ekki með arm- band) með drykk. Ekki sjáanlega drukkin. Hún fór undan í flæmingi. Ræddum við lögregluna sem hafði ekki tíma til að tékka á henni að svo stöddu. Hittum marga unglinga, Eiturlyf, eldhætta, unglingadrykkja og skelfilegur frágangur Borgarráð Reykja­ víkur hefur fengið tíu umsagnir um tón­ listar hátíðina Secret Solstice. Borgaryfir­ völd munu nú fara yfir umsagnirnar og taka afstöðu til þess hvort áframhald verður. Miðasala er hafin á hátíðina 2018. Hrein húsgögn fyrir jólin Hreinsum stóla, sófa, dýnur, rúm, mottur og margt fleira. FYRI R EFTI R Mygluþrif og lyktareyðing á öllum ökutækjum og oson-meðferð ef þess þarf. Eldshöfði 8, 110 Rvk. S: 577-5000 Við erum á facebook Verum tímanlega í ár LOKSINS ERU ÞÆR KOMNAR yfirhafnirnar og vinsælu vetrarbuxurnar Jólin eru komin í name it K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D 1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I Ð v I K U D A G U r26 l í f I Ð ∙ f r É T T A b l A Ð I Ð Lífið 1 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 7 -5 4 D C 1 E 3 7 -5 3 A 0 1 E 3 7 -5 2 6 4 1 E 3 7 -5 1 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.