Fréttablaðið - 15.11.2017, Blaðsíða 15
Myndu börnin mín kalla sig Þingeyinga þegar þau verða fullorðin ef við þyrft-
um að flýja sveitina okkar fögru í
dag vegna loftslagsbreytinga? Þau
eru tveggja og fjögurra ára gömul
og myndu eiga minningar úr sveit-
inni, allavega minningar af sögum
okkar foreldranna, sögum frá ömmu
og afa. Eldri kynslóðin myndi ekki
sleppa sinni sjálfsmynd en ég veit
ekki með börnin. Þau myndu ekki
þekkja Goðafoss og Aldeyjarfoss ef
þeir væru farnir á kaf vegna hækk-
andi sjávarmáls. Sagan af Þorgeiri
Ljósvetningagoða myndi lifa, en
það væri aldrei hægt að ganga í fót-
sporin hans.
Sveitin þar sem langafi ólst upp,
heiðin sem pabbi byrjaði að smala
þegar hann var 6 ára, það sem gaf
merkingu og tilgang og ekki síst stolt.
Það er farið. Landið sem langalangafi
vann fyrir og eignaðist. Kirkjan þar
sem afi var organisti, grafir forfeðr-
anna. Allt farið. Auðvitað myndum
við búa á nýjum stað. Eiga heimili. En
hluti af því sem gerði okkur að þeim
sem við erum, að minnsta kosti í
eigin augum, er farið.
Á Fídjíeyjum er þetta glíma yfir
hundrað samfélaga. Það var tregi og
reiði í rödd James, prestsins frá Fídjí
sem er staddur á loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna sem fulltrúi
þessara samfélaga, þegar ég ræddi
við hann. Hann er hér sem fulltrúi
fólks sem er búið að missa söguna
sína, atvinnuvegina, lífsstílinn, heim-
ilin, kirkjurnar og hluta menningar
sinnar, vegna loftslagsbreytinga.
Breytt samfélag
Það er ekki bara hækkandi yfirborð
sjávar sem ógnar þeim, undanfarna
mánuði hefur metfjöldi fellibylja
riðið yfir eyjarnar þar sem margir lifa
enn hálfgerðu sjálfsþurftarlífi, hafa
haft nóg í sig og á af gjöfum náttúr-
unnar. En nú hefur súrnun sjávar,
dauði kóralrifja og hrun fiskistofna
líka sett það strik í reikninginn að ætt-
bálkar sem lifðu kynslóðum saman á
afskekktum eyjum hafa þurft að flytja
í þéttbýlið. Án þess að vilja og án þess
að hafa réttu kunnáttuna hafa fjöl-
skyldur þurft að takast á við líf í gjör-
samlega breyttu samfélagi. Þar hefur
kirkjan leikið stórt hlutverk, sinnt
hjálparstarfi og sálgæslu – tekið við
reiðinni sem kraumar í James þegar
hann ræðir ábyrgð okkar velstæðu og
ríku landanna, sem sögulega berum
svo gott sem alla ábyrgð á loftslags-
breytingum og öðrum umhverfisvám
á borð við plastmengun.
Ákall Fídjí og margra annarra
þjóða hér á COP23, loftslagsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna, er að
það verði settar skýrar leikreglur
um það hvernig bætt verði fyrir tjón
þeirra samfélaga sem bera hitann og
þungann af loftslagsbreytingum. Þar
að auki er það krafa þeirra að hugað
verði sérstaklega að stöðu kvenna
en þær koma einna verst út í sam-
félögum sem glíma við afleiðingar
loftslagsbreytinga.
Þetta er líka ákall og stefna Lúth-
erska heimssambandsins sem sendi
mig á COP23 sem fulltrúa þjóð-
kirkjunnar. Lútherska heimssam-
bandið heldur utan um Lutheran
World Relief, ein stærstu hjálpar-
samtök í heimi og hafa langa reynslu
af því að stunda þróunaraðstoð og
björgunarstarf. Hér erum við hins
vegar fyrst og fremst í því hlutverki
að vera talsmenn þeirra 140 kirkna
í 100 löndum sem eru aðildarkirkjur
okkar. Margar þessara kirkna lifa við
afleiðingar loftslagsbreytinga og með
mér í sendinefndinni er ungt fólk frá
Indlandi, Filippseyjum og Indónesíu
sem hefur reynt á eigin skinni hvað
auknir þurrkar, tíðari flóð og hækk-
andi meðalhiti þýða fyrir lífsgæði
venjulegs fólks á suðurhveli jarðar.
Allar þjóðir setji sér skýr markmið
Við erum heppin á Íslandi. Það er ein
af stóru tilfinningunum sem ég finn
fyrir inni í mér. En á sama tíma fæ ég á
tilfinninguna að við séum líka skeyt-
ingarlaus gagnvart lífum, örlögum og
sögu allra þeirra sem þjást vegna þess-
ara manngerðu hamfara. Ísland hefur
ekki tekið þá afstöðu að vera meðal
þjóðanna sem eru afdráttarlausar
í stuðningi sínum við fátækustu og
viðkvæmustu samfélög jarðar. Við
fylgjum hinum vestrænu ríkjunum,
pössum forréttindi okkar í staðinn
fyrir að opna okkur fyrir því að við
erum í raun og veru öll á sama báti.
