Fréttablaðið - 15.11.2017, Blaðsíða 25
Íslenskur jólabjór
hefur fengist hér á
landi frá árinu 1990 og
stöðugt eykst framboð og
bragðtegundum fjölgar.
Íslenskur jólabjór hefur lengi verið vinsæll en segja má að saga íslensks jólabjórs sé samofin
sögu Víking brugghúss. Árið 1990
var tekin ákvörðun um að Víking
kæmi með jólabjór á markað í
fyrsta skipti. Það var einungis ári
eftir að bjórinn var leyfður aftur á
Íslandi og Íslendingar ekki vanir
að drekka annað en ljósan lager.
Víking jólabjórinn þótti á þessum
tíma nokkuð framandi en hann er
með skemmtilegt bragð af kara-
mellu og súkkulaði. Bjórinn var þó
ekki lengi að vinna sig inn í huga og
hjörtu landsmanna og er langmest
seldi íslenski jólabjórinn.
Víking brugghús hefur frá upp-
hafi haft það að leiðarljósi að vera
leiðandi í bjórframleiðslu á Íslandi.
„Við erum sífellt að gera tilraunir
með ný hráefni og brugga alls kyns
craft-bjóra. Við viljum að næsti
Víking bjór sem þú drekkur sé jafn-
góður, ef ekki betri, en sá sem þú
drakkst síðast og þess vegna erum
við alltaf að leika okkur með ný hrá-
efni, gera tilraunir og prófa okkur
áfram,“ segir Hilmar Geirsson, vöru-
merkjastjóri Víking brugghúss.
Víking brugghús byrjaði nýlega
að brugga í Ægisgarði en þar er
lítið brugghúsið sem kannski ekki
margir vita af. „Þetta brugghús er
mun minna en brugghúsið okkar
á Akureyri og þess vegna er aðeins
auðveldara fyrir bruggarana að
leika sér með hráefnið. Við brugg-
uðum einmitt sérstakan bjór fyrir
Airwaves í brugghúsinu í Ægis-
garði sem fékk nafnið 1999 með
skírskotun í fyrsta árið sem hátíðin
var haldin. Þarna þróuðum við líka
nýja jólabjórinn okkar „Bara kíló
pipar“ sem er piparkökuporter með
jólalegum keim af kanil og engifer.
Við erum að koma með nýja línu
af bjór á markað en það eru bjórar
sem koma úr „tilraunaeldhúsinu“
okkar. Það eru yfirleitt bjórar sem
koma í litlu upplagi og fá litla
dreifingu, stundum fara þeir ekki
einu sinni í Vínbúðina.“
Víking brugghús bruggar líka
Thule jólabjórinn sem kom á
markað árið 2013. „Thule jólabjór-
inn kom inn með hvelli og er líklega
skemmtilegasti jólabjórinn. Hann
hefur verið næstmest seldi íslenski
jólabjórinn á eftir Víking en hann
er einstaklega jólalegur millidökkur
lager en í bragðinu af honum má
finna karamellu, súkkulaði og vel af
lakkrís,“ segir Hilmar
Víking brugghús verður með
sex tegundir af jólabjór í ár, en auk
hinna fyrrnefndu verða það Víking
Yule Bock og, í samstarfi við Einstök
brugghús, Einstök Doppelbock og
Einstök Winter Ale.
„Fólki finnst mjög skemmti-
legt að smakka jólabjórana og við
bíðum alltaf spennt eftir við-
brögðum við þeim. Við breyttum
til dæmis Víking Yule Bock aðeins
í ár, settum meira af anís í hann og
minnkuðum vanillubragðið svo að
fólk finnur aðeins meira lakkrís-
bragð af honum í ár.“
Nýtt og ferskt bragð í
íslenskum jólabjór
Það er mikill spenningur þegar jólabjórinn kemur á markað. Hér eru Hilmar Geirsson, vörumerkjastjóri Víking brugghúss, og Ólafur S.K. Þorvaldz, bruggari í Ægisgarði, í jólaskapi.
Jólabjórinn er til í margvíslegum bragðtegundum fyrir þessi jól.
Margir bíða ef-
laust spenntir
eftir að jólabjór-
inn komi í Vín-
búðir í dag. Um
40 tegundir verða
í boði og því úr
nógu að velja. Í
fyrra seldust tæp-
lega 800 þúsund
lítrar af jólabjór
en salan eykst á
hverju ári enda
alltaf nýjar bragð-
tegundir í boði.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 1 5 . n óV e M b e r 2 0 1 7
1
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
7
-3
2
4
C
1
E
3
7
-3
1
1
0
1
E
3
7
-2
F
D
4
1
E
3
7
-2
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K