Þó að stafninn á Titanic hafi sokkið
á undan skutnum breytir það ekki
staðreyndinni að skipið liggur á hafs-
botni. Loftslagsbreytingar virða engin
landamæri.
Það er ákall okkar í Lútherska
heimssambandinu að allar þjóðir
setji sér skýr og róttæk markmið um
hvernig þau ætli að minnka losun
sína á gróðurhúsalofttegundum til
að halda hækkun meðalhita jarðar
undir 1,5°C. Eins er það ákall þeirra til
okkar Íslendinga sem ríkrar þjóðar að
við styðjum betur við systkini okkar
sem eru að upplifa fordæmalausar
hamfarir.
Það er þörf á aðgerðum en fyrst
þurfum við kannski að skilja að þó að
hamfarirnar séu ekki að gerast hér þá
eru þær samt að gerast. Þar í dag – hér
á morgun. Þau í dag – þú á morgun.
Snúum þróuninni við áður en það er
of seint.
Þau í dag – við á morgun
Sindri Geir
Óskarsson
guðfræðingur
Í fróðlegri grein í Fréttablaðinu 31.7. sl. skrifa tveir lögspekingar um „Ábyrgð ríkisins á íþrótta-
hreyfingunni“ vegna ábendingar
EFTA á meintum brotum Körfu-
boltasambands Íslands á EES-
reglum um frjálsa för launþega.
Þessi mál eru þó ögn flóknari því
keppnisleyfi íþróttamanns er
ekki frá stjórnvöldum heldur við-
komandi alþjóðasérsambandi
þó stjórnvöld veiti atvinnuleyfið
þegar um atvinnumennsku er að
ræða sem getur nú verið í flestum
ef ekki öllum greinum íþrótta.
Það var nánast ógnvekjandi
að verða vitni að bræði fulltrúa
Afríkuríkja á þingi Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins IAAF skömmu
eftir Ólympíuleikana í Los Angeles
1984. Þar keppti Zola Budd frá Suð-
ur-Afríku fyrir hönd Breta eftir að
hafa fengið breskan ríkisborgara-
rétt eftir skamma dvöl í Bretlandi,
en afi hennar hafði verið breskur.
Suður-Afríka var þá útilokuð frá
alþjóðaíþróttasamskiptum vegna
stefnu stjórnvalda um aðskilnað
kynþátta.
Við flutning til annars lands gátu
íþróttamenn á þeim tíma nánast
keppt strax fyrir viðkomandi
land eftir að hafa fengið ríkis-
borgararétt, en skilyrði um ríkis-
borgararétt voru og eru enn mjög
mismunandi í löndum. Austur-
Evrópuþjóðir höfðu einnig verið
óhressar með hversu fljótt brott-
flúnir íþróttamenn gátu fengið
ríkisborgararétt í öðrum löndum
og þar með keppnisleyfi fyrir við-
komandi land.
Eftir þetta voru samþykkt
ákvæði um að íþróttamaður fengi
ekki keppnisleyfi fyrir sitt nýja
land fyrr en þremur árum eftir
að hafa öðlast þar ríkisborgara-
rétt nema sérsamband fráfarandi
lands samþykkti og sem hefur þá
óefað fengið eitthvað í staðinn. Á
nýafstöðnu Heimsmeistaramóti
í London kom oft fram í ágætum
lýsingum S.Á.A., starfsmanns RÚV,
að margir keppendur kepptu fyrir
annað land en sitt fæðingarland.
Þeir höfðu þá augljóslega skipt um
ríkisfang.
Einnig má benda á til áherslu um
valdsvið íþróttahreyfingarinnar að
Alþjóðafrjálsíþróttasambandið
IAAF útilokaði Rússa almennt frá
keppni á Ólympíuleikunum í Rio
sem og Heimsmeistaramótinu í
London vegna víðtækrar lyfja-
misnotkunar. Hvorki EFTA né
Pútín fengu nokkru um það ráðið.
Alþjóðasérsamböndin setja eigin
leikreglur og skilgreina keppnisað-
stöðu. Valdsvið og ábyrgð stjórn-
valda á íþróttahreyfingunni er því
mjög afmörkuð.
Höfundur var formaður laga/
tækninefndar Frjálsíþróttasam-
bands Íslands í 30 ár og sat mörg
þing Alþjóðafrjálsíþróttasam-
bandsins og var dómari á alþjóða-
mótum.
Valdsvið stjórnvalda
og íþróttahreyfingar
Birgir
Guðjónsson
fv. formaður
laga/tækni-
nefndar Frjáls-
íþróttasam-
bands Íslands
Hvorki EFTA né Pútín fengu
nokkru um það ráðið.
Alþjóðasérsamböndin setja
eigin leikreglur og skilgreina
keppnisaðstöðu. Valdsvið og
ábyrgð stjórnvalda á íþrótta-
hreyfingunni er því mjög
afmörkuð.
lya.is
Við getum
aðstoðað
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15M i ð V i k u D A G u R 1 5 . n ó V e M B e R 2 0 1 7
1
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
7
-4
6
0
C
1
E
3
7
-4
4
D
0
1
E
3
7
-4
3
9
4
1
E
3
7
-4
2
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K